Tölvumál - 01.01.2007, Side 44
4 4 | T Ö LV U M Á L
Rafræn innritun auðveldar yfi rsýn yfi r umsóknir um skóla og námsbrautir
þar sem fyrr verður ljóst hverjar óskir nemenda eru og því auðveldara að
bregðast við þeim. Þjónusta við nemendur verður betri og nýir möguleikar
opnast til að tengja innritunina námsráðgjöf og öðrum þáttum skólastarfs
grunnskóla í samvinnu við framhaldsskóla.
Umsóknatímabil núverandi skólaárs stóð yfi r í þrjár vikur vorið 2006.
Nemendur sóttu um á Netinu og gátu breytt umsóknum sínum allt fram á
síðasta dag. Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt skólum
til vara en einnig námsbraut og önnur þjónusta sem er í boði í einstökum
skólum.
Einkunnir berast milli gagnagrunna
Vegna rafrænna einkunnaskila er ferlið þannig að einkunnir berast með
umsóknum úr gagnagrunni sem fl estir grunnskólar nota (mentor.is) í
gagnagrunn framhaldsskóla (inna.is). Einkunnir samræmdra prófa fl ytjast
einnig milli gagnagrunna (namsmat.is).
Með því að námsferill berst með umsóknum
nemenda verður afgreiðsla umsókna auðveldari
og fl jótlegri. Skólar geta meðal annars raðað í
hópa og séð betur fyrir nýtingu skólahúsnæðis.
Þær umsóknir sem skólar geta ekki orðið við eru
sendar rafrænt í skóla sem nemandi velur til vara.
Ef varaskóli er ekki í boði, annaðhvort vegna þess
að nemandi valdi hann ekki eða vegna þess að allir
skólar sem voru valdir höfnuðu umsókn, berst hún
rafrænt til menntamálaráðuneytis. Þaðan er hún
send áfram til skóla sem kerfi ð fi nnur laus pláss í
og fyrirsjáanlegt er að geti tekið við nemandanum.
Að umsóknarferli loknu geta nemendur farið inn í
kerfi ð og fengið upplýsingar um afgreiðslu umsókna
sinna en einnig fá þeir bréf frá viðkomandi skóla með
tilkynningu um skólavist.
Vefl ykill til að komast inn í kerfi ð
Vefl yklar til að komast inn í innritunarkerfi ð voru
Rafræn innritun
síðastliðið vor tengdir kennitölum og afhentir 10. bekkingum í grunnskólum
en einnig var hægt að fá þá senda með tölvupósti. Forráðamenn nemenda,
skólar og nemendur fengu bréf frá menntamálaráðuneyti með upplýsingum
og leiðbeiningum um notkun vefl ykla og útfyllingu umsókna.
Til að sækja um var hægt að nýta allar tölvur með netaðgangi, til dæmis í
grunn- og framhaldsskólum en einnig á heimilum. Þeir umsækjendur sem
ekki voru að ljúka grunnskóla sóttu um vefl ykil á menntagatt.is, ýmist í
gegnum umsóknarvefi nn eða með tölvupósti. Leiðbeiningar voru á vefnum
og hægt var að komast í samtímaspjall við umsjónarfólk á Netinu til að fá
nánari upplýsingar.
Áfram í þróun
Innritunarferlið var fyrst notað vorið 2005 og að fenginni reynslu var það
talsvert lagað síðasta vor. Nú þegar er hafi nn undirbúningur við áframhaldandi
þróun kerfi sins og endurbótum fyrir innritun í framhaldsskóla vorið 2007.
Nemendur notuðu tölvur heima eða í skólunum og
fengu vefl ykil sem tengdur var kennitölu.
Jóna Pálsdóttur,
Deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu í framhaldsskóla
Rafræn innritun í framhaldsskóla hefur verið að þróast undanfarin tvö ár og er ljóst að haldið
verður áfram á þeirri braut. Síðastliðið vor sóttu nálægt 8.000 nemendur um framhaldsskóla
í gegnum skólavef menntamálaráðuneytis, menntagatt.is. Umsóknirnar bárust beint til
upplýsingakerfa framhaldsskóla ásamt einkunnum.
Rafræn innritun í framhaldsskóla fór fram á
skólavef menntamálaráðuneytis, menntagatt.is
2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:3444