Jökull - 01.12.1986, Page 76
Starfsemi Jarðfræðafélags íslands
1985-1986
í stjórn félagsins þetta starfsár sátu Hrefna Krist-
mannsdóttir, formaður, Sigríður P. Friðriksdóttir, rit-
ari, Þórólfur Hafstað, gjaldkeri, Guðrún Larsen og
Leifur A. Símonarson, meðstjórnendur.
A starfsárinu voru haldnir fjórir fræðslufundir auk
aðalfundar og einn umræðufundur um útgáfumál fé-
lagsins. Aðsókn hefði mátt vera betri á fundina en
20 — 30 manns sóttu þá venjulega. Fundartími var í
flestum tilvikum kl. 17 og voru þeir allir haldnir í
fundarsal Orkustofnunar, nema umræðufundurinn,
sem haldinn var að kvöldlagi í Skólabæ.
Félagið hélt ásamt Mannvirkjajarðfræðafélagi ís-
lands og Verkfræðingafélagi fslands ráðstefnu um inn-
lend jarðefni til iðnaðar. Var það hálfs dags ráðstefna,
sem haldin var í kristalsal Hótels Loftleiða þann 29.
nóvember 1985. Á ráðstefnunni voru gefin stutt yfirlit
yfir helstu jarðefni, núverandi nýtingu og rannsóknir.
Var flestum stofnunum og fyrirtækjum, sem tengjast
nýtingu jarðefna boðið að senda fulltrúa á ráðstefn-
una. Tókst hún mjög vel og mættu 80—90 manns.
Félagið hélt einnig þ. 21. mars 1986 hálfs dags fund
um Hengilinn — jarðfræði og jarðhita. Voru þar hald-
in ellefu erindi um rannsóknir á Hengilssvæðinu auk
klukkustundar langrar kynningar á rannsóknum á
Nesjavallasvæðinu. Var fundurinn vel sóttur og tókst
vel í alla staði. Mættu næstum eitt hundrað manns á
fundinn. Ljóst er af undirtektum að þetta ráðstefnu-
form er það sem menn kjósa helst á starfsemi félags-
ins. Þar sem sum erindanna á fundinum voru ekki til-
kynnt fyrr en daginn áður og mörg þeirra fjölluðu um
efni sem er í miðri úrvinnslu var ekki unnt að birta
úrdrætti. Að loknum fundinum var skálað fyrir tutt-
ugu ára afmæli félagsins í boði Menntamálaráðuneyt-
isins.
Á umræðufundi um útgáfumál félagsins var leitað
álits félagsmanna um útgáfu, annaðhvort áframhald-
andi aðild að útgáfu Jökuls eða útgáfu nýs tímarits.
Ljóst er af undirtektum að þótt ýmsir vildu hrinda í
framkvæmd útgáfu nýs tímarits þá eru fáir sem vilja
leggja fram vinnu til þess. Stjórnin hafði áður átt við-
ræður við fulltrúa Jöklarannsóknafélags og gert bráða-
birgðasamkomulag um útgáfu Jökuls, sem gildir í eitt
ár og felst í því að einn ritstjóri sér um útgáfuna og
hefur ritnefnd sér til aðstoðar. Fulltrúar Jarðfræðafé-
lags eru Leó Kristjánsson, Kristján Sæmundsson og
Karl Grönvold. Skipuð hefur verið nefnd með tveim
fulltrúum frá hvoru félagi til að vinna að framtíðar-
lausn á útgáfu Jökuls með því markmiði að breyta
fjárhagsgrunni, áskriftarreglum og vinnslu tímaritsins.
Ritstjóri Jökuls, Ólafur Flóvenz, er oddamaður í
nefndinni. Fulltrúar Jarðfræðafélags eru Leó Kristj-
ánsson og Jón Eiríksson.
Stjórn Jarðfræðafélags hélt sex formlega stjórnar-
fundi á starfsárinu. Fjallaði stjórnin um mörg málefni
og tók þátt í samstarfi við félög eins og t.d. Áhuga-
hóp um byggingu Náttúrufræðisafns. Umræða og
samstarf hefur verið við IAVCEI Working Group on
Explosive Volcanism um að gerður verði verðlauna-
peningur til minningar um Sigurð Þórarinsson.
Gefin voru út fimm fréttabréf á starfsárinu. Var
fram haldið kynningu á vinnustöðum og verkefnum
jarðvísindamanna og skýrslum um jarðfræðileg mál-
efni, en einkum var félagsstarfið auglýst og tilkynning-
ar um fundi og ráðstefnur bæði innanlands og utan.
Félagið hefur fengið ýmis mál til umsagnar og haft
milligöngu um úrlausn faglegra verkefna.
Jarðfræðafélagið átti tuttugu ára afmæli þ. 16. mars
í vor og hélt Menntamálaráðuneytið móttöku af því
tilefni. Finnska jarðfræðifélagið á hins vegar hundrað
ára afmæli í ár og á fundi norrænna jarðfræðinga í
Helsinki færði Jarðfræðafélag íslands því Kortasögu
íslands að gjöf.
Félagið fór 24. maí 1986 í skoðunarferð á Reykja-
nesskaga og naut mjög góðrar leiðsagnar Jóns Jóns-
sonar jarðfræðings. Ferðin tókst mjög vel, en hefði
mátt vera betur sótt (27 með börnum). Farið var veg-
inn milli hálsa, sem ekki er mjög þekktur fyrir flesta
og í Eldborgir, Hrólfsvík og til baka Grindavíkurveg.
Hrefna Kristmannsdóttir
74