Tölvumál - 01.10.2012, Qupperneq 13

Tölvumál - 01.10.2012, Qupperneq 13
13 vinsælastu aðferðafræðinni á bak við alhliða leikjaspilara. Enda hefur sigurvegari keppninnar frá 2007 til dagsins í dag alltaf verið byggður á Monte-Carlo trjáleit. Árið eftir var keppnin haldin í Chicago, Illinois í Bandaríkjunum og til leiks mætti endurbættur CadiaPlayer því þrátt fyrir velgengni fyrra árs þá sýndi forritið einnig veikleika í ákveðnum leikjum sem nú höfðu verið rannsakaðir og aðferðafræðin aðlöguð. Ennþá sýndi CadiaPlayer forritið að það var í fremstu víglínu varðandi notkun Monte-Carlo trjáleitar í alhliða leikjaspilun því það gerði sér lítið fyrir og sigraði keppnina aftur og varð með því fyrsta forritið til að sigra hana tvisvar. Árið 2009 var keppnin haldin í Pasadena, California í Bandaríkjunum, en það árið varð CadiaPlayer að sætta sig við sjötta sætið á meðan nýr heimsmeistari var krýndur, forrit er nefndist Ary þróað af Háskólanum í París. Ary hélt áfram sigurgöngu sinni árið 2010 í Atlanta, Georgia í Bandaríkjunum en CadiaPlayer náði þriðja sætinu. CadiaPlayer komst svo í annað sætið í keppninni 2011 sem haldin var í Barcelona á Spáni en þar bættist nýtt forrit, TurboTurtle, í hóp þeirra er sigrað hafa þessa keppni. TurboTurtle var skrifað af fyrrverandi nemanda í Stanford sem nú starfaði hjá Google. Í ár endurheimti CadiaPlayer heimsmeistaratilinn í alhliða leikjaspilun og varð með því fyrsta forritið til að vinna keppnina þrisvar sinnum. lokaoRð Í ár útskrifaðist ég með doktorsgráðu í tölvunarfræðum frá Háskólanum í Reykjavík. CadiaPlayer byrjaði sem rannsóknar- verkefni mitt í meistaranámi mínu við sama skóla og varð seinna aðal verkfæri rannsókna doktorsritgerðar minnar sem var unnin undir leiðsögn Dr. Yngva Björnssonar. Rannsóknir á alhliða leikjaspilun falla vel að markmiðum greindra kerfa, því slík kerfi eiga að geta starfað sjálfstætt, lært af sjálfsdáðum og brugðist við áður óséðum tilvikum. Með rannsóknum tengdum CadiaPlayer ásamt frábærum stuðningi frá Háskólanum í Reykjavík hef ég getað ferðast til hinna ýmissa staða hvort sem er til að tala á ráðstefnum, við skóla eða kynnast nýjum sjónarhornum. Það er óhætt að segja að CadiaPlayer hefur reynst mér góður félagi sem hefur bæði leyft mér að upplifa einstaka hluti og kynnt mig fyrir fjölmörgu áhugaverðu fólki. Það var því sérstaklega ánægjulegt að lokapunkturinn á námi mínu var að leiða CadiaPlayer til sigurs í ár og gera hann að núverandi heimsmeistara í alhliða leikjaspilun. Þessi forrit fá aðeins að vita reglur leiksins sem þau eiga að spila með litlum fyrirvara og án þess að mannshöndin komi nálægt þurfa þau að móta eigin skoðun á hvernig best er að spila leikinn.

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.