Jökull - 01.12.1978, Blaðsíða 78
komnir að fjárhúsunum frá Laxárdal. Þar
neyttum við síðast matar undir beru lofti. Þó
að við hefðum ekki sparað vistir við okkur hina
síðustu daga, þá var samt eftir 10 daga forði af
mat, en 8 daga forði af steinolíu.
Við komum að Laxárdal kl. IV2 um daginn.
Við munum hafa verið allófrýnilegir sýnum,
því að allar skepnur, sem urðu á vegi okkar,
hundar, kettir, hænsn og kindur, hlupu undan
okkur á harða spretti eins og þær hefðu séð
fjandann sjálfan. Það er og sannast að segja,
að við vorum ekki vel hreinir, því að mat-
reiðslumaður hafði verið spar á vatnið, og að
því er ég veit best, hafði enginn okkar þvegið
sér á leiðinni, enda höfðum við hvergi rekist á
baðhús eða rakarastofu.
Meðan við þvoðum okkur og rökuðum, bar
heimilisfólkið súkkulaði, kaffi og heitar
pönnukökur á borð. Þær góðgerðir komu
okkur, enda átum við og drukkum sleitulaust.
Okkur var það nautn eftir 8 daga útilegu að
sitja við borð með drifhvítum dúki og drekka
úr hreinum bollum. Bóndinn í Laxárdal,
Högni Guðmundsson, vildi fyrir hvern mun
að við hvíldum okkur þar einn eða tvo daga,
en við vildum ekki standa við nema 2 tíma og
héldum síðan fótgangandi til Birtingaholts.
Þetta var þá eftir af okkur eftir 237 km ferða-
lag! í Birtingaholti skorti ekkert, — þar var
eins og við værum komnir á veitingastað af
besta tæi. Það var unun að leggjast í velbúið
rúm eftir að hafa sofið 13 nætur í húðfötum.
Laugardaginn 28. mars héldum við frá
Birtingaholti að Húsatóftum, þaðan í bíl að
Kömbum. Síðan fórum við á skíðum yfir
Hellisheiði og náttuðum okkur á Kolviðarhól.
Daginn eftir komum við til Reykjavíkur úr
þessari Bjarmalandsferð. Höfðum við þá farið
334 km.
(Árni Pálsson þýddi. Áður birt í Skírni 1926).
ABSTRACT
The anthor, L. H. Muller, who did a pioneer work
in introducing ski sport in Iceland, describes a tour on
skis he and three others made through Central Iceland
in March 1925. From Eyjafjördur, where he and his
comrades happened to participate in the rescue work
after a snow avalanche at the farm Úlfsá on 18th
March, they walked to Laugafell and then by Eastern
Hofsjökull to Arnarfell. Múlajökull, a southeastern
outlet of Hofsjökull, had then clearly finished a surge,
or nearly so. From Arnarfell they continued west-
wards, crossing rivers from Hofsjökull, but south of
Kerlingarfjöll they turned southwest and reached the
farm Laxárdalur in Hreppar on 27 March, having
walked ca. 240 km in 8 days.
Á vélsleðum um Vatnajökul
Laugardaginn 7. júlí 1973 lagði upp í
Vatnajökulsför frá Reykjavík þriggja manna
leiðangur með jafn marga snjósleða. Þátttak-
endur auk undirritaðs voru Hákon Sigurðsson
og Freyr Bjartmarz.
Að kvöldi laugardagsins vorum við allir
sáman komnir í skála Jöklarannsóknafélagsins
í Jökulheimum í svarta þoku og súld. En er
menn vöknuðu um fimmleytið næsta morgun
hafði heldur betur breytt um veður, þokunni
hafði létt og komið var fegursta veður. Voru
menn nú heldur betur handfljótir að ferðbúast
yfir að jökli. Bílstjórarnir, þeir Einar
Gunnarsson og Birgir Rafn Jónsson og
aðstoðarmenn þeirra, skildu ekki við okkur
fyrr en allt draslið var komið á jökul. Að þessu
sinni var aðstaðan við jökulröndina með því
besta sem gerist. Tungná lítil sem lækur, enda
frost með morgninum. Snjór var með mesta
móti og náði niður undir jökulrönd. Við
vorum því í besta skapi þegar við brunuðum
af stað um átta leytið upp á jökul og tókum
76 JÖKULL 28. ÁR