Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Page 4
IÐJUÞJÁLFINN
fagblað iðjuþjálfa
Pósthólf 4159
124 Reykjavík
Efnisyfirlit
Svipmynd af formanni.......................6
Tengsl milli færni við athafnir daglegs lífs
(ADL) og taugaatferlis hjá sjúklingum sem
fengið hafa heilablóðfall.................10
Viðhorf íslenskra iðjuþjálfa til fagmála ... .20
Tæknileg úrræði fyrir fatlaða
- skjólstæðingsmiðuð nálgun
er forsenda árangurs......................29
European Master of Science in Occupational
Therapy (OT) -after 5 years of planning
a dream came true.........................34
Fréttir af félagsstarfi ..................37
Stjórn IÞÍ
Kristín Sigursveinsdóttir, formaður
Sigríður Pétursdóttir, varaformaður
Oddrún Lilja Birgisdóttir, gjaldkeri
Þóra Leósdóttir, ritari
Ritnefnd:
Erla Björk Sveinbjörnsdóttir
Guðný Katrín Einarsdóttir
Soffía Haraldsdóttir
Þóra Leósdóttir
Ritstjóri:
Þóra Leósdóttir
Prófarkalestur:
Guðbjörg Kr. Amardóttir
Þóra Leósdóttir
Hönnun og umbrot:
Margrét Rósa Sigurðardóttir
Prentun:
Prentmet ehf.
Skeifunni 6,108 Reykjavík
Pökkun og frágangur:
Iðjuþjálfun
Geðdeildar Lsp., Kleppi
Ritnefnd áskilur sér rétt til að stytta texta
og færa mál til betri vegar.
Vitna má í texta blaðsins ef heimildar er getið.
Ritstjórnarspjall
Með hækkandi sól lítur fyrra tölublað Iðju-
þjálfans árið 2000 dagsins ljós. Ýmsar ytri að-
stæður urðu til þess að ekki reyndist unnt að
gefa út blað síðast liðið haust. Ritnefnd hefur í sam-
vinnu við greinarhöfunda unnið að útgáfu þessa vor-
blaðs, lesendum til gagns og gamans.
Meðal efnis í blaðinu má finna síðari grein Elínar Ebbu
Ásmundsdóttur er fjallar um rannsókn á viðhorfum ís-
lenskra iðjuþjálfa til fagmála. Fyrri greinin birtist í 1.
tölublaði 1999, en báðar byggja þær á niðurstöðum
rannsóknarverkefnis til meistaraprófs. Við bregðum
upp svipmynd af formanni Iðjuþjálfafélagsins en á síð-
asta ári tók Kristín Sigursveinsdóttir við starfi for-
manns. Lesendum gefst hér tækifæri til að kynnast lífi
hennar og starfi. Afar fróðleg grein Snæfríðar Þóru Eg-
ilson, um tæknileg úrræði fyrir fatlaða er meðal efnis
og fjallar hún um hvernig skjólstæðingsmiðuð nálgun
nýtist í starfi með þeim er þurfa á hjálpartækjum að
halda. Hagnýt grein fyrir iðjuþjálfa! Sigrún Garðars-
dóttir birtir hér niðurstöður úr rannsóknarverkefni
sínu til meistaraprófs en hún kannaði tengsl milli færni
við athafnir daglegs lífs og taugaatferlis hjá einstak-
lingum sem höfðu fengið heilablóðfall. Að síðustu má
nefna aðsenda grein sem fjallar um stofnun og skipulag
framhaldsnáms til meistaragráðu og er samstarfsverk-
efni nokkurra sjúkra- og iðjuþjálfunarskóla í Evrópu.
Tækifæri sem íslenskir iðjuþjálfar eiga eflaust eftir að
nýta sér í framtíðinni.
Að lokum vill ritnefnd þakka þeim fjölmörgu sem
lögðu hönd á plóginn við útgáfu blaðsins ekki síst
þeim auglýsendum og styrktaraðilum sem komu við
sögu að þessu sinni. Gleðilegt sumar!
ritstjóri
4 IÐJUÞJÁLFINN 1/2000