Tölvumál - 01.10.2012, Side 10

Tölvumál - 01.10.2012, Side 10
10 Leikir og spil eiga sinn stað í hugum allra manna. Í bók sinni Homo Ludens frá árinu 1938 sýndi hollenski fræðimaðurinn Johan Huizinga fram á, svo að ekki verður um villst, að leikir eru eldri en menningin sjálf [1]. Teningar og spil hafa öðlast nýtt líf í borðspilum nútímans, svo sem Matador, en halda jafnframt sínu upphaflega gildi. Stöðug þróun hefur orðið á teningum, spilum og borðspilum, og nýjar hugmyndir koma upp reglulega eða gamlar hugmyndir fá nýjan búning. Þáttaskil urðu með tilkomu tölvutækninnar og hefur hröð tækniþróun sl. áratugi fært heimilum aðgang að leikjatölvum nútímans. Leikjatölvan hefur nú verið til staðar í 40 ár og er hálf öld síðan fyrsti tölvuleikurinn leit dagsins ljós; en hvenær byrjuðu Íslendingar að nota leikjatölvur og hvernig hefur þróun leikjatölva verið hér á landi? leikjatölvuR Ryðja séR bRaut Leikjatölvur urðu fyrst vinsælar í Bandaríkjunum og síðar meir í Evrópu og leit fyrsta leikjatölva dagsins ljós hérlendis rúmum áratugi eftir að fyrsta leikjatölvan, Magnavox Odyssey, kom út í Bandaríkjunum 1972. Leikjatölvur fengu fljótt ágætar undirtektir hér á landi. Fyrst um sinn voru orðin leikjatölva og tölvuleikur ekki mikið notuð í blaðagreinum fyrr en nýlegri kynslóð af leikjatölvum (á borð við Nintendo Entertain- ment System (NES)) voru fáanlegar hérlendis. Hugsanlega gæti það verið vegna þess að um nýjan tæknibúnað var að ræða og því engin íslensk nýyrði til yfir tilheyrandi tæki og tól sem fylgdu leikjatölvunni. Áhugavert er að sjá hve seint orðið leikjatölva birtist í íslenskum orðabókum. Í útgáfu af íslenskri-enskri orðabók frá árinu 2009 er leikjatölva til dæmis ekki skrásett orð [2]. Svo virðist sem orðið sé enn þann dag í dag að ryðja sér leið inn í íslenskar orðabækur. Orðin tölva og heimilistölva voru frekar notuð snemma á níunda áratugnum yfir leikjatölvur. Leikjatölvur fortíðarinnar hafa margar hverjar verið flokkaðar sem heimilistölvur og eru jafnvel enn flokkaðar sem slíkar, þar sem að þær búa yfir eiginleikum heimilistölvunnar og leikjatölvunnar. Í stað þess að nota orðið tölvuleikur líkt og tíðkast í dag var oft talað um leik, forrit eða leikjaforrit [3]. Árið 1983 fór að bera meira á tölvuauglýsingum í Morgunblaðinu en áður. Bókabúð Braga (Laugavegi 118) var ein þeirra búða sem seldi ýmsar gerðir af tölvum og leikjum. Í tölvudeild búðarinnar var hægt að nálgast tölvur á borð við Atari 400 (16 k.) og 800 (48 k.), BBC (32 k.), Commodor-64 (64 k.) og Spectrum (48 k.) á verðbilinu 8.198 kr. til 25.689 kr. Tölvuleikir í sömu verslun kostuðu þá á bilinu 400-800 kr., eftir því um hvaða tölvuleik var að ræða og fyrir hvaða tölvu [4]. Þá var sérstaklega tekið fram ef tölvan réði við mörg mismunandi forrit og auglýsa Heimilistæki hf. Sinclair Spectrum 48 K þannig árið 1983: „Ótrúlega fullkomin tölva bæði fyrir leiki, nám og vinnu“ [5]. Um sama leyti voru tölvuspilin frá Nintendo, Game & Watch, að ná vinsældum og nældi Tölvuspil hf. sér í einkaumboð Nintendo á Íslandi. Tölvuspil hf. tókst að dreifa tölvuspilunum víðsvegar um landið og var m.a. hægt að nálgast eintök á Djúpavogi, Þórshöfn, Hvammstanga og Flateyri árið 1983 [6]. Síðar var Tölvuspil hf. í viðskiptum við