Tölvumál - 01.01.2007, Blaðsíða 14

Tölvumál - 01.01.2007, Blaðsíða 14
1 4 | T Ö LV U M Á L Á Reykjavik.is er að finna á einum stað allar upplýsingar um stjórnkerfi og stjórnsýslu borgarnnar og segja þau Andrea og Hreinn að aðaláherslan sé á þjónustu borgarinnar og aðgengi að henni. ,,Talsverð áhersla hefur einnig verið lögð á það að efla Rafræna Reykjavík, sem er sá hluti vefsins sem snýr að rafrænni þjónustu við íbúa borgarinnar. Markmiðið er að þróa og bæta enn frekar rafræna þjónustu á vefnum,” segir Andrea. Segir hún að Rafræn Reykjavík sé einkasvæði eða ,,mínar síður” fyrir íbúa á vef Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að sækja um þjónustu borgarinnar. Jafnframt er möguleiki á gagnvirkum samskiptum milli íbúa og borgaryfirvalda. Allar upplýsingar á einum stað Í dag eru fjórar algagnvirkar umsóknir í Rafrænu Reykjavík; umsóknir um grunnskóla, tónlistarskóla, frístundaheimili, og sumarstörf hjá Vinnumiðlun ungs fólks. Að sögn Andreu geta íbúar þannig skráð sig inn í Rafrænu Reykjavík, fyllt út þessar umsóknir rafrænt og fylgst með afgreiðslu þeirra. ,,Með því að fara inn á ,,mínar síður” getur viðkomandi séð stöðu sinna mála og fylgst með skilaboðum sem eru send út þegar staða umsóknar breytist. Til viðbótar við þessar algagnvirku umóknir eru ellefu hálfrafrænar umsóknir og fjöldi umsókna sem hægt er að nálgast á .pdf formi. Innan tíðar mun fríður flokkur umsókna bætast í hópinn en gera má ráð fyrir að umsóknir í gáttinni séu um 50 á hverjum tíma.” Bein samskipti við borgarkerfið Að sögn þeirra Andreu og Hreins verða á næstunni skoðaðir möguleikar á því að bjóða upp á rafræna greiðslumöguleika í Rafrænu Reykjavík fyrir umsóknir og þjónustu á vegum borgarinnar. ,,Vinna verður einnig sett af segja Andrea Ósk Jónsdóttir, verkefnisstjóri Rafrænnar Reykjavíkur, og Hreinn Hreinsson, vefstjóri Reykjavik.is Nýr vefur Reykjavíkurborgar, Reykjavik.is, var opnaður í maí á þessu ári eftir viðamikið undirbúningsferli. Með nýjum vef er verið að leggja niður marga vefi sem svið og stofnanir borgarinnar hafa haldið úti á eigin vegum sem reyndist notendum erfitt og heildarmynd borgarinnar á vefnum var mjög óskýr. Á vefnum í dag er lögð áhersla á einfalda og skýra framsetningu upplýsinga þannig að notendur finni fljótt það sem þeir leita að án þess að þurfa að hafa þekkingu á borgarkerfinu. Tölvumál ræddi við þau Andreu Ósk Jónsdóttur, verkefnisstjóra á þjónustu- og rekstrarsviði Reykjavíkurborgar, og Hrein Hreinsson, vefstjóra Reykjavik.is. stað varðandi innleiðingu á kerfi sem tekur á móti og heldur utan um erindi, fyrirspurnir, ábendingar og kærur, sem þýðir að íbúar geta haft bein samskipti við borgarkerfið í gegnum Rafræna Reykjavík og fylgt erindum sínum eftir,” segir Andrea. Á næsta ári verður einnig sett upp þjónustugátt fyrir fyrirtæki í Rafrænni Reykjavík og verður unnið áfram að því að koma sem flestum umsóknum í alrafrænan umsóknarferil. Hún segir að annað spennandi verkefni sem sé að fara í gang sé innleiðing á rafrænu auðkenni og rafrænni undirskrift. ,,Líklega verður stuðst við nýja lausn sem hefur verið í þróun hjá ríkinu og bönkunum sem gengur út á það að nota örgjörva í debetkorti sem auðkennislykil. Með þessu er öryggi upplýsinga tryggt og hægt er að bjóða upp á öflugri rafræna þjónustu.” Jákvæð viðbrögð íbúa við Rafrænni Reykjavík Samkvæmt Andreu og Hreini munu fyrrgreind verkefni efla Rafræna Reykjavík og vefinn talsvert og opna nýja möguleika hvað rafræna þjónustu Reykjavíkurborgar við íbúann varðar. ,,Við stefnum svo auðvitað að því að halda áfram að vinna að bættri þjónustu við íbúa borgarinnar á vefnum. Við gerðum könnun í sumar á þjónustu Rafrænnar Reykjavíkur og fengum mjög jákvæð viðbrögð. Fólki fannst yfir höfuð auðvelt að nota þjónustugáttina og var ánægt með þjónustuna. Þetta er mikil hvatning fyrir okkur að halda áfram að efla og bæta rafræna þjónustu við íbúa borgarinnar. Vefurinn hefur einnig farið í gegnum notendaprófun og var niðurstaðan mjög jákvæð þannig að við teljum að við séum komin á gott skrið þó að verkið sé þess eðlis að það verði alltaf að vera í stöðugri þróun,” segir Hreinn að lokum. Einföld og skýr Reykjavík.is Viðtal: Halldór Jón Garðarsson 2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:3214

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.