Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Blaðsíða 12

Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Blaðsíða 12
hafa verið tengsl á milli færni við dagleg- ar athafnir, er notast við hina ýmsu ADL kvarða og útkomur úr ýmsum taugasál- fræðilegum prófum. Rannsókn þessi var hluti af meistaranámi mínu í iðjuþjálfun við Florida Intemational University í Mi- ami, Bandaríkjunum. Hún var gerð á tímabilinu janúar 1997 til janúar 1998. Hér verða kynntar helstu niðurstöður. Efniviður Samtals 42 einstaklingar sem fengið höfðu heilablóðfall tóku þátt í rannsókn- inni. Þeir lögðust inn á Endurhæfingar- og taugalækningadeild SHR og Endur- hæfingardeild LSP frá janúar 1997 til jan- úar 1998. Einstaklingamir, karlar og kon- ur voru allir eldri en 40 ára. Enginn þeirra hafði fengið heilablóðfall áður, eða hafði önnur einkenni frá miðtaugakerfinu. Höf- undur fékk í lið með sér þrjá iðjuþjálfa á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og einn á Land- spítalanum til að safna gögnum um fæmi þessara 42 einstaklinga. Gagnasöfnunin var liður í hefðbundnu ADL-færnimati. Reynsla iðjuþjálfanna, þ.e. tími frá þjálf- unarnámskeiði í notkun A-ONE mæli- tækisins var frá 5 -7 ár. Stutt upprifjun var haldin í notkun A-ONE og stigagjöf þar sem Guðrún Arnadóttur iðjuþjálfi var leiðbeinandi. Aðferðir Undanfarin ár hefur sífellt verið lögð meiri áhersla á notkun áreiðanlegra og réttmætra mælitækja í iðjuþjálfun (Trombly, 1995b). Iðjuþjálfar þurfa að nota bæði réttmæt og áreiðanleg mæli- tæki til að geta lýst fæmi þeirra sem feng- ið hafa heilablóðfall og til að sýna fram á árangur í endurhæfingu (Guðrún Árna- dóttir, 1990; Lillý H. Sverrisdóttir, 1994). Rubio og Van Deusen (1994) fundu ein- ungis eitt mælitæki, þ.e. A-ONE sem mælir sjálfsbjargargetu og taugaatferli samtímis. A-ONE mælitækið er næmt á breytingar á færni einstaklinga og því hentugt bæði til að meta framfarir og til að nota í rannsóknarskyni (Guðrún Áma- dóttir, 1990,1998; Roos og Sageby, 1997). í kenningunni sem liggur að baki A-ONE er gert ráð fyrir að tengsl séu á milli mis- munandi atriða, þ.e.a.s. athafna daglegs lífs, röskunar á taugaatferli og staðsetn- ingar skaða innan miðtaugakerfisins. Við notkun A-ONE er taugaatferli metið út frá fæmi einstaklingsins við athafnir dag- legs lífs. Þannig er til dæmis metið hvort einkennið verkstol (apraxia) komi í veg fyrir að einstaklingur geti burstað tennur eða hvort skert rúm- og afstöðuskyn (spatial relation) komi í veg fyrir að hann geti klætt sig (Guðrún Árnadóttir, 1990, 1998). í rannsókninni var A-ONE notað til að safna upplýsingum. Annars vegar um færni við ADL, það er að klæðast/afklæð- ast, snyrta sig, flytja sig/komast um á dvalarstað, borða og tjá sig og hins vegar röskun á taugaatferli sem dregur úr færni. Einungis tveir kvarðar voru notaðir úr matinu þ.e. Functional Independence Scale (FIS) og Neurobehavioral Specific Impairment Subscale (NSIS). FIS kvarð- inn metur færni einstaklings við ADL og er stigagjöfin frá 4 í 0 stig. Einstaklingur fær 4 stig ef hann er fær um að fram- kvæma alla þættina og 0 stig eru gefin ef hann þarf alla aðstoð eða getur ekkert hjálpað til. NSIS kvarðinn metur magn og tegund röskunar á taugaatferli frá 0 stig- um sem gefur til kynna að einkenni sé ekki fyrir hendi í 4 stig sem gefur til kynna mikla röskun sem kemur í veg fyr- ir framkvæmd við athafnir daglegs lífs. Þessir