Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 14
Vikublað 4.–6. nóvember 201414 Fréttir Viðskipti
Greiðslunni var rift
af þrotabúi Fons
Bankann grunaði að Einar Örn Ólafsson væri byrjaður í viðræðum við Skeljung
E
kkert tilefni þótti til að kæra
Einar Örn Ólafsson, þáver-
andi framkvæmdastjóra
fyrirtækjaráðgjafar Íslands-
banka, til Fjármálaeftirlits-
ins um það leyti sem hann lét af
störfum í bankanum á vormánuð-
um 2009 þar sem hann var ekki
grunaður um lögbrot. Þetta herma
heimildir DV.
Íslandsbanki „hafði grun um“ að
Einar Örn væri byrjaður að ræða við
nýja eigendur olíufélagsins Skelj-
ungs og þótti ekki við hæfi að hann
ynni þar áfram þar sem hagsmun-
ir hans og bankans færu ekki leng-
ur saman, eins og bankinn orðaði
það í tölvupósti til DV eftir að Einar
Örn lét af störfum hjá fyrirtækinu.
Starfslokin bar svo að vegna „trún-
aðarbrests“ líkt og DV greindi frá.
Starfslok Einars Arnar hjá Ís-
landsbanka á vormánuðum 2009
hafa aftur komið til umræðu í fjöl-
miðlum eftir að Morgunblað-
ið greindi frá því í síðustu viku að
hann, og tveir aðrir fyrrverandi
undirmenn hans í fyrirtækjaráð-
gjöf Íslandsbanka, hefðu hagnast
um rúmlega 800 milljónir krónur
hver þegar olíufélagið Skeljungur
og færeyska olíufélagið P/F Magn
voru seld til íslenskra lífeyrissjóða
í gegnum sjóðsstýringarfyrirtæk-
ið Stefni í fyrra fyrir um átta millj-
arða króna. Einar Örn og sam-
starfsmennirnir tveir, Halla Sigrún
Hjartardóttir og Kári Þór Guðjóns-
son, seldu Skeljung út úr Glitni
til hjónanna Svanhildar Nönnu
Vigfús dóttur og Guðmundar Arnar
Þórðarsonar skömmu fyrir efna-
hagshrunið 2008.
Hættu öll í bankanum
Einar Örn hætti svo í bankanum
í lok apríl 2009 og réð sig til Skelj-
ungs einungis nokkrum vikum síð-
ar – Kári Þór hætti svo á sama tíma.
Samkvæmt heimildum DV voru
samskipti Einars Arnar og nýrra
eigenda olíufélagsins hafin á með-
an hann starfaði ennþá í bankan-
um. Slík samskipti eru hins vegar
ekki ólögleg – ekki er ólöglegt að
eiga í viðræðum um að skipta um
starf – og sá bankinn ekki tilefni til
að afhafast neitt vegna þessa þótt
talið hefði verið betra að binda
enda á ráðningarsamband Einars
Arnar og bankans.
Þá var sala Glitnis á Skeljungi
einnig skoðuð sérstaklega innan
bankans en ekkert kom út úr þeirri
skoðun, líkt og DV greindi frá. Þar
með var málið úr sögunni af hálfu
bankans.
Halla Sigrún var hins vegar kærð
til embættis sérstaks saksóknara
og eins til Fjármálaeftirlitsins eftir
að hún lét af störfum í bankanum
árið 2011 og réð sig til fjárfestingar-
bankans Straums. Kæruefnið var
að Halla Sigrún var talin hafa tek-
ið með sér upplýsingar úr bankan-
um þegar hún hætti þar. Kærurnar
voru svo báðar felldar niður hjá
embættunum.
Starfslok Einars Arnar og Höllu
Sigrúnar bar því að með nokk-
uð ólíkum hætti og hafði mál þess
fyrrnefnda ekki sams konar eftir-
mála og hinnar síðarnefndu. Árið
2011 fjárfestu þau í hlutabréfum í
Heddu ehf., sem átti hlutabréf í P/F
Magni og Skeljungi.
Selt fyrir gjaldþrot
Um svipað leyti og Einar Örn hætti
í Íslandsbanka var P/F Magn selt
út úr eignarhaldsfélaginu Fons,
sem þá stefndi í gjaldþrot, til þeirra
Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur og
Guðmundar Þórðarsonar. Fons var
svo úrskurðað gjaldþrota þann 30.
apríl 2009. Í Morgunblaðinu í síð-
ustu viku kom fram að kaupverðið
hefði einungis verið 300 milljón-
ir króna. Líkt og áður segir greiddu
lífeyrissjóðirnir samtals átta millj-
arða króna fyrir bæði fyrirtækin í
fyrra.
Skiptastjóri Fons, Óskar Sig-
urðsson, segir að búið hafi verið
að selja P/F Magn út úr fyrirtækinu
þegar hann tók við því vorið 2009.
„Áður en félagið fór í þrot var búið
að selja þetta.“ Óskar vill ekki stað-
festa kaupverðið sem fram kom í
Morgunblaðinu.
