Feykir - 26.11.2009, Page 38
5$ jóbMiJíMJ *•**■
*★ + ■ *
★ *
Jólamarkaöur í Hrímnishöll
Lifandi jólamarkaöur
S/grún (til hægri) selur afurðir sínar á sýningunni Sveitasælu.
Heilmikill jólamarkaóur
verður haldinn í
Hnmnishöllinni Varmalæk
laugardaginn 12. desember
á milii kl. 13 og 18. Að
markaðnum standa Sigrún
Indriðadóttir og Jónheiður
Sigurðardóttir og er stefnt
að þvf að bjóða upp á
handverk og matvöru auk
þess sem börnin geta
skoðað húsdýr og hægt
verður að hlýða á tónlist.
Hugmyndin að markaðn-
um kviknaði að sögn Sigrúnar
Indriðadóttur þegar hún fór á
fúnd sem vaxtarsamningurinn
stóð fyrir á Blönduósi. -Á
fundinum var verið að tala um
að reyna að finna einhvern
vettvang þar sem handverksfólk
í sýslunum þremur á Norður-
landi vestra gæti komið saman
og selt sínar vörur. Var í þvi
samhengi verið að tala um að
sniðugt gæti verið að hafa þetta
jólamarkaði, einn í hverri sýslu
og síðan gæti handverksfólk
farið á milli markaða. Ég tók svo
sem ekkert illa í hugmyndina
en sagðist ekki hafa tíma til
þess að standa í þessu. Það var
síðan á heimleiðinni sem við
Jónheiður fórum að tala saman
og hugsa þetta aðeins betur,
útskýrir Sigrún. -Það hafði
verið talað um að kannski væri
sniðugt að nota reiðhallirnar
í þessu samhengi og mér datt
þá í hug að Hrímnishöllin gæti
verið sniðugur staður. Ég orðaði
þetta við Magneu sem tók vel í
hugmyndina. í framhaldinu
ræddi ég þetta við ýmsa og allir
tóku hugmyndinni vel. Þetta
varð þvi svona eins og snjóbolti
sem vindur upp á sig og á
endanum var ég búin að tala við
of marga og það var ekki aftur
snúið, bætir hún við og hlær.
Frá því vinnan í kringum
markaðinn fór af stað hefúr
Sigrún fengið þær Maríu
Guðmundsdóttur og Önnu
Jóhannesdóttur í lið með sér en
þær eru allar handverkskonur
í Skagafirði. -Það má segja að
þessar konur hafi stutt mig með
ráð og dáð og nú er svo komið
að ég vil meina að þær standi að
þessu með mér.
Aðspurð segir Sigrún að
á markaðnum megi selja allt
sem heitið geti handverk og
handunnar vörur auk þess sem
leyfilegt verði að selja matvöru
svo sem kartöflur, blóm og
grænmeti auk matvöru sem
unni er í vottuðum eldhúsum.
En hvað með geymsludót?
-Það er ekki það sem við sáum
fyrir okkur á þessum markaði
enda er nóg af mörkuðum þar
sem leyft er að selja þess lags
dót.
Auk þess að versla nú og eða
skoða úrvalið á markaðnum
verður boðið upp á dýrahorn
með húsdýrum fýrir börnin auk
þess sem gert er ráð fýrir tón-
listaratriðum og að líkindum
verður hægt að kaupa veitingar
á staðnum. Erþví tilvalið að gera
hlé á jólaundirbúningi heima
við og skella sér í sveitina.
Þeir sem hafa áhuga á að vera
með bás geta hringt í Sigrúnu í
síma 453 8883 eða 823 2441 eða
Maríu í síma 453 8227 eða 865
8227 fyrir þriðjudagskvöldið 8.
desember.
( jÓLAMYNDAGÁTA FEYKIS
Verðlaunamyndagáta
Sendu réttu lausnina (myndatextann) á feykii@feykir.is fyrir
30. desember og þú gætir unnið tveggja mánaða áskrift af Feyki.
Myndagátan að þessu sinni er byggð upp á myndum sem flestar eru fengnar að láni frá frú Google og segir frá því sem allir ættu að
þekkja. Atriugið að ekki er gerður greinarmunur á stómm eða litlum stöfum né grönnum eða breiðum sérhljóðum. Lausnir skulu sendar á
feykir@feykir.is fyrir 30. desember. Þrír heppnir fá tveggja mánaða áskrift að Feyki alveg fritt!!