Jökull - 01.12.1986, Side 80
■4ir-
2. mynd í september 1967 var reynt að nota þyrlu í
fyrsta sinn hérlendis til þess að mæla leysingu. Þyrla
Landhelgisgæslunnar flutti félaga í Jöklarannsóknarfé-
laginu til aflestra á stöngum sem voru meðfram lang-
skurðarlínu á Tungnaárjökli. (Ljósm. Ari T. Guð-
mundsson) — Fig. 2. Ablation measurments on
Tunganárjökull in 1967 with the aid of d helicopter
(Icel. Coast Guard).
þar sem Bn er afkoma, P er úrkoma á jöklinum, R er
afrennsli jökulsins og E er uppgufun. Þeirri stærð er
sleppt þar eð hún kemur Iítt við sögu á íslenskum
jöklum. Ekki er heldur gert ráð fyrir að neitt af úr-
komunni sígi til grunnvatnsins.
Tímabilinu 1961 — 1982 var skipt í 4 tímaskeið.
Lengstu mælilínur úr langskurðarmælingunum réðu
skiptingunni (tafla 2). Því næst var jöklinum skipt í 4
svæði eftir korti Helga Björnssonar( 1982 a,b) sem hér seg-
ir:
Ofan jafnvægislínu:
1240 m y.s. til 1500 m y.s.: 28,2 km2
Neðan jafnvægislínu:
1160 m y.s. til 1240 m y.s.: 17,4 km2
870 m y.s. til 1160 m y.s.: 65,8 km2
ca. 690m y.s.til 870m y.s.: 10,0til35,l km2
Flatarmál neðsta svæðisins er haft breytilegt. Á tíma-
bilinu sem um ræðir hopaði Tungnaárjökull rúma tvo
kílómetra, stundum fáeina metra á ári, stundum um
og yfir 200 metra (Sigurjón Rist 1984, Ari T. Guð-
mundsson 1984). Með hliðsjón af mati Sigmundar
Freysteinssonar (1984) er jökullinn talinn vera um
150 km2 að flatarmáli í upphafi tímabilsins. Síðan er
fundið hve langt jökullinn hopaði á hverju hinna fjög-
urra tímaskeiða. Með því að ætla jökuljaðarinn um 15
km langan má auðveldlega reikna hve flatarmálið
minnkaði mikið á hverju tímaskeiði. Stuðst var við
meðalflatarmál á hverju tímaskeiði; meðaltal flatar-
málsins í upphafi þess og flatarmáls í lokin. Með
TAFLA 2 AFRENNSLI OG BÚSKAPUR TUNGNAÁRJÖKULS
(TUNGNAÁRJÖKULL: RUN-OFF AND NETBALANCE)
Árabil Meðalársrennsli Tungnaár (Gl/ár) Jökulrýrnun (Gl/ár) Árleg neikvæð afkoma (Gl/ár) Heildarúrkoma (Gl/ár) P Jökulafrennsli (Gl/ár) R Hluti af meðalársrennsli
(Period) (Mean annual (Volume re- (Annual neg. net (Total precipi- (Glacial run- (Part of mean
'06/1961- discharge) (Gl/a) duction) (Gl) balance) (Gl/a) tation) (Gl) off) (Gl/a) ann. discharge)
'06/1967 '07/1967- 2653 1917 319 1972 647 24,3%
'06/1976 '07/1976- 2834 1599 177 3110 552 19,4%
'06/1979 '07/1979- 2601 468 156 888 452 17,3%
'06/1982 2437 400* 133* 803 400* 16,4%
*ágiskun (estimate)
78