Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Side 12
Vikublað 4.–6. nóvember 201412 Fréttir Með stera í hurðunum Tollverðir á Seyðisfirði komu upp um sterasmygl með ferjunni Norrænu í október en í bíl sem erlendur karlmaður kom með fundust samtals um 10 þúsund steratöflur og tæplega 130 hylki með steravökva. Efnið hafði verið falið í hurðum bílsins. Maðurinn viðurkenndi að hafa flutt efnið, en RÚV greindi frá því á mánudag að maðurinn væri líklega farinn úr landi, en honum var sleppt eft- ir yfirheyrslur. Bíllinn er þó enn hér á landi. Maðurinn var líklega burðardýr sem fékk greitt fyrir að flytja bílinn hingað. Vill nafnleynd og lokað þinghald Slökkviliðsmaður sem stefnt hefur Malín Brand fréttakonu og Óðni Jónssyni, fyrrverandi fréttastjóra RÚV, fyrir meiðyrði fer fram á að þinghald verði lokað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og að nafni hans verði haldið frá fjöl- miðlaumfjöllun. Maðurinn krefst þess að ummæli RÚV verði dæmd dauð og ómerk og vill fá tvær milljónir króna í bætur vegna um- fjöllunar RÚV. Maðurinn missti vinnuna sem slökkviliðsmaður í kjölfar um- fjöllunar RÚV í janúar 2012. Í fréttinni var fjallað um dóm sem hann hlaut fyrir kynferðisbrot um 10 árum áður. Þar kom fram að maðurinn starfaði sem slökkvi- liðsmaður og að kona sem hann hafði brotið á furðaði sig á því að hann starfaði sem slíkur. Brot falla út af sakavottorði á þremur til fimm árum. Fréttin var sett í samhengi við umfjöllun um kynferðisbrot Karls Vignis Þorsteinssonar, sem Kastljós hafði nýlega fjallað um á þessum tíma, og þykir slökkviliðs- manninum fyrrum það óviðeig- andi og meiðandi. Þá þykir honum einkennilegt að verið sé að grafa upp brot sem hafi átt sér stað fyrir tíu árum síðan. Maðurinn var ekki nafngreindur í fréttum RÚV. Nóg að gera hjá Buster Lögreglan á Selfossi segir að fíkniefnaleitarhundurinn Bust- er hafi verið athafnasamur um liðna helgi. Hann fann meðal annars kannabisefni hjá fjór- um ungmennum og fíkniefni sem gestur á Litla-Hrauni reyndi að koma inn í fangels- ið. Maðurinn var handtekinn á Litla-Hrauni grunaður um að ætla að smygla fíkniefnum. Við leit fundust umbúðir sem hann hafði fest við líkama sinn og í þeim voru töflur og duft. Efnin verða send til rannsóknar- stofu Háskólans til greiningar. Þá var um 50 lítrum af dísilolíu var stolið, um helgina, af Man-vörubifreið sem stóð við Gagnheiði 45 á Selfossi. Við þjófnaðinn skemmdist lokið á tankinum. Skuldar sjóði sem kaupfélagið eignaðist n Tæplega 60 milljóna króna lán á höfuðstöðvum Framsóknar F ramsóknarflokkurinn fékk lánaðar 64 milljónir jap- anskra jena frá Sparisjóði Siglufjarðar í aðdraganda alþingiskosninganna árið 2007, nánar tiltekið í mars. Lán- ið hvílir á öðrum veðrétti á höf- uðstöðvum Framsóknarflokksins við Hverfisgötu en húsið er í eigu eignarhaldsfélagsins Skúlagarðs hf. Lánið stendur nú í rúmum 57 millj- ónum króna og hvílir á eigninni í formi tryggingabréfs. Athygli vekur að tryggingabréfið er vaxtalaust. Það sem vekur sérstaka athygli við lánið er að það kom frá Spari- sjóði Siglufjarðar rétt áður en sjóð- urinn sameinaðist Sparisjóði