Tölvumál - 01.10.2012, Blaðsíða 46
46
Mikil aðsókn á viðurði Ský hefur verið góð hvatning fyrir
metnaðarfulla starfsemi félagsins. Svo virðist sem meðbyr og
góðvilji með Ský sé í upplýsingatæknigeiranum meðal þeirra sem
koma að eða starfa í UT málum. Það átta sig ekki allir á að félagið
er óháð félagasamtök rekin án hagnaðarmarkmiða (e. non-profit)
og hjá því starfar einungis einn starfsmaður. Undirbúningur
viðburða, fundarstjórn og fyrirlestrar er allt unnið í sjálfboðavinnu
og kemur alltaf jafn skemmtilega á óvart hve vel fólk tekur í taka
þátt í að viðburðir verði að veruleika. Óeigingjarnt starf ritnefndar
og faghópa félagsins heldur starfinu á lofti og einnig hefur stjórn
Ský á að skipa mjög hugmyndaríkum einstaklingum sem gefa
mikið af sér. Án félagsmanna væri engin starfsemi en félögum
hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu misseri.
Tveir faghópar hafa tekið til starfa á árinu og stendur til að stofna
1-2 til viðbótar áður en vetri lýkur. Faghópur um vefstjórnun sem
var stofnaður fyrir nokkrum árum hafði lognast útaf en í vor var
ákveðið að endurlífga hann og hefur starfsemi hópsins blómstrað
síðan hann tók aftur til starfa. Faghópur um rekstur tölvukerfa var
stofnaður seinnipart síðasta vetrar og þar erum við að fylla inn í gat
sem vantaði í starfið sem er vettvangur fyrir kerfisstjóra og aðra
sem koma að rekstri vélasala og tölvukerfa. Einn faghópur hefur
haft litla sem enga starfsemi frá árinu 2009 sem er UT-konur og nú
er ljóst að ekki er áhugi fyrir að halda honum áfram og hefur hann
því verið lagður formlega niður.
Vefsíðan okkar, www.sky.is hefur tekið stakkaskiptum síðustu
mánuði og eftir að vefútgáfa Tölvumála birtist þar á forsíðunni
hefur umferð á hana aukist tölvuvert. Á síðunni er hægt að setja inn
ummæli við greinar og deila á samskiptamiðlunum. Einnig hefur
verið leitast við að halda Twitter umræðu á gangandi á forsíðunni á
meðan á viðburðum stendur og er nú alltaf sett upp #merki fyrir
hvern viðburð svo auðvelt er að fylgjast með. Ljósmyndum frá
viðburðum er hlaðið beint inn á Facebook síðu Ský og þaðan yfir á
Twitter og er þetta skemmtileg viðbót við starfsemina.
Ský hefur síðustu ár tekið lítinn þátt í erlendu samstarfi en rétt er þó
að nefna að félagið er aðili að þremur erlendum samtökum í
upplýsingatæknigeiranum og reynir að nýta þau sambönd þegar
hægt er. Þessi félög eru IFIP (International Federation of Information
Processing) og þar eru nokkrir Íslendingar sem taka þátt í starfi
hópa innan samtakanna. Tengiliður Ský er Anna Kristjánsdóttir og
einnig hefur Marta Lárusdóttir verið virk í IFIP. Önnur samtökin eru
EFMI (European Federation for Medical Informatics) en faghópurinn
Fókus tilnefnir tengilið Ský við EFMI sem nú er Arna Harðardóttir.
Ský stóð fyrir EFMI STC2010 ráðstefnu í samstarfi við EFMI árið
2010 sem tókst gífurlega vel og gaman var að taka þátt í. Að
lokum má nefna að undirrituð hefur verið tengiliður Ský við CEPIS
(Council of European Professional Informatic Societies) og meðal
annars tekið þar þátt í verkefninu ICT WOMEN.
Framundan er skemmtilegur vetur og dagskráin fram á næsta ár
þegar tilbúin þó þar vanti enn inná viðburði á vegum faghópanna.
Framboð viðburða á vegum annarra samtaka er einnig töluvert og
frábært að sjá að mæting á Ský viðburði er eins góð og raun ber
vitni.
Ég hvet ykkur til að vera í sambandi ef eitthvað er og einnig að
tengjast Ský á Facebook, LinkedIn og Twitter í gegnum forsíðu
sky.is og taka þátt í umræðum þar. Sjáumst á viðburðum í vetur.
Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský
FRéttiR FRÁ
skRiFstoFu ský