Tölvumál - 01.01.2007, Blaðsíða 6
58% eru mjög eða nokkuð sammála þeirri fullyrðingu að
vefsetur sveitarfélaga efli beint lýðræði og auki þátttöku
íbúa í ákvörðunartöku. 54% svarenda telja að vefsetur
minnki kostnað við að veita þjónustu sveitarfélaga.
Svarendur telja helst að vefsetur sveitarfélaga bæti
þjónustu við íbúa. 94% svarenda eru ýmist mjög eða
nokkuð sammála þeirri fullyrðingu að vefsetur bæti
þjónustu við íbúa. 86% eru sammála því að vefsetur
sveitarfélaga bæti upplýsingamiðlun.
Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að starfsmenn
sveitarfélaga muni á árinu 2007 einbeita sér að því að
bæta aðgengi að þeim upplýsingum og þjónustu sem
þegar er að finna á vefjum þeirra. 95% svarenda segja
að það verði unnið að því verkefni á árinu 2007. Næstum
því jafnmargir segja að bætt verði við miðlun frétta og
upplýsinga á árinu 2007. 86% þátttakenda telja það
verði á verkefnalista næsta árs að auka gagnvirka
þjónustu. Um 75% aðspurðra búast við því að aðgengi
sjónskertra á vefjum sveitarfélaga verði bætt.
Vaxandi áhersla á lokaða þjónustuvefi sveitarfélaga
Sífellt algengara er að fyrirtæki og stofnanir bjóði
upp á lokuð vefsvæði með persónulegri þjónustu.
Sveitarfélögin ætla sér ekki að verða eftirbátar í
þeirri þróun ef eitthvað er að marka þessa könnun.
84% svarenda frá sveitarfélögum sem hafa sett upp
slíkt vefsvæði segja eflingu þessarar þjónustu verða á
verkefnalista ársins 2007.
Öryggismál á Netinu hafa verið mjög til umræðu
undanfarin misseri. 77% þátttakenda eru sammála því
að aukið öryggi vefsetra sveitarfélaga verði á döfinni á
árinu 2007. Þessi áhersla helst sjálfsagt í hendur við
aukna áherslu á lokuð vefsvæði.
Í könnuninni kemur fram mikill áhugi á því að efla
möguleika íbúa til þess að hafa áhrif á gang mála í
sínu sveitarfélagi í gegnum Netið. Þannig telja 71%
þátttakenda að efling beins lýðræðis í gegnum vefsetur
sveitarfélaga verði verkefni ársins 2007. Aðeins fleiri
eða 80% telja að bætt þjónusta við nýbúa verði á
verkefnalistanum.
Ekki mikil áhersla á að lækka kostnað
Það vekur athygli að einungis 56% telja að lægri
kostnaður verði forgangsatriði á verkefnalista ársins
2007. Menn hafa því metnað til að auka við gagnvirka
þjónustu, bæta upplýsingamiðlun og aðgengi þó að
margir telji vefsetur sveitarfélaga ekki vera tæki til að
lækka kostnað í rekstri. Þetta er sett fram með þeim
fyrirvara að mjög margir svarendur í könnuninni koma
frá stóru sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu
en hins vegar virðist vanta upp á svörun frá smærri
sveitarfélögum á landsbyggðinni.
Mörg ljón í veginum
Sveitastjórnarmenn og starfsmenn sveitarfélaga
virðast hafa mikinn metnað og væntingar hvað varðar
þjónustu á Netinu. Helmingur svarenda telur þó að
helsta hindrunin fyrir því að sveitarfélag nýti sér rafræna
stjórnsýslu í ríkari mæli sé fjárskortur og að önnur
verkefni sveitarfélagsins séu brýnni. Litlu færri eða 40%
svarenda telja að það vanti hæft starfsfólk til að sinna
tækni- og vefmálum. Einnig nefna margir áhugaleysi
stjórnenda og sveitarfélaga um málaflokkinn.
Atriði eins og öryggismál, flækjustig veftækninnar og
vangaveltur um ávinning rafrænnar stjórnsýslu eru
léttvægari hindranir í hugum þátttakenda.
Mynd 3a: Áherslur í rekstri og þróun sveitarfélaga á árinu 2007
Mynd 3b: Áherslur í rekstri og þróun sveitarfélaga á árinu 2007
Mynd 4a: Helstu hindranir fyrir því að sveitarfélög nýti sér rafræna stjórnsýslu í ríkari mæli
Mynd 4b: Helstu hindranir fyrir því að sveitarfélög nýti sér rafræna stjórnsýslu í ríkari mæli
6 | T Ö LV U M Á L
2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:316