bandaríska varnarliðið á Íslandi og árið 1985 námu viðskipti þeirra yfir þúsund bandaríkjadölum [7]. leiktækjasaliR nÁ vinsældum Leiktækjasalir voru nokkuð vinsælir um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Um 1980 voru 4-5 slíkir salir reknir í Reykjavík, en þeim fækkaði talsvert árið 1982 þegar salurinn Einholtið var hvað vinsælastur. Stöðunum fjölgaði aftur yfir í 7-8 sali í Reykjavík árið 1984, og var L-116 (við Laugarveg) og Ásinn (Hverfisgata 105) tveir vinsælustu leik tækja- salirnir það árið. Árið 1983 óskuðu íþróttafélögin á Akureyri eftir einkarétti á leiktækjasölum þar í bæ, en sú tillaga naut ekki stuðnings bæjarstjórnar [8]. Aðgangur að leiktækjasölum takmarkaðist við 14 ára aldur og var hart tekið á þeim viðmiðum. Ungt fólk kom í leiktækjasali ekki einungis til að spila leiki, heldur einnig til að hitta vini og fá einhvers konar útrás. Þrátt fyrir að nýir spilakassar með nýjum og endurbættum leikjum kæmu fram voru eldri leikirnir vinsælli en þeir nýju, leikir á borð við Pacman, Galaga og ýmiss konar kúluspil [9]. Svo virðist sem það hafi verið mjög sveiflukenndur atvinnurekstur að vera með leiktækjasal snemma á níunda áratugnum. Helsta skýringin á því að mati Tómasar Tómassonar, eiganda unglingastaðarins Villta Tryllta Villa, var sú „að hér hafa aldrei verið settir upp vistlegir og skemmtilegir tölvuspilasalir, þar sem fjölskyldan getur komið saman, heldur hafa tölvuspilin höfðað til mjög takmarkaðs hóps.“ Hann bendir svo á að svokölluð video veitinga hús hefðu slegið í gegn í Bandaríkjunum, þar sem fjölskyldan gat fengið sér að snæða og spilað tölvuspil saman þar á eftir [10]. Í dag má finna slíka sali á Íslandi og ber þar helst að nefna Keiluhöllina í Öskjuhlíð [11]. Til eru eldri dæmi um leiktækjasali hér á landi eða frá árinu 1971 þegar að Tónabær opnaði leiktækjasal í kjallara hússins en lítið var fjallað um slíka sali á þeim tíma [12]. Þegar að leiktækjasalurinn var opnaður í Tónabæ var haldið „opið hús“ þar sem 400 unglingar mættu til að skoða sig um og hefur leiktækjasalurinn eflaust fangað áhuga margra [13]. Leiktækjasalir á áttunda áratugnum voru ekki endilega með mörg tölvuspil en þar var hægt að fara í fótboltaspil, kúluspil, leika billiard, skjóta í mark og keiluspil svo eitthvað sé nefnt [14]. Árið 1979 fór af stað umræða í Morgunblaðinu um slæm áhrif leiktækjasala þegar Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi fullyrti „að í leiktækjasölum væri leikin sefjandi tónlist og að þar væri andrúmsloft spilavíta og að vera þar gæti jafnvel leitt til hnupls ...“ [15]. Þegar fréttin birtist í Morgun­ blaðinu voru fimm leiktækjasalir í Reykjavík (Grensásvegi 7, Einholti 2, Laugavegi 92, Bankastræti 11 og Aðalstræti 8) [16]. Leiktækjasölum fór síðan að fækka snemma á tíunda áratugnum um það leyti sem sífellt fleiri eignuðust leikjatölvur og gátu menn þá spilað uppHaF og þRóun leikjatölva og leiktækjasala Á íslandi Bjarki Þór Jónsson, ritstjóri Nörd Norðursins og MA-nemi í tölvuleikjafræði og -hönnun við Brunel University í London Í leikjatölvunum er þannig hægt að spila og spjalla við aðra tölvuleikjaspilara, versla í gegnum netið og hlaða niður tölvuleikjum og öðru afþreyingarefni.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.