Jökull - 01.12.1986, Síða 90
Mynd 1. Öldufellsjökull — Öldufell
— Axlir. Neðst á myndinni er veitu-
skurður. Myndin ertekin 30.8. 1984.
(Ljósm. Kjartan Jóhannesson)
Hagafellsjökull E. Hop jökulsins síðan 1982 er 60
metrar. Sökum aurs í og á jökulísnum er erfitt að skil-
greina þunnan og hörfandi jökuljaðarinn. Aðalvið-
miðunarmerkið er fastamerkið FAR sem er í mó-
bergshæð rétt austan við Farið. Theódór, sem er land-
mælingamaður, segir: Innmældir punktar EII—O sem
var við jökuljaðar 1982 austan Hagavatns, var settur
út aftur. Núverandi jökuljaðar var mældur inn á
þremur stöðum næst EII—O.
Út í Hagavatn að norðaustan gengur 200 m langur
og 10 til 15 m hár íshamar. Vatnið er grunnt inn við
ísstálið. töluverðar strandlínubreytingar eru orðnar
við Hagavatn. Frá strandlínumörkum 1980 til hausts-
ins 1982 er lækkunin um 4 metrar en frá 1982 til
1985 er ekki hægt að tala um neina Iækkun.
Jökulkrókur, þjófad. Theódór tekur fram: Fönn við-
jaðarinn, sem getið var um haustið 1983 er nú horfin.
HOFSJÖKULL
Sátujökull. Bragi Skúlason tekur fram, að þar eð
aðstaða hjá Lambahraunsjökli gefur vart marktæka
breytingu jökuljaðars, þá á mæli hann einnig vestur
hjá Sátu. Suður af Eyfirðingahólum hefur jökuljaðar
hopað um 13 m á tímabilinu 84.09.09 til 85.09.14.
Jökuljaðar er þar sléttur og hallalítill, greinilegur hop-
jökull.
Lambahraunsjökull. Bragi tekur fram: Eins og und-
anfarin ár er fönn í jökuljaðri 150 til 200 m á breidd.
Nú nær hún 15 m lengra fram en s.l. ár. Ég tel erfitt
að meta, hvort um breytingar sé að ræða á jöklinum.
Nauthagajökull. Leifur Jónsson tekur fram: Nú var
ekki slíkur vatnsagi við jökuljaðar eins og s.l. haust.
Hvergi var nýsnævi og hvergi sýnilegur á jöklinum
snjór frá síðasta vetri.
Múlajökull W. Jökulsporðurinn er nú skriðinn fram
á ölduna sem hann nam við í fyrra. Jökullinn er afar
blakkur og sprunginn, en halli síst meiri en í fyrra.
Múlajökull S. Tveir hryggir eða smá bunkar eru
uppi á jöklinum og virðist halli heldur hafa aukist
þótt sporðurinn mældist aftar en fyrir ári, er hann nú
greinilega á framskriði e.t.v. er framhlaup að byrja.
Hann ýtir leirdyngju á undan sér. Múlarnir eru með
þurrasta móti. Ekið var að Amarfelli.
MÝRDALSJÖKULL
Sólheimajökull W. Varðandi vesturtunguna tekur
Valur Jóhannesson fram á mælingaskýrslum: Fram-
skrið heldur áfram. Jökullinn er brattur. Útfallið und-
an Sólheimajökli er að mestu hér að vestanverðu.
Kvísl kemur meðfram Jökulhaus og fer undir ísvegg-
inn og kemur út vestan mælilínu.
Jökulhaus. Jökull riðlar uppi á Jökulhausi. Varða
sem áður fyrr var miðað við og mælt frá er nú komin
undir ruðning.
Sólheimajökull E. Jökulstálið er þverhnípt. Gamla
endaröndin (hryggurinn) vestan undir jökultungunni
er að fara í kaf. Á hryggnum er gömul mælingavarða,
D4, og merki með koparplötu, jökullinn á eftir 3 m
þangað.
Öldufellsjökull. í bréfi með mælingaskýrslunni tekur
88