Tölvumál - 01.01.2007, Blaðsíða 41
T Ö LV U M Á L | 4 1
Þegar vara og þjónusta hins opinbera er fl utt yfi r á vefi nn eiga sér stað
breytingar á formi, innihaldi og móttöku vöru og þjónustu,” segir Haukur,
,,Google vefurinn hefur eina línu að notendaviðmóti. Aðaleinkenni hans,
einfaldleikinn, ætti að vera einkenni allra vefja. Hraði er annað einkenni.
Birting opinberra upplýsinga á vef hefur myndað þrýsting á stofnanir að birta
gögn sín án tafar og að hraða vinnslu þeirra í takt við þarfi r nútímans og
vefsins. Ekkert einstakt formeinkenni vefsins er eins mikilvægt og í takt við
þarfi r samtímans og hraði.”
Gæði og öryggi opinberra gagna og þjónustu hefur batnað með tilkomu
vefsins að mati Hauks. Þetta rekur hann til nýrra vinnsluaðferða sem og
aukinnar notkunnar staðlaðra upplýsinga úr upplýsingakerfum.
Innihald vefþjónustu
Að mati Hauks þá eru upplýsingalögin frá 1996 að mestu framkvæmd með
fulltingi nettækninnar. ,,Sennilega gengur hið opinbera lengra í upplýsingagjöf
en höfunda þeirra óraði fyrir. Þannig er verið að birta upplýsingar sem
stofnunum hins opinbera ber ekki skylda til að birta en menning vefsins og
samtíminn kallar á að séu tiltæk. Þar má nefna netföng og jafnvel símanúmer
starfsmanna, embættismanna og kjörinna fulltrúa sem gerir auðvelt fyrir
almenning að eiga samskipti við fulltrúa sína og koma viðhorfum sínum á
framfæri.”
Mótttaka Internetþjónustu
Haukur telur að hér á landi hafi lítið verið hugað að þeim grundvallarmun
sem er á stjórnsýslu sem framkvæmd er nú eftir tilkomu Netsins og þeirri
sem var tíðkuð fyrir tilkomu þess. ,,Í eldra afgreiðsluformi annaðist opinber
starfsmaður afgreiðslu eða innti þjónustu af hendi. Hann þekkti oft út í hörgul
fl ókin lög og reglugerðir sem málið varðaði og gat veitt borgurunum ráðgjöf
og leiðbeint þeim við útfyllingu erfi ðra eyðublaða og við annað sem þurfti.
Þegar þjónusta hins opinbera á vef er afhent á heimilum og á vinnustöðum
er engin sérfræðingur til staðar. Notandinn kann að hafa aðgang að
leiðbeiningasíðum þegar best lætur. Þessi breytta aðstaða borgaranna hefur
bæði kosti og galla.”
Hin góðu áhrif vefsins
Mikið hefur verið ritað um lýðræðisáhrif vefsins. Haukur telur að fl estir séu nú
sammála um að formbreytingin sjálf valdi þeim. ,,Einfaldleikinn, gagnsæið,
Haukur Arnþórsson stundar nám í opinberri stjórnsýslu
við Háskóla Íslands og skrifar doktorsritgerð um áhrif
upplýsingatækni á stjórnsýslu. Hann segir að rannsóknir
sínar og annarra bendi til þess að Netið styrki lýðræðisleg
gildi í samfélaginu á fjölmargan hátt og að þar leiki vefi r
stjórnsýslunnar stórt hlutverk. Hann ráðleggur sveitarfélögum
og öðrum stofnunum hins opinbera að leggja áherslu á
einfaldleika, hraða, gæði og öryggi í þjónustu sinni á Netinu.
Viðtal: Jón Heiðar Þorsteinsson
styrkja lýðræðið
Vefi r
stjórnsýslunnar
2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:3441