Tölvumál - 01.01.2007, Blaðsíða 19
Stórsýning tileinkuð tækniþróun
og þekkingariðnaði
Tækni og vit 2007 haldin í mars
Stórsýningin Tækni og vit 2007, fagsýning
tækni- og þekkingariðnaðarins, verður haldin
í Fífunni í Kópavogi dagana 8. – 11. mars
næstkomandi. Lögð verður áhersla á að kynna
það sem hátækni- og þekkingarfyrirtæki hafa
upp á að bjóða og skapa umræðu um þennan
mikilvæga vaxtarbrodd í íslensku athafnalífi .
Meðal þátttakenda á sýningunni Tækni og vit 2007 verða tölvu- og
upplýsingatæknifyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki, fyrirtæki í líf- og lyfjatækni og
mörg öfl ugustu iðntæknifyrirtæki landsins. Að auki munu menntastofnanir,
ráðgjafa- og fjármálafyrirtæki og ýmsar opinberar stofnanir koma að
sýningunni, sem verður án efa einn stærsti viðburður sem haldinn hefur verið
í íslenska hátækni- og þekkingarsamfélaginu.
„Nú þegar er búið að bóka rúman helming sýningarsvæðisins og því ljóst að
mikill hugur er í tæknifyrirtækjum um þessar mundir. Við sjáum þetta jafnframt
greinilega í upplýsingatæknigeiranum, þar sem íslensk fyrirtæki verða sífellt
öfl ugri í útfl utningi íslensks hugbúnaðar, í fjarskiptum, þar sem ný tækni mun
valda straumhvörfum á næstu misserum, í líftækni og lyfjaþróun, þar sem
Íslendingar standa framarlega og í iðnþróun, sem verður sífellt tæknivæddari
hér á landi. Krafturinn sem býr í þessum ört vaxandi tæknigreinum mun
verða í aðalhlutverki á Tækni og vit 2007,“ segir Margit Elva Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri sýningarinnar.
Í tengslum við sýninguna verður UT-dagurinn haldinn í Salnum 8. mars,
en það eru forsætis- og fjármálaráðuneyti sem standa að honum. Á UT-
deginum verður fjallað sérstaklega um rafræna þjónustu, rafræn skilríki og
rafræn innkaup í þjónustu opinberra stofnana. Þetta er í annað sinn sem
UT-dagurinn er haldinn, en sá fyrsti var 24. janúar á þessu ári og vakti mikla
athygli.
Jafnframt verða ýmsir aðrir viðburðir haldnir í tengslum við Tækni og vit
2007 og má þar nefna að framsæknustu fyrirtækjum landsins verða veittar
viðurkenningar fyrir framlag sitt til tækniþróunar og atvinnusköpunar á
viðburði sem haldinn verður í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni 9. mars.
Vefur sýningarinnar, www.taekniogvit.is, hefur nú verið opnaður. Þar má fi nna
allar nánari upplýsingar um framkvæmd Tækni og vits 2007.
AP sýningar standa að Tækni og vit 2007 í samstarfi við forsætisráðuneyti,
fjármálaráðuneyti, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, Samtök iðnaðarins,
Háskólann í Reykjavík, Orkuveitu Reykjavíkur og TM Software. AP sýningar,
sem eru í eigu AP almannatengsla, stóðu m.a. að sýningunni Verk og vit, sem
haldin var í mars 2006.
T Ö LV U M Á L | 1 9
2.tbl-31.arg.indd 16.1.2007, 22:3519