Tölvumál - 01.10.2012, Qupperneq 2
RitstjóRnaRpistill
Ásrún Matthíasdóttir, ritstjóri Tölvumála
Ágæti lesandi
Þema Tölvumála í ár er tölvuleikir og fengum við fjölbreyttar og spennandi greinar í blaðið
að vanda. Tölvuleikjaiðnaðurinn er gífurlega umfangs- og áhrifamikill. Fyrirtæki framleiða
tæki til spilunar sem og hugbúnaðinn sjálfan, leikina, og samkeppnin er mikil. Sum fyrirtæki
hafa sérhæft sig í tækjunum á meðan önnur framleiða aðeins leiki og svo eru það risarnir
sem framleiða hvoru tveggja. Ekki má gleyma dreifingu og markaðssetningu, þar sem
mikið er í húfi og margir um hituna. Mikil þróun hefur átt sér stað síðan Pac-Man var og hét
og notendahópurinn hefur einnig breyst mikið. Undanfarna áratugi hafa tölvuleikir spilað
sífellt stærra hlutverk í tómstundaiðkun almennings, ekki bara barna og unglinga, heldur
einnig fullorðinna og jafnvel komið í staðin fyrir aðra tómstundaiðkun, sem var vinsæl áður
fyrr. Tölvuleikir bjóða upp á spennandi atburði og þátttöku spilarans og virðast sífellt vaxa
að vinsældum.
Í mínum huga getur spilun tölvuleikja verið bæði gagn og gaman og getur spilun þeirra
aukið samvinnu, leyst streitu og spennu úr læðingi og örvað einbeitingu. En á sama tíma
getur mikil spilun haft neikvæð áhrif og aukið tilfinningalega- og félagslega einangrun og
heltekið einstaklinginn. Margir hafa áhyggjur af ofspilun unglinga á meðan aðrir leita leiða
til að auka notkun tölvuleikja í uppfræðslu og menntun og enn aðrir hafa lifibrauð sitt af því
að spila tölvuleiki. Flestir leikir reyna á hugann, geta verið fræðandi og með mikið
skemmtanagildi, en það er eins og með margt annað, ofnotkun er ekki af hinu góða. Eins
og í kvikmyndaheiminum og skemmtanaiðnaðinum almennt þá geta tölvuleikir verið bæði
góðir og slæmir og því haft misjöfn áhrif.
Það er algengur misskilningur að það séu aðallega börn og unglingar, og þá sérstaklega
strákar, sem spili tölvuleiki. Raunveruleikinn er sá að meðalaldur þeirra sem spila tölvuleiki
er vel yfir þrítugt og kvenfólk spilar leikina ekki síður en karlar. Með tilkomu snjallsíma og
spjaldtölva má ætla að spilun einfaldari leikja hafi aukist til muna og meðalaldur spilara
hækki enn.
Í blaðinu er m.a. fjallað um tölvuleikjaiðnaðinn, rannsóknir og þróun á aðferðum við gerð
tölvuleikja og sögu og þróun þeirra. Menntun skiptir miklu máli í að efla tölvuleikjaiðnaðinn
í landinu og eru í blaðinu t.d. settar fram hugmyndir um kennslu í forritun í grunnskólum til
að efla áhuga ungmenna á tæknigreinum sem geta eflt þennan iðnað.
Að þessu sinni eru nokkrar greinar á ensku í blaðinu, eins og í síðasta tölublaði. Stefna
ritnefndar er að reyna hverju sinni að laða að hugmyndir sem flestra, hvort sem þær eru
settar fram á íslensku eða ekki. Ritnefnd félagsins sér um vefútgáfuna ásamt prentútgáfu
Tölvumála og liggur mikil vinna að baki við að finna áhugaverðar greinar, prófarkalesa og
setja upp þannig að vel fari. Allir sem áhuga hafa á tölvumálum geta sent inn greinar á
ritstjóra Tölvumála á asrun@hr.is. Þeir sem ekki komu greinum að í þessu blaði er bent á
útgáfu okkar á netinu en þar birtum við greinar á fimmtudögum kl. 12:00. Þar er ekkert
þema í gangi, áhugaverðar greinar um allt sem tengist upplýsingatækninni eru alltaf
velkomnar. Sjá nánar á síðu félagsins www.sky.is.
Tímaritið Tölvumál
fagtímarit um upplýsingatækni.
Tölvumál hafa verið gefin út frá
árinu 1976 af Ský.
prentvinnsla
Litlaprent
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ásrún Matthíasdóttir
aðrir í ritstjórn:
Ágúst Valgeirsson
Ása Björk Stefánsdóttir
Jón Harry Óskarsson
Júlía Pálmadóttir Sighvats
Sigurður Jónsson
Þorfinnur Skúlason
Skýrslutæknifélag Íslands,
Ský, er félag einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana á sviði
upplýsingatækni.
stjórn ský:
Sigrún Gunnarsdóttir, formaður
Ragnheiður Magnúsdóttir
Guðjón Karl Arnarson
Hjörtur Grétarsson
Guðmundur Arnar Þórðarson
Sigurður Friðrik Pétursson
Ólafur Tr. Þorsteinsson
Þorvarður Kári Ólafsson
Framkvæmdastjóri ský:
Arnheiður Guðmundsdóttir
aðsetur:
Engjateigi 9, 105 Reykjavík
Sími: 553 2460
www.sky.is / sky@sky.is
Óheimilt er að afrita á nokkurn
hátt efni blaðsins að hluta eða
í heild nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritstjórnar.
Blaðið er gefið út í 1.200 eintökum.
Áskrift er innifalin í félagsaðild að Ský
2