Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Qupperneq 9

Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Qupperneq 9
Kristín ásamt eiginmanni sínum, Hólmkeli Hreinssyni og börnum þeirra Sveini og Huldu. að þjóna. Ég varð mjög upp- rifin þegar kanadíski iðju- þjálfinn Barbara O'Shea heimsótti mig í vinnuna og nefndi að þetta væri einmitt hluti af þróun fagsins á heimsvísu. Ég tel að við eig- um eftir að færa okkur í auknum mæli út af spítölun- um og stofnunum. Ég er líka vongóð um að við færum okkur út í fyrirtækin. Ekki bara til að kenna starfsstell- ingar, þó það verði alltaf hluti af starfinu heldur eirrnig til að aðstoða fólk við breytingar því vinnumarkað- urinn er sífellt að þróast og farið er að gera meiri og meiri kröfur til þess að fólk sé sveigjanlegt. Þannig þurfum við líka að vera. Kröfur um sérhæfingu fara minnkandi. Það er stöðugt verið að breyta í fyrirtækjum, stofnunum og í kerfinu til að aðlagast æ hraðari breytingum í samfélaginu. Ég tel að við getum lagt okkar að mörkum á þessum vettvangi, segir Kristín. - í félaginu munum við halda áfram að skrá betur verklag og annað slíkt. Kannski ekki síst vegna þess að við þurf- um að öðlast þá yfirsýn yfir starfsemina og fagið sem fyrrverandi formaður hefur haft með sína miklu þekkingu á starfsemi félagsins, sögu þess og þróun. Ég vil að við gerum meira af því að kynna iðju- þjálfun, ekki bara meðal almennings heldur líka þar sem ákvarðanir eru teknar um framtíðina. Efla til dæmis samstarf við ráðuneytin og stjórnvöld almennt þannig að við komum okkar sjónarmið- um að. Síðan finnst mér mikilvægt að skapa félaginu fastan ramma. Hafa að- stöðu á ákveðnum stað og gögnin okkar í góðu formi. Búa þarf nefndum félagsins starfsaðstöðu þannig að þær finni fyrir því að verið sé vinna í þessu félagi sem hef- ur ákveðinn ramma og form. Ég tel að þetta skipti sérstak- lega máli þegar félagið stækkar. Við getum ekki treyst á það að fólk sé að vinna sjálfboðavinnu af ein- hverri óendanlegri tryggð við félagið eins og gert hefur verið í gegnum tíðina. Það verður líka að gerast eitthvað faglega spennandi í félaginu auk þess sem það gegnir ábyrgðarhlutverki sem stétt- arfélag þar sem haldið er utan um kjara- og hagsmuna- mál. Félagsstarfið er mjög mikilvægt og fjölbreytt verkefni í gangi á vegum IÞI. Við getum ýmislegt sem félag sem við getum ekki sem einstaklingar. Ég vona að við berum gæfu til að rækta inn- viði félagsins okkar enn betur. Við eigum að hugsa mikið um það sem við getum áorkað og það sem við ætlum að gera. Um leið og það gerist þá opnast okkur ótal möguleikar, segir Kristín að lokum. ES/SH Iðjuþjálfar óskast á geðdeildir Landspítala. Um er aö ræöa fastar stöður og afleysingastöður. Iðjuþjálfar á geðdeildum meta og þjálfa m.a. færni, áhugahvöt, sjálfsbjargargetu og leiðbeina um hvaða úrræði henti besttil iðjueflingar. Meirihluti skjólstæðinga er ungt fólk sem flosnað hefur upp úr skóla eða vinnu sökum geðsjúkdóma Iðjuþjálfar vinna í teymi á móttökudeildum, göngudeild og/eða endurhæfingardeildum og er boðið upp á faghandleiðslu. Störfin eru fjölbreytt og bjóða upp á vinnu með reyndari iðjuþjálfum eða sjálfstætt. Upplagt tækifæri fyrir reynda iðjuþjálfa að víkka sjóndeildarhringinn og kynna sér geðheilsueflingu. Vinna á geðdeildum gefur dýrmæta undirstöðu fyrir sérgreinar innan heil- brigðisþjónustunnar, almenna heilsueflingu og faglegan þroska. Nánari upplýsingar veita: Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðuiðjuþjálfi, s: 560 1795, ebba@rsp.is Sylviane Pétursson yfiriðjuþjálfi geðd. Lsp. v/Eiríksgötu, s: 560 1792, sylviane@rsp.is Fanney Karlsdóttir yfiriðjuþjálfi geðd. Lsp.að Kleppi, s: 560 2580, fbk@rsp.is IÐJUÞJÁLFINN 1/2000 9

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.