Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Blaðsíða 23

Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Blaðsíða 23
Hversu vel finnst þér cftirfarandi stadhæfingar Ivsa skoðunum bínum? Starfsgrundvöllur n M % 1 % 2 % 3 % 4 % 5 Ég tel að sérstaða iðjuþjálfiuiar sé sú að notuó er íhlutun scm hvetur skjólstæöingiiui til iðju sem höfðar til hans og hcfur þýðingu fyrir hann. 79 4.6 l 0 1 30 68 Ég tel að iðuþjálfar eigi að taka frumkvæði í verkefnum sem stuðla að vellíðan og heilbrigði. 78 4.6 0 0 3 33 64 Ég tel að iðjuþjálfun grundvallist á atliöfhum sem notaöar eru í meðferð og ná til grunnþátta: vinnu, hvíldar. árevnslu og leiks. 79 4.4 1 4 3 38 54 Mér ftnnst að meðferð iðjuþjálfa eigi að styðjast við óyggjandi kenningar eða hugimndafræði. 78 3.9 1 5 19 49 26 Mín skoöun er sú að iðjuþjálfar eigi aö sérhæfa sig. 79 3.6 0 9 33 47 11 Mér virðist iðjuþjálfar trevsta fremur á aðfcrðafræði eða tækni en ákveðnar kenningar í störfum. 77 3.5 3 11 29 52 5 Ath. Svannöguleikar voru: 1 = mjög ósammála, 2 = frekar ósammála, 3 = hlullaus, 4 = frekar sammála, 5 = mjög sammála. 3. mynd. Viðhorf til fagmála - starfsgrundvöllur. Mvndin sýnir meðaltö! og prósentuhlutföll starfsreynslu eða útskriftarlands iðju- þjálfa og fagmennsku og viðhorfum þeirra til fagmála? Fagmennska Attatíu iðjuþjálfar svöruðu og þýddi það 92% svarhlutfall. Undir n í töflunum á 1,- 6. mynd sem hér fylgja er skráð hversu margir svöruðu viðkomandi breytu og prósentutölur og meðaltöl eru reiknuð út frá þeim sem svöruðu. Fagmennska fyrir utan klíniska vinnu er áhugi fyrir fagmál- um og viðhaldi á fagþekkingu, lestri fagefnis, endurmenntun, að sækja nám- skeið og ráðstefnur eða ýmsa fræðslu, að taka að sér kennslu og fræðslu, að taka nema í verknám, skrifa um fagleg mál- efni og ýmis önnur fræðistörf. Spurt var hversu oft viðkomandi læsi fagtímarit iðjuþjálfa og frá hvaða löndum þau væru, einnig hve oft þeir lesa fagtímarit sem fjalla um heilbrigðismál. • Fagtímarit iðjuþjálfa: 46% iðjuþjálfa sögðust lesa slík rit a.m.k. einu sinni í mánuði, 27% a.m.k. tvisvar í mánuði, 15% tvisvar á ári og 13% a.m.k. einu sinni í viku. • Tímarit sem fjölluðu um heilbrigðis- mál: 35% lásu a.m.k. einu sinni í mán- uði, 33% tvisvar á ári, 23% tvisvar á mánuði og 8% a.m.k. einu sinni í viku. • Erlend iðjuþjálfablöð: 97% iðjuþjálfa lásu erlend iðjuþjálfablöð, 72% lásu iðjuþjálfablöð frá Danmörku, 49% frá Ameríku, 30% frá Svíðþjóð, 21% frá Kanada, 19% frá Noregi, 13% frá Bret- landi og 5% frá Ástralíu. Þeir sem lásu erlend iðjuþjálfablöð frá tveimur lönd- um voru 64% iðjuþjálfa, 30% lásu frá þremur löndum, 14% frá fjórum og 4% frá fimm löndum. • Fagleg virkni: Athuguð var fagleg virkni síðast liðin fimm ár, 54% iðju- þjálfa höfðu skrifað eina eða fleiri greinar í Iðjuþjálfann, fagblað iðjuþjálfa hér á landi. Þeir sem höfðu skrifað greinar í önnur fagtímarit voru 19%, 32% höfðu skrifað greinar í dagblöð á íslandi, 12% í erlend fagtímarit. 33% höfðu haldið námskeið fyrir iðjuþjálfa, 10% komið fram í útvarpi eða sjónvarpi varðandi fagið, 42% haldið erindi á fundum annarra fagstétta, 24% flutt er- indi á ráðstefnum, 10% á erlendum ráðstefnum, 90% tekið þátt í námskeið- um hérlendis, 49% farið á námskeið er- lendis, 72% höfðu verið þátttakendur á ráðstefnum hérlendis og 37% tekið þátt í námskeiðum erlendis. • Faglegur metnaður: Spurt var hvort iðjuþjálfar töldu þörf á sérstaklega skipulögðu BS - námi fyrir iðjuþjálfa sem höfðu stundað nám erlendis og ekki hlotið slíka gráðu. Þeir sem svör- uðu játandi voru 70%, 23% sögðu nei og 7% svöruðu ekki. Þeir sem höfðu áhuga á á slíku námi voru 47%, 25% voru þegar með slíka menntun eða voru að afla sér meiri menntunar, 24% höfðu ekki áhuga og 9% svöruðu ekki. Af þeim sem höfðu diploma sýndu 60% áhuga að taka þátt í slíku námi. Þegar spurt var hvort iðjuþjálfar teldu sig hafa nægilega þekkingu til að hand- leiða iðjuþjálfanema í verknámi fannst 71% að þeir hefðu það, 54% töldu sig hafa þekkingu til að kenna hluta nám- skeiðs undir handleiðslu umsjónakenn- ara, 43% til að stunda rannsóknir tengdar iðjuþjálfun og 18% nægilega þekkingu til að kenna heilt námskeið innan námsbrautar í iðjuþjálfun. Þegar spurt var um áhuga á að sinna þessum skyldum þá voru það 70% sem höfðu áhuga að handleiða nema í verknámi, 58% til að stunda rannsóknir, 38% kenna hluta af námskeiði og 14% að kenna heilt námskeið við námsbrautina í iðjuþjálfun. • Faghollusta: Fjöldi þeirra sem svöruðu, meðaltöl og prósentuhlutföll eru sýnd á 1. mynd. Iðjuþjálfar voru tilbúnir að leggja eitthvað að mörkum til eflingar stéttarinnar og var kennt mikilvægi sí- menntunar í skóla og mættu oftast á fundi í félaginu. Þó svo að iðjuþjálfar tæku ekki afgerandi afstöðu til stað- hæfingarinnar „Ég get vel hugsað mér að starfa við eitthvað annað en iðju- þjálfun í framtíðinni", þá var meirihlut- inn ánægður með framlag sitt til heil- brigðisþjónustunnar og fannst að þeir hefðu tekið þátt í þróun fagsins á ís- landi, þótt þeir litu ekki á sig sem fag- lega leiðtoga. • Fagleg málefni: Sjá 2. mynd. íslenskir IÐJUÞJÁLFINN 1/2000 23

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.