Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Side 37

Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Side 37
Fréttir af félagsstarfi Þann 22. maí síöast liðinn var haldinn félagsfundur á vegum stjórnar IÞÍ. Vel mætt var á þennan vorfund félagsins, alls 30 manns. Þaö er áralöng hefö fyrir því aö halda almenna fé- lagsfundi vor og haust og eru þeir yfirleitt vel sóttir. Aö þessu sinni hittust félagsmenn í fund- arsal BHM aö Lágmúla 7. Stjórn stiklaði á stóru Formaður greindi frá helstu þáttum í starfi félagsins í vetur. Má þar nefna vel heppnaðan fulltrúafund þar sem fulltrú- ar frá nefndum innan IÞÍ mættu. Þetta var í þriðja sinn sem slíkur fundur er haldinn. Stjórn kynnti fulltrúum nefnda tillögur að gerð handbókar og er sú vinna nú langt á veg komin. Markmiðið með handbók er að skrá niður verklag og vinnureglur í því fjölbreytta félagsstarfi sem fram fer. Formaður greindi einnig frá húsnæðiskaupum en IÞÍ hefur nú keypt hluta í húsfélaginu Ásbrú í Lág- múla. Þetta gerir félaginu kleift að koma upp skrifstofuaðstöðu með tilheyrandi tækjum og tólum. Stjórn væntir þess að nefndir og hópar innan félagsins nýti húsnæðið vel. Vefsíða félagsins hefur verið endurbætt og er enn í mótun en Kristín formaður hefur haft um- sjón með því verki. Það er ljóst að vefsíðan felur í sér fjölbreytta möguleika til upplýsingamiðlunar og ýmsar vangaveltur eru uppi. Góð umræða varð á félagsfundinum um þau mál. Kynnt var hugmynd um að halda ráðstefnu árið 2001, þá verður félagið 25 ára og fyrstu iðjuþjálfarnir munu útskrifast frá Iðju- þjálfunarbraut Háskól- ans á Akureyri. Undir- búningsvinna fer af stað innan skamms og er það samstarfsverkefni félags- ins og Iðjuþjálfunar- brautar. Iðjuþjálfar eru hvattir til þess að koma hug- myndum á framfæri og á ráð stefnu sem þessari gefst tækifæri til að kynna verkefni og rannsóknir sem bæði starfandi iðjuþjálfar og nemar í faginu eru að vinna að. Af starfi nefnda Þeir fulltrúar nefnda sem voru á fundin- um greindu frá helstu tíðindum í starfi. Kjaranefnd sótti kjararáðstefnu BHM sem haldin var nú á dögunum. Þar var farið yfir niðurstöður könnunar um stofnanasamninga sem gerðir voru í kjöl- far síðustu kjarasamninga. Samningar eru lausir nú i haust og á ráðstefnunni var unnið í hópum þar sem fólk ræddi áherslur og væntingar varðandi næstu kjarasamninga. Kjaranefnd áréttar að trúnaðarmenn eigi að vera á vinnustöð- um iðjuþjálfa en það er afar misjafnt hvernig þeim málum er háttað í dag. Rit- nefnd greindi frá ástæðum þess að útgáfa Iðjuþjálfans hefur tafist nokkuð, en blað- ið er á lokastigi í vinnslu og verður í póstkössum félagsmanna innan tíðar. Til- kynnt var um stofnun áhugahóps um A- ONE matsækið og notkun þess í starfi iðjuþjálfa, en nánari upplýsingar er að finna hér í blaðinu. Greint var frá verk- Iðjuþjálfafélag íslands efni um þýð- ingu og stað- færingu matstsækja á íslensku, en að því standa tveir nemend- ur, kennari við Iðjuþjálfunarbraut og nokkrir iðjuþjálfar þeirra stofnana er sinna þjónustru við börn og ungmenni. Fengist hafa styrkir til verkefnisins og vinna við þýðingu er þegar hafin og mun verkefnið verða kynnt frekar í faghópi IÞÍ um iðjuþjálfun barna. Af öðrum málum Ingibjörg Jónsdóttir iðjuþjálfi sagði frá norrænni ráðstefnu um setstöður sem er í undirbúningi og ráðgert er að halda hana hér á landi haustið 2001. Ráðstefnan verður auglýst nánar síðar. Að formleg- um fundi loknum bauð stjórn fundar- mönnum að þiggja veitingar í nýju skrif- stofuhúsnæði félagsins sem er á 2. hæð í Lágmúlanum. Þar er nú góð vinnu- og fundaraðstaða fyrir stjórn, nefndir og starfshópa IÞÍ. Unnið er að því að flytja starfsemi og gögn félagsins að mestu leyti í þetta nýja húsnæði. ÞL Iðjuj^jáJfaféJa^sJaads Li|mú1a7, ÍCS' Reyi:javík. Porthotf SS45, 12$ Riyltjavik. S.mar: SSS188S og 4Í2 2SCS • Á döfiimi í starfi félagsin3 • Fréttir af starfi rtefnda og starfshópa • Nýtt af nálirmi frá vinnustDSum iðjuþjálfa • Onnurmál í lok fundar býður stjóm upp á veitingar í nýju skrifstofuhúsnæði á 2. hæð . Fjölmennum á þennan vorfund félagsins Stjóm Iðjuþjálfaíélags íslands M*w 2000 IÞÍ er flutt í eigið húsnæði í fcbzúailokfluUi It>í gögníínog vezaldlegaz eiguz í nýja skzifstofu í Láímúla 7. Þetta ei xúmgóð skiifstofa á 2. haeð. Félagið áhelminginnaíbexbezginu í móti BHM. Unnið ex að þvi aðkomaþax upp góðxi aðstöðufyxix staxfsemi félagsins. Siminnex: 5881885. Saga IÞI Hope Knútssonhefuxboðisttil aðhalda áfxamað vexa söguxitaxi félagsins, þ.e. safna samanþví efni.bæði texta og rryndum, semtengistiðji4»jálfunog iðji4»jálfumá íslandi. Félagax exubeðnix að vexa duglegix að látahana vita afþví sem bixtisti fjölmiðlum Hetfangiðhennax exhopeful@islandia.is Spennandi smnarnámskeiá 4 vegum fræðslunefndar lestu meira... Ráðstefna í Reykjavík 15Uj nordlc Qeroutoloalcal CouQreas XV. rtardiake: Kongreas I Qerontologi June 4 - 7,2000 > vinnuhóps frtf 262 K) IÐJUÞJÁLFINN 1/2000 37

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.