Tölvumál - 01.01.2007, Blaðsíða 12

Tölvumál - 01.01.2007, Blaðsíða 12
1 2 | T Ö LV U M Á L Það er mjög lítil efnisskörun á milli fyrrgreindra fl okka en tilgangur þeirra er þó svipaður, að þjóna almenningi. Og eitt eiga allir upplýsingavefi r sameiginlegt; gegnsæi í leiðakerfi er lykilatriði ef vefurinn á að teljast vera góður. Það verður að vera auðvelt að fi nna þær upplýsingar sem eru á vefnum því ef svo er ekki þá gagnast þær lítið. Þörf á heildstæðri yfi rferð á vef ráðuneytanna Ráðuneytin standa sig mjög vel í fréttamiðlun af því sem beint heyrir undir þau og á vef stjórnarráðsins birtast nýjustu fréttir allra ráðuneyta. Undirstofnanir ráðuneytanna sleppa við þessa yfi rferð sökum plássleysis. Ráðuneytin standa sig almennt þokkalega hvað varðar notendavænleika vefja sinna og njóta þess þar að samræmt útlit og viðmót hefur verið hannað fyrir þau öll en þeim síðan gefi n sveigjanleiki innan þess ramma. Leiðakerfi (valmyndir) eru að miklu leyti samræmd á milli ráðuneyta og oftast þokkalega uppbyggð þó þau megi víða bæta. T.d. er óþarfl ega mikil áhersla lögð á ráðuneytin sjálf og viðkomandi ráðherra sem er algeng sjálfhverfa í uppbyggingu valmynda. Þetta eru upplýsingar sem tiltölulega fáir hafa áhuga á og ættu því að hafa minna vægi en upplýsingar um þjónustu sem margir nota. Einnig er oft óskýrt hvað er á bakvið hvaða tengla í leiðakerfum og þau verða því ekki nægilega gegnsæ. Sum svæði undirfl okka virðast ekki hafa verið uppfærð lengi og það vantar greinilega töluvert á að allar upplýsingar séu auðfundnar á vef ráðuneytanna. Sem dæmi má nefna að mér tókst ekki að fi nna á vef menntamálaráðuneytis lista yfi r alla framhaldsskóla á Íslandi. Hvort hann er til þar veit ég ekki, notendavænir? Í þessum pistli verður fjallað um hvort vefi r íslenskra stofnana séu notendavænir fyrir almenna vefgesti. Umfjöllunarefnið er víðfeðmt og því verður stiklað á stóru en þó án alhæfi nga þar sem vefi rnir eru afskaplega misgóðir hvað notendavænleika varðar. Til að forða pistlinum frá því að leggja undir sig allt blaðið ákvað undirritaður að setja mörkin við ráðuneyti, sveitarfélög, heilbrigðisþjónustu og skóla. Eru vefi r íslenskra stofnana hugsanlega er hann á einhverjum öðrum vef tengdum ráðuneytinu en þá ætti að vera hægt að fi nna þann vef frá vef menntamálaráðuneytis. Mér sýnist vera þörf á heildstæðri yfi rferð á vefsvæðum ráðuneytanna út frá aðgengi vefgesta að öllu því efni sem þar er en útlit og framsetning eru fín eins og þau eru í dag. Ágætir vefi r sveitarfélaga Sveitarfélögin eru með jafn misjafna vefi eins og þau eru misjöfn sjálf, að stærð og eðli. Þar er engin samræming í gangi heldur hefur hvert þeirra farið sínar eigin leiðir með misgóðum árangri. Það segir sig sjálft að mun erfi ðara er að skipuleggja vefi stórra sveitarfélaga heldur en smærri. Almennt má segja að þessir vefi r sinni hlutverki sínu ágætlega, á fl estum þeirra er mikið af efni, skipulag er oft ágætt og efnið því aðgengilegt vefgestum. Dæmi um góðan vef sveitarfélags er vefur Ísafjarðarbæjar, http:// www.isafjordur.is/. Leiðakerfi ð er miðað við notandann en ekki stjórnsýsluna og það efni sem fólk hefur áhuga á er sett í öndvegi og tiltölulega auðfundið. Fullt af fréttum, kynningar á uppákomum og margt annað áhugavert er aðgengilegt af forsíðu vefsins. Eini gallinn við hann er að allt þetta efni á forsíðunni myndar hálfgert kraðak sem væri hægt að laga með lítilli fyrirhöfn. Svipað kraðak og oft verra hrjáir marga aðra sveitarfélagavefi . Vefur Reykjavíkurborgar er alveg í sérfl okki hvað varðar umfang en hefur að mörgu leyti heppnast vel þrátt fyrir það og eru þar margar góðar lausnir á erfi ðum þáttum. Enda greinilega langmest lagt í hann af fé og vinnu. Margir vefi r sveitarfélaga hafa greinilega versnað frá því þeir voru settir í loftið. Líklega er því um að kenna að þegar þeir voru skipulagðir í upphafi var ekki gert ráð fyrir efni sem síðar kom í ljós að þyrfti að vera á vefnum. Efninu hefur því verið klastrað inn á vefi nn og sjaldnast með góðum árangri. Þetta algenga fyrirbæri undirstrikar tvennt. Annars vegar nauðsyn þess að hugsa vefi nn út frá því að geta bætt við hann efni í leiðakerfi og hins vegar að vefumsjónarkerfi þurfa að vera þannig uppbyggð að auðvelt sé fyrir vefstjóra að bæta við atriðum í leiðakerfi . Útlit vefja í heilbrigðisgeiranum barn síns tíma Þegar komið er að heilbrigðisgeiranum þá verður fjölbreytnin í vefhönnun nær yfi rþyrmandi, alveg frá því að enginn vefur er til staðar upp í fína vefi . Það er því enn erfi ðara að alhæfa um þetta svið en vefi sveitarfélagana. Vefur landlæknis, http://www.landlaeknir.is/ er nokkuð lýsandi fyrir ástandið almennt í þessum geira. Hann er fullur af áhugaverðum upplýsingum sem eru settar fram í leiðakerfi sem er sprungið undan efninu. Útlitið er barn síns 2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:3212

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.