Tölvumál - 01.10.2012, Blaðsíða 21
21
Einn af athyglisverðustu vaxtarsprotum íslensks atvinnulífs undanfarin
ár hefur verið leikjaiðnaðurinn. Undir þeim hatti eru allnokkur fyrirtæki,
allt frá þekktum og burðugum fyrirtækjum á borð við CCP og Betware
niður í örsmá sprotafyrirtæki. Möguleikar leikjaiðnaðarins eru miklir í
nettengdum heimi nútímans, enda er flutningskostnaður á afurðinni,
tölvuleiknum, hverfandi miðað við flestan annan iðnað á Íslandi.
Það hefur ítrekað komið fram í fréttum að eitt af því sem háir þessum
fyrirtækjum hvað mest í starfsemi þeirra er skortur á tækni menntuðu
fólki, og þá einkum fólki með menntun á sviði upplýsingatækni. Það
er því sérstaklega mikilvægt að verðandi tölvunarfræðingar hafi
tækifæri til að afla sér menntunar sem er góð undirstaða fyrir störf í
leikjaiðnaðinum.
Háskólinn í Reykjavík (HR) er stærsti tækniháskóli Íslands og hefur
útskrifað bróðurpartinn af tölvunarfræðingum landsins undanfarinn
áratug, auk þess að vera öflugasta rannsóknarstofnunin á sviði
upplýsingatækni. Í stefnu Háskólans í Reykjavík (http://www.ru.is/
haskolinn/stefna/) segir meðal annars:
HR tekur virkan þátt í mótun og uppbyggingu atvinnulífs og samfélags
og leggur áherslu á að mæta þörf fyrir sérfræðiþekkingu með
menntun, rannsóknum, nýsköpun, þróun og þátttöku í samfélags
umræðu.
Það var í þessum anda sem fulltrúar samtaka leikjaframleiðenda, IGI
(Icelandic gaming industry) og HR undirrituðu samning á vormánuðum
2010 til að þróa samstarf um kennslu og rannsóknir á sviði þróunar
tölvuleikja. Í þessari grein verður lýst helstu atriðum þessa samnings
og hvaða framtíðarmöguleika hann gefur leikja iðnaðinum á Íslandi.
RannsóknaRsamstaRF
Umtalsvert rannsóknarsamstarf hefur verið með Háskólanum í
Reykjavík og IGI undanfarin ár og eitt af lykilmarkmiðum samnings
HR og IGI var að efla rannsóknarsamstarfið enn frekar og festa það í
sessi.
Rannsóknarsetrið CADIA (Gervigreindarsetur HR) var stofnfélagi í IGI
og vísindamenn CADIA hafa unnið að fjölmörgum verkefnum með
fyrirtækjum úr leikjaiðnaði. Nemendur hafa einnig unnið lokaverkefni
sem tengjast einstökum tölvuleikjum og rannsóknar hópar hafa unnið
að rannsóknum og þróun á nýrri tækni sem hagnýta má við tölvuleiki.
Stærsta samstarfsverkefnið hingað til er HASGE verkefnið (Humanoid
Agents in Social Game Environ ments), sem var leitt af vísindamönnum
við CADIA, í samstarfi við CCP, Universite Paris 8 og ISI stofnunina í
Bandaríkjunum, en niðurstöðum þessa verkefnis er lýst í annarri grein
í þessu blaði.
Það er trú okkar sem störfum við HR að efling rannsóknar samstarfsins
sé mikilvægur þáttur í eflingu íslenska leikjaiðnaðarins. Leikjaiðnaðurinn
getur sagt vísindamönnunum frá þeim vandamálum sem fyrirtækin
standa frammi fyrir. Vísindamennirnir geta nýtt sér samstarfið til að
jarðtengja rannsóknir sínar, með því að þróa aðferðir sem leysa
raunveruleg vandamál og gefa þeim þannig aukið vægi. Þannig geta
báðir aðilar eflst af slíku samstarfi.
Með eflingu rannsóknarsamstarfs að markmiði, þá kveður
samstarfssamningur HR og IGI meðal annars á um samráðsfundi
sem halda skal reglulega til að koma á umræðu um þarfir
leikjaiðnaðarins og möguleg samstarfsverkefni í rannsóknum. Fyrsti
samráðsfundurinn var haldinn síðasta vor og ljóst er að í þessu
samstarfi eru fólgin fjöldamörg sóknarfæri.
ÁHeRslusviðið “þRóun tölvuleikja”
Hin lykilstoðin í samstarfssamningi HR og IGI var stofnsetning
áherslusviðs um þróun tölvuleikja í BSc námi í tölvunarfræði og síðar
tölvunarstærðfræði við HR.
Þetta áherslusvið felst í að nemendur ljúka (að minnsta kosti) fimm
valnámskeiðum sem tengjast þróun tölvuleikja. Af þessum
námskeiðum eru fjögur námskeið í kjarna áherslusviðsins, en fimmta
námskeiðið má velja úr hópi skyldra námskeiða. Við val á námskeiðum
fyrir áherslusviðið var sérstaklega horft til þarfa leikjaiðnaðarins eins
og forsvarsmenn fyrirtækjanna lýstu þeim.
Kjarnanámskeiðin fjögur eru flest tiltölulega hefðbundin og gagnleg
valnámskeið í tölvunarfræðinámi, en með því að tengja þau við
áherslulínuna fá þau aukið vægi í hugum nemenda. Þar er um að
ræða i) eitt framhaldsnámskeið í forritun, annað hvort Hlutbundin
forritun í C++ eða Verkefnalausnir og áhrifarík forritun, þar sem
nemendur eru þjálfaðir í áhrifaríkri forritunartækni, ii) námskeiðið
Línuleg algebra, sem er mikilvæg undirstaða fyrir tölvugrafík, iii)
námskeið um Tölvugrafík, og iv) námskeið um Högun leikjavéla, en
þetta er nýtt námskeið sem þróað var sérstaklega fyrir áherslu sviðið.
Meðal valnámskeiða áherslusviðsins má nefna námskeiðin
Gervigreind, Afköst gagnasafnskerfa, og Samskipti manns og tölvu.
Til að efla áherslusviðið mun IGI bjóða upp á valnámskeið fyrir
áherslusviðið sem fjalla um þau tæknilegu og samfélagslegu
viðfangsefni sem leikjaiðnaðurinn glímir við og telur mikilvægt að
framtíðarstarfsmenn fyrirtækjanna kynnist. Þessi námskeið eru
skipulögð og kennd af sérfræðingum leikjaiðnaðarins, sem gefur
nemendum einstakt tækifæri til að fá innsýn í leikjaheiminn strax í
náminu.
Þetta áherslusvið hefur vakið mikla athygli og áhuga meðal nemenda
og fyrstu tölvunarfræðingarnir með áherslusvið í þróun tölvuleikja
útskrifuðust frá HR síðasta vor.
samstaRF til FRamtíðaR
Háskólinn í Reykjavík hefur það að markmiði að efla íslenskt atvinnulíf,
með menntun og rannsóknum sem byggja upp sérþekkingu sem
styður við framþróun atvinnulífsins. Það samstarf sem HR og IGI
lögðu upp í vorið 2010 er mikilvægt skref í átt að þessu markmiði.
Samstarfið hefur þegar skilað góðum árangri á stuttum tíma og við
væntum enn meiri ávinnings fyrir íslenskt samfélag á komandi árum.
menntun og RannsókniR
Á sviði tölvuleikja:
samstaRF HR og igi
Björn Þór Jónsson, forseti tölvunarfræðideildar HR