tveir kvarðar eru tengdir innbyrðis, þ.e. eru í öfugu hlutfalli hvor við annan. Við stigagjöf er tekið mið af hvers konar úrvinnslu einstaklingurinn nýtir og þeirri aðstoð sem nauðsynleg er, t.d. eftirlit, munnleg eða líkamleg aðstoð við fram- kvæmd. Fái einstaklingur háa stigagjöf á NSIS kvarðanum má reikna með lágri stigagjöf á FIS kvarðanum, því röskun á taugaatferli er alltaf metin út frá hversu mikið hún dregur úr framkvæmd við ákveðin verk, eins og t.d. að borða, klæð- ast og fara um (Guðrún Árnadóttir, 1990, 1998). Tölfræðiforritið SPSS var notað til út- reikninga á niðurstöðum. Prósentutölur lýsa lýðeinkennum þátttakenda. Fylgni á milli atriða á FIS og NSIS skalanum var reiknuð með Spearman Rank Order fylgnistuðlinum til að svara fyrri rann- sóknarspumingunni. Marktækni var náð þegar p-gildi var jafnt og eða minna en 0.05. Til að svara seinni rartnsóknarspum- ingunni var mismunur á færni einstak- linga með skaða í vinstra eða hægra heila- hveli reiknaður út með Mann-Whitney U prófi og Chi-Square prófi. Samanburður á milli hópanna var marktækur þegar p- gildi var jafnt og eða minna en 0.05. Lýðeinkenni Lýsandi tölfræði var notuð til að varpa ljósi á lýðeinkenni einstaklinganna. Af þeim 42 sem þátt tóku í rannsókninni voru 18 (42.9%) konur og 24 (51.1%) karl- menn. 34 (81%) þeirra höfðu fengið heila- blóðfall vegna æðastíflu og 8 (19%) vegna blæðingar í heila. Meðalaldur þeirra var 70.64 ár (SF = 9.05 ár) og spannaði 45-87 ár. Tími frá heilablóðfalli að mati var að meðaltali 23.67 dagar (SF = 16.67 dagar) og spannaði 7-74 daga. Þegar rannsóknin fór fram notuðu 24 (57.1%) einstaklingar hjólastól til að fara um á dvalarstað, þrír (7.1%) notuðu göngugrind og 15 (35.7%) þeirra þurftu engin ferlihjálpartæki. Ein- staklingunum var skipt upp í tvo hópa, þ.e. þá sem fengið höfðu heilablóðfall í vinstra heilahveli og þá sem höfðu fengið heilablóðfall í hægra heilahveli. Alls 23 (54.8%) einstaklingar höfðu fengið heilablóðfall í vinstra heilahvel, 20 (87%) vegna æðastíflu og 3 (13%) vegna blæðingar. Þar af voru 10 (43.5%) konur og 13 (56.5%) karlar. Meðalaldur þeirra var 72 ár (SF = 7.62 ár) og spannaði frá 51- 87 ár. Tími frá heilablóðfalli að mati var að meðaltali 23.09 dagar (SF=19) og spannaði 7-74 daga. 13 (56.5%) einstak- lingar notuðu hjólastól til að fara um á dvalarstað, tveir (8.7%) notuðu göngu- grind og átta (34.8%) þeirra þurftu engin ferlihjálpartæki. I hægri heilahvelshópnum voru 19 (45.2%) einstaklingar, 8 (42.1%) konur og 11 (57.9%) karlar. 14 (74%) þeirra höfðu fengið heilablóðfall vegna æðastíflu og 5 (26%) vegna blæðingar. Meðalaldur þeirra var 69 ár (SF = 10.51 ár) og spann- aði 51-87 ár. Tími frá heilablóðfalli að mati var að meðaltali 24.37 dagar (SF=13.82) og spannaði 7-49 daga. í allt 11 (57.9%) einstaklingar notuðu hjólastól til að fara um á dvalarstað, einn (5.3%) not- aði göngugrind og 7 (36.8%) þeirra þurftu engin ferlihjálpartæki. Niðurstöður Þegar niðurstöður úr öllum hópnum (n = 42) eru skoðaðar á FIS kvarðanum kemur í ljós að flestir einstaklinganna þurftu mesta aðstoð við að klæðast, sérstaklega við að fara í buxur (m = 1.30), sokka (m = 1.78) og skó (m = 1.93). Einstaklingarnir þurftu minnsta aðstoð við að borða, sér- staklega við að drekka úr glasi eða bolla (m = 3.78), borða án áhalda (m = 3.73) og 12 IÐJUÞJÁLFINN 1/99

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.