Tölvumál - 01.01.2007, Qupperneq 32
3 2 | T Ö LV U M Á L
Mynd 9. Umhverfi rafrænna skilríkja á Íslandi.
Mynd 8. Vottunarslóð á rafrænu skilríki undir núverandi rót ríkisins
skilgreiningu á kröfum fyrir Íslandsrót sem lagðar verða til grundvallar stefnu
rótarinnar.
Tækninefnd um dreifilyklaskipulag
Stofnuð hefur verið tækninefnd undir Fagstaðlaráði í upplýsingatækni
(FUT) hjá Staðlaráði Íslands. Tækninefndin verður óháður vettvangur fyrir
hagsmunaðila rafrænna skilríkja á Íslandi.
Mynd 9 sýnir umhverfi rafrænna skilríkja á Íslandi í þremur lögum. Ysta lagið
markast af alþjóðlega umhverfinu þar sem staðlar og reglugerðir eru í gildi,
m.a. tilskipanir Evrópuráðsins. Í öðru lagi markast umhverfið af innlendum
lagaramma þar sem lög um rafrænar undirskriftir vega þyngst. Innan þess
er þriðja lagið, dreifilyklaskipulag, þar sem útbúnar eru íslenskar kröfur og
verklagsreglur byggðar á alþjóðlegum stöðlum og viðmiðunum og innlendum
lögum. Starf tækninefndarinnar er að ná sátt um útfærslu á uppbyggingu
íslenska umhverfisins. Tækninefndin verður vettvangur þar sem allir
áhugasamir fá tækifæri til að koma skoðunum sínum og athugasemdum á
framfæri.
Lokaorð
Veigamikill þáttur í því að neytendur treysti skilríkjum og sjái sér hag í að
nýta þau í samskiptum við ríki og banka er að atvinnulífið í heild taki þátt í
uppbyggingu kerfisins með hvers kyns þjónustu sem byggist á skilríkjunum.
Þá þarf að sjá til þess að góð sátt sé um umhverfi rafrænna skilríkja og
skilgreiningar á dreifilyklaskipulagi fyrir íslenskt atvinnulíf og almenning.
Þess vegna hafa bankar og ríki lagt áherslu á opnar skilgreiningar á
dreifilyklaskipulagi og á tæknilegum þáttum sem skipta máli fyrir samvirkni.
Samtök banka og verðbréfafyrirtækja og fjármálaráðuneytið hafa sett fram
eftirfarandi áherslur í samstarfsverkefninu:
• Samræma, eins og kostur er, notkun rafrænna skilríkja í lausnum sem
boðnar eru.
• Einfalda grunngerð sem notendur og lausnaraðilar þurfa að byggja á.
• Fjarlægja tæknilegar og viðskiptalegar hindranir á útbreiðslu rafrænna
skilríkja.
Almenn útbreiðsla rafrænna skilríkja mun fela í sér byltingu í samskiptum á
Netinu. Með þeim mun skapast traust þar sem notendur munu með öruggum
hætti geta auðkennt sig gagnvart öðrum og skrifað rafrænt undir skjöl og
skuldbindingar. Samhliða almennri útbreiðslu mun framboð á rafrænni
þjónustu margfaldast sem skilar sér í auknu hagræði fyrir þjónustuveitendur,
fyrirtæki og almenning.
�������������������������������������������������� �������������������������������������
ok.is ���������������� �����������
�
���� ��������������
��
� �
� �
�� �
���
���
���
���
��
���
���
��
����
��
���
�������
��
������ ������� �� ��������
�����
����
��
��
��
��
��
�
��
���
�
��
��
��
�� ��
��
���
��
��
��
��
��
��
�
�������������������
�
������������������
2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:3432