Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Side 32

Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Side 32
leika og það hversu auðveldur búnaðurinn er í notkun. Per- sónulegir þættir, eins og hvem- ig viðkomandi lítur á og tekst á við fötlun sína, skipta ætíð máli við mat á tæknibúnaði (Vash,1983; Wright, 1983). Mikilvægt að skjólstæðingur geti prófað þann búnað sem helst kemur til greina því oft á tíðum koma upp ófyrirséð vandamál þegar á reynir (Wright-Ott & Egilson, 1996). Stundum stendur búnaðurinn ekki undir væntingum og al- gengt er að lausn á einum vanda leiði til annars. Tilvísun, réttmæting Staðfesting, endurmat, viðhald, viðgerðir,... Marki náð Velja fræðilega nálgun Meta árangur Greina hæfni umhverfi Hrinda áætlun i framkvæmd Meta hvort og hvaða tæknibúnaður henti þörfum og leikni skjólstæðings að samkomulagi um að hvaða árangri skuli stefnt og móta áætlun 5. þrep. Komast að samkomu- lagi um að hvaða árangurs- marki skuli stefnt og móta áætlun Hér horfir iðjuþjálfinn, skjól- stæðingur og aðrir, sem að málinu koma, til framtíðar og ábyrgð hlutaðeigandi að- ila er skilgreind, þ.e. hver á að gera hvað, hvenær og hvernig. Gagnkvæmt traust þarf að ríkja milli iðjuþjálfa, skjólstæð- ings og annarra samstarfsaðila og tryggja ber að allir hafi greinargóðar upplýsing- ar undir höndum. Ef niðurstaða 4. þreps var sú að mæla með tilteknum tæknibún- aði, til að taka á færnivanda skjólstæð- ings, eru möguleikar til fjármögnunar kannaðir. Algengt er að Tryggingastofn- un ríkisins greiði búnað að hluta til eða fullu samkvæmt ákveðnum viðmiðunar- reglum. I sérhæfðum málum getur reynst vel að láta greinargerð fylgja um- sókn þar sem þær upplýsingar, sem aflað var á fyrri þrepum, eru settar fram á skýran hátt. 6. þrep. Hrinda áætlun í framkvæmd Þá er loks komið að því að panta tækja- búnað, stilla hann og aðlaga að skjól- stæðingi. Mikilvægt er að skjólstæðingur læri vel á búnaðinn og fái þjálfun í notk- un hans. Einnig þarf að aðlaga umhverf- ið, kenna þeim sem að málinu koma á notkun búnaðarins og veita þeim aðhald og þjálfun ef nauðsyn krefur. 7. þrep. Meta árangur Við lok hringsins er metið hvort árangur sé ásættanlegur að mati skjólstæðings. Ef marki er náð þarf að skilgreina eftirfylgd, hugsanlegt endurmat, viðhald og við- Fearing Law & Clark, 1997. Þýtt og staðfært af Kristjönu Fenger, Margréti Sigurðardóttur og Sigriöi Jónsdóttur, 1998 og Snæfriöi Þóru Egilson, 1999. 3. mynd. Þjónustuferli skjólstæöinga sem nýta tæknileg úrræöi gerðarþjónustu. Ef markinu er ekki náð og vandamálið enn til staðar þarf að leggja upp í annan hring. Ekki þó þannig að reynt sé finna hjólið upp að nýju held- ur ber að nýta fyrri reynslu til að takast á við vandann, skilgreina hvað fór úrskeið- is og af hverju. Árangur af tækniúrræð- um ber ætíð að meta út frá þörfum skjól- stæðings. Það skiptir litlu að allt líti vel út ef hann er ekki ánægður. Ef úrræðin skila takmörkuðum árangri er stundum tilhneiging til að álykta að allt sé ómögu- legt, búnaðurinn henti ekki eða notand- inn ráði ekki við hann. Öllu er ýtt til hlið- ar og byrjað að nýju frá grunni, eða fólk gefst upp og telur fullreynt. Það er mikil- vægt að iðjuþjálfar temji sér gagnrýnin vinnubrögð með eftirtaldar spurningar að leiðarljósi • afhverju? • hvemig? • á hvaða hátt? • og hvað svo? í sumum tilvikum hentar tækið ein- faldlega ekki. I öðrum tilvikum er ástæð- an allsendis óháð tækinu, svo sem slæm vinnustaða, óheppilegar ytri aðstæður eða vanlíðan sem tengist tækjabúnaðin- um ekki á neinn hátt. Stundum eru málin unnin á óheppilegum tímapunkti og ályktað út frá því. Það þykir fullreynt og ekki reynt aftur (Wright-Ott & Egilson, 1996). Oftar en ekki er ástæðunnar að leita í umhverfinu. Sérfræðingarnir (þar með talið iðjuþjálfar) hafa tekið ákvörð- un, en fólkið, sem á að fylgja málum eft- ir, er ekki nægilega sannfært. Það hefur ekki verið haft með í ráðum né heldur búið svo um hnútana að það hafi for- sendur og tíma til að taka verkið að sér. Dæmi um þetta eru illa mönnuð sambýli, þar sem mannaskipti eru tíð og svo mikil orka fer í frumþarfirnar að starfsfólk get- ur illa bætt á sig aukavinnu, jafnvel til- hugsunin ein er þungbær. Þegar málum er þannig háttað er vart hægt að búast við því að starfsfólk geti séð af tíma og orku til að fylgja flóknum hjálpartækja- málum eftir án samráðs og stuðnings. Oft er mun auðveldara að útvega tækjabúnað en að finna leiðir til að nýta hann og hrinda þeim í framkvæmd. Enn og aftur þarf því að beina augunum frá tækninni sem slíkri en leggja áherslu á ferlið í heild sinni. Öflug teymisvinna allra sem að máli koma er nauðsynleg. Því miður er of algengt að hver hugsi um sitt svið og heildarsýn vanti. Dæmisaga: Ungur maður með hreyfihömlun fær nýjan hjólastól sem hann situr mjög vel í. Hins vegar er stóllinn það hár að hann kemst ekki inn í bílinn sem flytur manninn frá sambýli yfir á vinnustað og það breiður að hann kemst ekki inn um þröngu dyrnar 32 IÐJUÞJÁLFINN 1/2000

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.