Skagafjarðar, sem hét Sparisjóður Hólahrepps þar til síðla árs 2004. Sá aðili sem átti og stýrði Sparisjóði Skagafjarðar var Kaupfélag Skag- firðinga, fyrirtæki sem lengi hef- ur verið tengt Framsóknarflokkn- um. Kaupfélagsstjóri þess, Þórólfur Gíslason, sat meðal annars í mið- stjórn flokksins um hríð. Samruni Sparisjóðs Skagafjarðar og Spari- sjóðs Siglufjarðar var samþykktur í ágúst 2007, fimm mánuðum eftir að síðarnefndi sjóðurinn veitti Fram- sóknarflokknum lánið. Eftir sam- eininguna hét sparisjóðurinn AFL og er það nafnið sem kemur fram á tryggingabréfinu. Skuldirnar námu 154 milljónum Í útdrætti úr ársreikningi Fram- sóknarflokksins fyrir árið 2007, sem aðgengilegur er á vef Ríkisendur- skoðunar, kemur fram að skuldir flokksins hafi numið 154 milljón- um króna í lok árs 2007. Lánið frá AFLI var talsverður hluti af þessum heildarlánum. Flokkurinn þurfti á fjármagni að halda á þessu ári þar sem kosningar fóru fram og kostaði rekstur flokksins tæplega 169 millj- ónir króna á þessu ári. Sparisjóður Hólahrepps tengd- ist svo aftur Framsóknarflokknum með ákveðnum hætti eins og rakið hefur verið í tveimur skýrslum sem komið hafa út eftir hrunið 2008. Í tveimur skýrslum Í skýrslu rannsóknarnefndar um fall sparisjóðanna er fjallað um valda- taflið um Sparisjóð Hólahrepps í Skagafirði árið 2004. Til að mynda segir að tveir af helstu stjórnend- um Kaupfélags Skagfirðinga, Sigur- jón Rúnar Rafnsson og Jón Eðvald Friðriksson, hafi beitt sér fyrir því að reka sparisjóðsstjórann, Kristján Hjelm. Þá er einnig fjallað um þess- ar deilur í skýrslunni um Íbúða- lánasjóð og eru upplýsingarn- ar þar töluvert meira afgerandi en í hinni skýrslunni. Deilur þeirra Sigurjóns Rúnars Rafnssonar og Kristjáns Hjelm snerust um 300 milljóna króa innlán sem Íbúða- lánasjóður, sem þá var stýrt af Guð- mundi Bjarnasyni, fyrrverandi ráð- herra Framsóknarflokksins, hafði lagt inn í sparisjóðinn. Kaupfélag Skagfirðinga vildi fá vaxtamuninn af innláninu en Kristján Hjelm var ósammála því. „Átti að reka mig“ Um þetta segir í skýrslunni um Íbúðalánasjóð: ,,Við skýrslutöku rannsóknarnefndarinnar sagði Kristján Hjelm frá því að Sigurjón Rúnar Rafnsson hefði krafðist þess að Fjárvaki fengi hluta af vaxta- muninum sem sparisjóðurinn fékk með því að ávaxta öryggissjóðinn hjá Sparisjóðabankanum. Kristján Hjelm, þáverandi sparisjóðsstjóri, kvaðst hafa þráast við að verða við þessum kröfum og hefði verið lát- inn fara frá sparisjóðnum sumarið 2004 vegna þessa. Kristján Hjelm kvaðst hafa fagnað því að fá svona gott innlán í sparisjóðinn en þegar leið að áramótum hafi komið fram að Fjárvaki vildi fá greidd umboðs- laun fyrir að útvega þetta innlán. Hann kvað allt hafa farið í háa- loft er hann neitaði að verða við kröfunni. „Á endanum beygðum við okkur undir það eins og alltaf. Þá átti að reka mig.“ Hann nefndi einnig atbeina endurskoðanda svo og starfsmanns Íbúðalánasjóðs að þessu leyti. Þá nefndi hann tvo stjórnarmenn í sparisjóðnum sem vitundaraðila að þessu.” Nefndin sem skrifaði um Íbúða- lánasjóð komst að þeirri niðurstöðu að ef tilgangur Íbúðalánasjóðs hef- ur verið að reyna að láta Kaupfélag Skagfirðinga hagnast á viðskiptun- um í gegnum dótturfélag sitt Fjár- vaka þá væri það ámælisvert: ,,Ef Íbúðalánasjóður ætlaði Fjárvaka hlutdeild í ávinningi sparisjóðsins er hér um dulda greiðslu til Fjár- vaka að ræða sem er ámælisvert.