Óskar segir hins vegar aðspurð-
ur að hann hafi látið gera verð-
mat á P/F Magni eftir að Fons varð
gjaldþrota og að greiðslu kaup-
verðsins hefði verið rift vegna
greiðslufyrirkomulagsins. Sá að-
ili sem seldi P/F Magn út úr Fons
gerði því samkomulag um kaup-
verð sem Óskar taldi ekki stand-
ast skoðun. „Við gengum svo frá
nýju samkomulagi við viðkom-
andi […] Greiðslufyrirkomulagi var
rift já. Verðið var bara eðlilegt fyrir
þess tíma mælikvarða,“ segir Óskar
og bætir við að Saga Capital hefði
unnið verðmatið.
Þrotabú Fons endursamdi því
um greiðslu kaupverðsins við þau
Svanhildi Nönnu og Guðmund.
„Það var svo sem ekkert sem var
að þarna nema greiðslufyrirkomu-
lagið.“
Stór hluti í Skeljungsviðskipt-
unum í fyrra var tilkominn vegna
þess mikla munar sem var á kaup-
verði og söluverði P/F Magns. Eft-
ir að hafa komið að sölunni á Skelj-
ungi til þeirra Svanhildar Nönnu
og Guðmundar eignuðust þessir
þrír starfsmenn Íslandsbanka svo
hlutabréf í olíufélögunum tveimur,
Skeljungi og P/F Magni, og högn-
uðust svo verulega á þeim í fyrra. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Áður en félagið
fór í þrot var búið
að selja þetta.
Kaupendurnir
Svanhildur Nanna Vigfús-
dóttir og Guðmundur Örn
Þórðarson keyptu bæði
Skeljung og P/F Magn og
högnuðust vel á því. Það
gerðu einnig þrír starfs-
menn Íslandsbanka.
Högnuðust um
meira en 800
milljónir Einar Örn
Ólafsson og tveir
viðskiptafélagar hans
högnuðust um meira
en 800 milljónir króna
hver á viðskiptum
sínum með Skeljung
og P/F Magn.
5,5 milljarða
viðskiptavild
Viðskiptavild fjölmiðla- og fjar-
skiptafyrirtækisins 365 var rúmlega
5,5 milljarðar króna í lok árs í fyrra
samkvæmt ársreikningi félagsins
sem skilað var til ársreikningaskrár
Ríkisskattstjóra fyrr í október. Við-
skiptavildin er sú sama og í árslok
2012. Ekki er nákvæm útlistun á
hvað felst í þessari viðskiptavild,
óefnislegum eignum, í ársreikningi
félagsins. Viðskiptavildin lækkaði
ekki á milli áranna 2012 og 2013.
Heildareignir 365 voru virði
rúmlega 10 milljarða króna í lok
síðasta árs og er viðskiptavildin því
nokkuð stór hluti þeirra. Á móti
þessum eignum eru skuldir upp á
rúmlega 7,5 milljarða króna. 365
hagnaðist um tæplega 750 milljón-
ir króna í fyrra en það ár seldi fyr-
irtækið meðal annars dreifingar-
fyrirtækið Póstmiðstöðina.
Líkt og komið hefur fram í fjöl-
miðlum var hlutafé 365 aukið um
milljarð í sumar og fór hluti þess í
að greiða upp skuldir en viðskipta-
banki félagsins lengdi í lánum
þess á sama tíma. Um þetta segir
í ársreikningum: „Stjórn félags-
ins hefur tekið ákvörðun um að
leggja til við hluthafafund, að auka
hlutafé félagsins í júní 2014 um
1.000 millj. kr. með útgáfu hlutafjár
í C-flokki og mun hlutafé félagsins
nema 3.921 millj. kr. að því loknu.
Viðskiptabanki félagsins hefur
samþykkt að samhliða muni bank-
inn lengja í lánum félagsins sem
munu fara í 10 ára endurgreiðslu-
ferli og lækka vaxtakjör félagsins,
enda verði um helming af greiðsl-
um vegna hlutafjáraukningarinnar
ráðstafað til niðurgreiðslu á núver-
andi lánum félagsins.“
Hjálmar
fjárfestir í
Kjarnanum
Hjálmar Gíslason, stofnandi og
eigandi fyrirtækisins Datamar-
ket, hefur keypt um þriðjungs-
hlut í vefmiðlinum Kjarnanum.
Kjarninn sendi frá sér tilkynningu
þess efnis um helgina. Hjálmar á
8,1 prósent í félaginu eftir hluta-
fjáraukninguna hjá fjölmiðlinum.
Þá kaupir Vilhjálmur Þorsteins-
son fjárfestir 13,7 prósent í miðl-
inum. Annar nýr hluthafi er Ágúst
Ólafur Ágústsson, fyrrverandi
varaformaður Samfylkingarinnar,
en hann mun eiga rúm fimm pró-
sent í miðlinum. Stofendur Kjarn-
ans, sem unnið hafa á miðlinum
frá því hann var stofnaður fyr-
ir rúmu ári, munu áfram eiga
meirihluta í honum samanlagt.
Í tilkynningunni frá Kjarnan-
um er haft eftir Hjálmari: „Á rétt
rúmu ári hefur þessum hópi tek-
ist að byggja upp öflugan, gagn-
rýninn og greinandi fjölmiðil og
vörumerki sem fólk treystir. Við
sjáum fjölmörg tækifæri til að
byggja á þessum grunni, ekki síst
í þeim breytingum sem bæði fjöl-
miðla- og auglýsingamarkaður-
inn eru nú að ganga í gegnum.“