Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Blaðsíða 28
Iðjuþjálfi á FSA
Staða iðjuþjálfa á öldrunarlækningadeild FSA á Kristnesi er laus til umsóknar frá 1. maí.
Um er að ræða 100% starfí dagvinnu en hlutastarf kemur til greina.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi IÞÍ og fjármálaráðherra.
Umsækjandi þarf að hafa Bsc. próf í iöjuþjálfun eða
sambærilegt og löggildingu til þess að starfa sem slík-
ur. Umsækjandi þarf að vera góðurí mannlegum sam-
skiptum og hæfileika til að starfa sjálfstætt.
í skipulagi FSA er gert ráð fyrir yfiriðjuþjálfa á endur-
hæfingardeild og yfiriðjuþjálfa á öldrunarlækningadeild,
ásamt 100% stöðu iðjuþjálfa og tveimur stöðum að-
stoðarmanna iöjuþjálfa á Kristnesi.
Á deildunum á Kristnesi er lögð áhersla á meðferð
sjúklinga með sjúkdóma og áverka á miðtaugakerfi og
stoðkerfi. Unnið erí nánu samstarfi við aðra starfs-
menn deildarinnarí teymi. Endurhæfingardeild hefur
verið starfrækt frá 1991 og öldrunarlækningardeild frá
1995. Forstöðuiöjuþjálfi er með aðsetur á Kristnesi.
I gildi er samstarfssamningur milli FSA og Háskólans
á Akureyri um kennslu, rannsóknir og endurmenntun.
Verkleg kennsla nema í iðjuþjálfun fer fram á Krist-
nesspítala.
Umsóknum skal skila á umsóknareyðublaði FSA en
þau liggja frammi á skrifstofu FSA, einnig er hægt að fá
þau send í tölvupósti. Umsóknarfrestur um stöðuna er
til og með 1. júní. Umsóknir skulu berast til Birgit
Schov, forstöðuiðjuþjálfa, Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri, 601 Akureyri, sem jafnframt veitir nánari upplýs-
ingar um stöðuna í síma 463 1100 eða í netfangi
birgit@fsa.is <mailto:Birgit@fsa.is>
Öllum umsóknum verður svarað.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Áhugahópur um A-ONE matstækið!
Iðjuþjálfar á Landsspítala háskólasjúkrahúsi við Hringbraut, í Fossvogi, á Grensási og Landakoti
hafa stofnað áhugahóp um A-ONE matstækið. Hópurinn hittist á tveggja vikna fresti og ræðirýmislegt
sem lýtur að notkun A-ONE í klínísku starfi og rannsóknum.
Áhugasamir hafi samband viö Sigrúnu Garðarsdóttur iðjuþjálfa á Grensási, s: 525 1677,
netfang: sigrgard@shr.is
Áhugahópurinn vill einnig vekja athygli á nýjum bókum:
Stroke Rehabilitation: A Function-Based Approach.
Ritstjórar Glen Gillen og Ann Burkhardt. Gefin út 1998 af C.V.Mosby.
Guðrún Árnadóttir iöjuþjálfi skrifar 13. kafla bókarinnar:
Impact of Neurobehavioral Deficits on Activities of Daily Living.
Bók þessi er aöallega skrifuö af iöjuþjálfum, en fagmenn annarra heilbrigðisstétta
eru einnig höfundar.
Cognitive an Perceptuai Dysfunction: A Clinical Reasoning Approach to
Evaluation and Intervention. Carolyn Unsworth iðjuþjálfi er ritstjóri. Gefin út 1999 af F.A. Davis.
Guðrún Árnadóttirer höfundur 10. kafla bókarinnar: Evaluation and Intervention with
Complex Perceptual Impairment.
28 IÐJUÞJÁLFINN 1/2000