Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Qupperneq 36
Vikublað 4.–6. nóvember 201436 Fólk
Viðskiptablaðið Forbes gefur út lista á hverju ári með ríkasta og
áhrifamesta fólkinu í heiminum. Listarnir eru nokkrir en þeirra á meðal
er listi yfir valdamestu stjörnur heims. Til þess að komast á listann er
tekið tillit til tekna, hversu mikið viðkomandi hefur unnið og hversu oft
viðkomandi sést í ljósvakamiðlum heimsins. Á listanum eru bæði karl-
menn og kvenmenn en DV tók saman topp 13-konurnar á honum.
Oprah Winfrey
n Raunstaða á lista: 4 n Aldur: 60 ára
n Þénaði: 10 milljarða
Oprah byrjaði árið með að ganga rauða
dregilinn vegna hlutverks síns í kvikmyndinni
Lee Daniels‘ The Butler. Henni hefur einnig
tekist að vekja sjónvarpsstöð sína OWN til lífs
á ný. Stærstur hluti tekna hennar kemur þó enn
frá endursýningum af spjallþætti hennar og
öðrum þáttum sem hún bjó til eins og Dr. Phil,
Rahcael Ray og Dr. Oz. Eins þénar hún milljónir
dollara á ári vegna tímaritsins O Magazine og
útvarpsþáttarins Sirius XM Oprah Radio Show.
Ellen DeGeneres
n Raunstaða á lista: 5 n Aldur: 56 ára
n Þénaði: 8,5 milljarða
Samkvæmt skoðanakönnunum er Ellen einn vinsælasti
spjallþáttastjórnandinn. Henni tókst að setja tvö met á árinu.
Það fyrsta var sjálfsmellan af henni og leikarastjörnum á
Óskarnum en myndinni var endurtvístað oftar en nokkurri
annarri mynd, heimsmet sem Barack Obama Bandaríkjafor-
seti átti á undan. Daginn eftir setti hún svo annað metið en
þátturinn hennar var sýndur beint og hefur áhorf á þáttinn
aldrei verið meira en þá. Fyrir utan vinsældir hennar þá er
framleiðslufyrirtæki hennar að vinna að þáttum fyrir CW- og
NBC-sjónvarpsstöðvarnar.
Sofia Vergara
n Raunstaða lista: 54 n Aldur: 42 ára
n Þénaði: 4,5 milljarða
Þetta er þriðja árið í röð sem Sofia
er hæstlaunaða sjónvarps-
leikkonan. Að stórum hluta er
það viðskiptaviti hennar að
þakka en leikkonan, sem er frá
Kólombíu, hefur gert samninga
um að kynna meðal annars Diet
Pepsi, CoverGirl, Head & Shoulders
og fjarskiptafyrirtækið AT&T. Eins hef-
ur hún tólf ára samning við K-Mart og er að framleiða
nýtt ilmvatn. Eins er hún sögð fá 325 þúsund dollara
fyrir hvern þátt sem hún gerir með Modern Family. Hún
á einnig hlut í fyrirtækinu Latin World Entertainment
og er að opna spænska fréttasíðu.
Gisele
Bundchen
n Raunstaða lista: 56 n Aldur: 34 ára
n Þénaði: 6,9 milljarða
Frægt er þegar ofurfyrirsætan Linda
Evangelista fór ekki fram úr rúminu fyrir
minna en 120 þúsund krónur, í ár hefði ver-
ið hægt að segja að Gisele færi ekki fram
úr rúminu fyrir minna en 1,5 milljónir króna
á dag. Brasilíska módelið þénaði 47 milljónir
dollara í ár, reyndar fyrir skatt, en þessi upphæð gerði hana að hæstlaunaða
módeli ársins áttunda árið í röð. Hún er með samninga við H&M, Chanel
og Carolina Herrera en hún framleiðir líka gúmmísandala með brasilíska
fyrirtækinu Grendene. Fyrir utan það er hún andlit Pantene hárvörulínunnar
og Oral-B í Brasilíu en svo rekur hún sín eigin fyrirtæki líka. Jafnframt er hún
mikill umhverfissinni og situr í ýmsum ráðum og nefndum hvað það varðar.
Jennifer
Lawrence
n Raunstaða á lista: 12 n Aldur: 24 ára n Þénaði: 4,2 milljarða
Hver segir að konur geti ekki verið hasarmyndahetjur? Leikkonan er
ekki orðin 25 ára en hefur sannað að konur geta dregið fólk í bíósalina
rétt eins og karlmenn. Hungurleikarnir eru vinsælasta bókaröðin í
sínum flokki síðan Ljósaskipti kom á markað. Eins lék hún Mystique á
ný í X-Men: Days of Future Past sem var vinsælasta mynd kvik-
myndaraðarinnar til þessa. Óskarsverðlaunin og tilnefningarnar gera
hana einnig vinsælli og eina af valdamestu leikkonum Hollywood.
