Jökull - 01.12.1986, Page 93
t
Minning:
GUÐMUNDUR JÓNASSON
Fœddur ll.júní 1909 — dáinn 5. mars 1985
KVEÐJA FRÁ JÖKLARANNSÓKNAFÉLAGI ISLANDS
Austan af Brúarjökli blasir við slakki í Kverkfjalla-
rana. Á máli jöklafara nefnist skarðið Gusaskarð.
Hinn 3. maí 1951 beindi Guðmundur Jónasson fjalla-
bílstjóri, eða réttara sagt Guðmundur frá Múla (í Lín-
akradal), eins og hann var þá venjulegast nefndur,
snjóbíl sínum Gusa í gegnum þennan slakka á leið að
Bárðarbungu, og miðaði greitt. Guðmundur var að
koma austan af Héraði, en þar hafði hann verið að
flytja fóðurbæti í miklum snjóþyngslum og harðindum
a innstu dalajarðir. Hann var á heimleið til Reykja-
vikur með viðkomu hjá Loftleiðamönnum á Bárðar-
bungu og til að veita þeim aðstoð. Þeir voru að bjarga
skíðaflugvél, sem gist hafði hájökulinn vetrarlangt.
Asamt með Loftleiðamönnum hafði Guðmundur lagt
a ráðin um útbúnað og ferðtilhögun á jöklinum.
Björgunin tókst með ágætum eins og alþjóð veit. Og
betta var ekki eina jöklaferð Guðmundar.
Jökiarannsóknafélag fslands var nýstofnað (nóv.
1950). Guðmundur var stofnfélagi, hann hafði brenn-
andi áhuga á landfræðilegri rannsókn jökla. Síðasta
ferð hans á jökul var 1983, svo að jöklatími eða jökul-
skeið Guðmundar heitins var þriðjungur aldar. Fyrstu
árin var Gusi raunar eini snjóbíll landsins.
Farnar voru hinar alkunnu vor- og haustferðir til
Grímsvatna. Guðmundur fór vítt og breitt um jökul-
inn. Samferðafólkið í snjóbíl Guðmundar fann til
öryggiskenndar. Og þótt farið væri eftir fyrirfram
gerðri áætlun lumaði Guðmundur alltaf á einhverju
óvæntu, jökullinn sjálfur og veður hjálpuðu gjarnan
líka vel til. Hver ferð jók við þekkingu manna á jökl-
um. Guðmundur var slíkur vinnuhestur að furðu
sætti. Hann var afar nýtinn og skopaðist að bruðli.
Ratvísi og gjörhygli einkenndu ferðalög hans á jökl-
um. Eitt lítið dæmi notadrjúgt skal nefnt. Þegar hvít-
grá þoka eða hríðarkóf byrgði alla útsýn var reynt að
aka eftir strikum áttavitans, en til öryggis lét Guð-
mundur gjarnan tvo skíðamenn ganga annað veifið
fyrir framan við bílinn á hægri og vinstri hlið. Hann
Guðmundur Jónasson uppi á bíl-
þaki, skrifar í dagbók sína og nýtur
útsýnis.
91