“ Lán frá sjóðnum Nokkrum árum síðar lánaði spari- sjóður, sem Sparisjóður Skagafjarð- ar var við það að sameinast, tugi milljóna króna til Framsóknar- flokksins. Ríkisstofnun sem stýrt var af ráðamanni í Framsóknar- flokknum hafði þar áður sett 300 milljóna króna innlán inn í þenn- an litla sparisjóð á Norðurlandi og Kaupfélag Skagfirðinga vildi hagn- ast á því. Eftir sameiningu Spari- sjóðs Skagafjarðar og Sparisjóðs Siglufjarðar var lán Framsóknar- flokksins við nýjan sameinaðan sjóð, AFL. Lánið hvílir enn þá á höf- uðstöðvum flokksins. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Á endanum beygðum við okkur undir það eins og alltaf Lán til Framsóknar frá AFLI Sparisjóður Siglufjarðar lánaði Framsóknarflokknum tugi millj- óna króna árið 2007, skömmu áður en sjóðurinn sameinaðist Sparisjóði Skagafjarðar og úr varð AFL. S ævar Jónsson, kenndur við Le- onard, ekur nú um á glænýj- um hvítum Jaguar Land Rover og hefur vakið athygli víða. Nú hefur komið í ljós að skráður um- ráðamaður jeppans er bílaleigan Armar ehf. Sú bílaleiga hefur fyrst og fremst sérhæft sig í ýmsum vinnuvélum en í seinni tíð farið inn á svið rekstrar- bílaleigu, það er að segja leigu á bíl- um til fyrirtækja en ekki einstaklinga. Því má leiða líkur að því að umrædd- ur Land Rover sé leigður af einhverju fyrirtækja Sævars eða eiginkonu hans Helgu Daníelsdóttur. Samkvæmt skráningu er bíllinn glænýr, kom til landsins um miðjan febrúarmánuð. Heimildir DV herma að leigja á lúx- usbíl á borð við Land Rover kosti um 200 þúsund krónur á mánuði. Sæv- ar var úrskurðaður gjaldþrota í upp- hafi árs 2010 en náði þó áður að færa rekstur skartgripa- og úraverslunar sinnar yfir á nýja kennitölu og gerði kaupmála við eiginkonu sína. DV hefur ítrekað fjallað um Sæv- ar en hann hefur verið ákærður af sérstökum saksóknara fyrir skilasvik. Meint skilasvik snúa að orlofshúsi í Flórída í Bandaríkjunum sem Sævar er gefið að sök að hafa komið undan stuttu áður en hann varð gjaldþrota. Hann afsalaði húsinu til svissneska félagsins ii Luxury International AG fyrir alls tíu Bandaríkjadali, tæplega tólf hundruð krónur en Sævar hefur borið fyrir sig skuldauppgjör við ind- verskan samstarfsmann, Nand Kum- ar Kurup. Indverjinn var einungis stjórnarmaður í fyrirtækinu, ii Lux- ury International AG, sem Sævar seg- ist hafa afsalað eigninni til. Sjálfur var Sævar stjórnarformaður. Kurup er náinn samstarfsmaður Sævars um nokkurt skeið og kemur iðulega upp þegar viðskiptafléttur Sævars eru skoðaðar. Hann er til að mynda skráður eigandi félags- ins IN Import sem er rekstrarfé- lag verslunarinnar Galleria Reykja- vík við Laugaveg. Víða hefur komið fram, meðal annars af orðum fram- kvæmdastjóra Leonard, að búðin sé á vegum Sævars. n hjalmar@dv.is Gjaldþrota á Land Rover Sævar í Leonard keyrir um á leigðum lúxusjeppa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.