Taylor Swift
n Raunstaða á lista: 18 n Aldur: 24 ára n Þénaði: 7,8 milljarða
Taylor er aðeins 24 ára en kemst samt sem áður á Forbes-lista
fræga fólksins í fimmta skiptið í ár vegna tekna hennar sem námu
64 milljónum dollara, hennar hæstu tekjur til þessa. Hún hefur
unnið fjölda verðlauna fyrir plötu sína Red en einnig kynnir hún Diet
Coke, Keds og CoverGirl.
Sandra Bullock
n Raunstaða á lista: 36 n Aldur: 50 ára
n Þénaði: 6,2 milljarða
Frumlegar kvikmyndir eru sjaldséðar í Hollywood
þessa dagana innan um allar kvikmyndirnar
byggðar á teiknimyndasögum eða unglingabókum.
Enn sjaldgæfara er að sjá frumlega kvikmynd sem
kostar yfir 100 milljónir dollara að framleiða með
eina konu á skjánum stærstan hluta hennar. En
kvikmyndin Gravity varð afar vinsæl og er Söndru
að stórum hluta að þakka fyrir velgengni hennar.
Myndin vann sjö Óskarsverðlaun og Sandra varð
hæstlaunaða leikkona þessa árs.
Miley Cyrus
n Raunstaða á lista: 17
n Aldur:20 ára
n Þénaði: 4,4 milljarða
Miley hefur ekki komist á Forbes-listann
síðustu fjögur árin en síðast komst hún á
listann þegar hún var enn að gera Hanna
Montana-kvikmyndir og þætti. Nú hins
vegar hefur poppstjarnan fullorðnast
aðeins og virðist hún skapa hneykslan
hvert sem hún snýr sér. Fólk hneykslaðist
mikið mikið yfir „twerk“-dansi hennar á
MVT-tónlistarmyndbandaverðlaununum
en athyglin jók plötusölu. Síðasta plata
hennar, Bangers, hefur náð platínusölu.
Jennifer Lopez
n Raunstaða á lista: 33 n Aldur: 45 ára n Þénaði: 4,5 milljarða
Þegar Jennifer settist í dómarasætið í American Idol virtist hún ætla að taka yfir
skemmtanabransann og toppaði Forbes-listann það árið. Hún er ekki eins hátt á lista
að þessu sinni en er samt sem áður áhrifamikil. Hún var beðin um að taka við dóm-
arasætinu á ný í ár og þótt áhorfið hafi ekki aukist eins mikið og Fox-sjónvarpsstöðin
hafði vonast til, þá gaf þátturinn henni tækifæri á að kynna nýjustu plötu sína, A.K.A.
Eins flutti hún lag heimsmeistaramótsins í fótbolta, We Are One.
Ríkustu og
áhrifamestu
kvenstjörnurnar
Beyoncé
Knowles
n Raunstaða á lista: 1
n Aldur: 33 ára
n Þénaði: 14 milljarða
Beyoncé hefur aldrei
þénað eins mikið á einu
ári og þessu, en það er
tónleikaferð hennar að
þakka. Hún söng á 95
tónleikum og þénaði
rúmar 300 milljónir
króna í hverri borg sem
hún fór í. Síðasta plata
hennar seldist líka
afskaplega vel og
smáskífan Drunk in Love
hefur selst í meira en
milljónum eintaka.
Katy Perry
n Raunstaða á lista: 9
n Aldur: 30 ára
n Þénaði: 4,8 milljarða
Jafnvel þó að hún hafi aðeins haldið
20 tónleika á þessu ári þá er hún
samt ein af þeim hæstlaunuðu í
hennar geira. Hún fær borgað fyrir
að kynna vörur eins og CoverGirl og
Pop Chips en hún er líka með sitt
eigið ilmvatn á markaði. Hún græðir
einnig heilmikið á því að koma fram
á einkasamkomum.
Rihanna Vinsældir Rihönnu eru svo miklar að það mætti segja að hún væri hin fullkomna nútíma poppstjarna. Hvert einasta lag sem hún gefur út verður rosalega vinsælt og hefur hún gefið út lög með stjörnum á borð við Jay-Z og Eminem. Fáar stjörnur nota samfélagsmiðla eins og Twitter og Instagram betur en hún og aðdáendum hennar finnast þeir geta tengst henni á persónulegri máta. Hún er næstvaldamesti notandi samfélagsmiðla á eftir Justin Bieber á Forbes-listanum.
n Raunstaða á lista: 8
n Aldur:26 ára
n Þénaði: 5,8 milljarða
Lady Gaga
n Raunstaða á lista: 19
n Aldur: 28 ára
n Þénaði: 4 milljarða
Árið 2011 þénaði
Lady Gaga tæpa
11 milljarða,
en í ár aðeins
4. Þriðja
plata hennar,
Artpop, hefur
ekki náð sömu vin-
sældum og fyrri plötur hennar, eins
höfðu mjaðmameiðsl hennar áhrif
á tekjurnar. Þrátt fyrir afturkippinn
er hún enn ein af áhrifamestu
poppstjörnum heims.