Tölvumál - 01.10.2012, Page 11
11
tölvuleikina heima hjá sér. Á tíunda áratugnum var leiktækjasalurinn
Freddabar í miðbæ Reykjavíkur og tveir leiktækjasalir voru í Kringlunni:
Galaxy og Sega (-salurinn) [17].
„nintendoæðið“
Árið 1993 hafði Nintendo (NES og GameBoy) náð miklum vinsældum
hér á landi og var jafnvel talað um „Nintendo-æðið“ og síðar „Sega-
æðið“ [18]. Fyrirtækið Hljómco var þáverandi umboðsaðili Nintendo á
Íslandi og Japis umboðsaðili Sega [19]. Japis ætlaði í harða
samkeppni við Nintendo með því að bjóða upp á mikið og fjölbreytt
leikjaúrval fyrir leikjatölvur frá Sega. Sega hætti útgáfu sinni á
leikjatölvum eftir Sega Dreamcast sem kom út um aldamótin 2000 og
umboðsaðilar þeirra hérlendis fóru á hausinn um svipað leyti [20].
Nintendo þykir enn vera mjög öflugt leikjatölvu- og tölvuleikjafyrirtæki
og eru Bræðurnir Ormsson með umboð fyrir Nintendo á Íslandi [21].
ólaFuR jóHann og playstation
Þegar Sony gaf út PlayStation (PS) leikjatölvuna á tíunda áratugnum
svipaði sú markaðssprenging í tölvuleikjaiðnaðinum til Nintendo á
níunda áratugnum og varð hún ein vinsælasta leikjatölva sögunnar.
Íslendingurinn Ólafur Jóhann Ólafsson starfaði sem forstjóri hjá Sony
þegar að fyrsta PS tölvan var gefin út og var auk þess með umsjón
yfir tölvuleikjaframleiðslu [22]. Ólafur nam eðlisfræði við Brandeis
Univer sity í Bandaríkjunum og kynnti einn kennarinn hann fyrir
Micheal Schulhof sem starfaði þá hjá Sony. Ólafur hóf störf hjá Sony
árið 1985 og vann sig upp í stöðu forstjóra árið 1991, þá 29 ára
gamall. Meðal verkefna hans var að vinna að nýrri leikjatölvu fyrir
Sony og var Ólafur sagður „standa í eldlínunni í baráttu Sony og
Nintendo um framtíðar þróun sjónvarpsleikja“ [23].
Ólafur hafði ýmislegt til málanna að leggja hvað varðar leikjatölvu-
iðnaðinn og virkaði oft sem óbein auglýsing fyrir PS. Árið 1994
stofnaði hann sérstaka deild innan Sony í þeim tilgangi að þróa og
hanna nýja leikjatölvu sem átti að verða helsti samkeppnisaðili risanna
tveggja, Nintendo og Sega [24]. Ólafur Jóhann og Sony sáu bjarta
framtíð í tölvuleikja- og skemmtanaiðnaðinum sem varð til þess að
miklar skipulagsbreytingar voru gerðar hjá fyrirtækinu á stuttum tíma,
m.a. voru nýjar deildir stofnaðar og nafninu Sony Electronic Publishing
Company breytt í Sony Interactive Entertain ment. Ólafur var einn
þeirra sem tók mikinn þátt í markaðssetningu PlayStation tölvunnar
víðsvegar um heiminn [25]. Árið 1995 barðist hann fyrir verðlækkun á
PlayStation leikjatölvunni í Japan og að verð hennar færi ekki yfir 300
bandaríkjadali (sem þá voru 19.500 ÍSK.) [26]. Hugmynd Ólafs var sú
að tölvuleikirnir í PS leikjavélina yrðu aðaltekjulind Sony, í stað
leikjavélarinnar sjálfrar. Til ágreinings kom vegna þessara mála sem
endaði með því að honum var vikið úr starfi og var Bruce L. Stein,
fyrrum starfsmaður Dreamworks, fenginn í hans stað. Haldið var í
verðhugmyndina engu að síður og varð vélin ekki dýrari en 299
bandaríkjadollarar [27].
Þrátt fyrir gott verð í Japan og Bandaríkjunum var gripurinn talsvert
dýrari hérlendis og kostaði árið 1995 35.990 kr. og leikir í vélina voru
seldir á 4.900 kr. í verslunum Skífunnar [28]. Verð PS lækkaði töluvert
á u.þ.b. einu og hálfu ári (kostaði í kringum 16.000 kr. í B.T. Tölvum árið
1997) en verð á tölvuleikjum hækkaði (kostuðu í kringum 5.000 –
6.000 kr. í B.T. Tölvum árið 1997) [29]. Líklega hafa fyrirtæki gengið að
svipuðum hugmyndum og Ólafur boðaði um að tölvuleikir yrðu þeirra
helsta tekjulind, þar sem leikjatölvurnar lækkuðu í verði á meðan
leikjaverð stóð í stað eða hækkaði. Samkeppnisaðilar á borð við Sega
buðu sína nýjustu tölvu, Sega Saturn, á 14.900 kr. og var PS ekki
lengur nýjasta leikjatölvan á markaðnum. Þessir tveir þættir hafa haft
mikil áhrif á verðlækkun PS [30].
Aldamótin 2000 tilkynnti Skífan í auglýsingu, sem þeir birtu í
Morgunblaðinu, að PlayStation væri orðin „Mest selda leikjatölvan á
Íslandi“ [31]. Hefur sala PS því gengið vel líkt og erlendis þar sem hún
braut öll eldri sölumet [32].
leikjatölvuR nútímans
Helstu leikjatölvurnar á markaðnum í dag eru Microsoft Xbox 360,
Nintendo Wii og Sony PlayStation 3 og voru leikjatölvur á 40,2%
íslenskra heimila árið 2011 [33]. Leikjatölvur nútímans bjóða upp á
fleiri möguleika en áður þekktist. Microsoft gaf Xbox 360 út árið 2005
og Sony gaf þriðju PlayStation leikjatölvuna (PS3) út ári síðar. Kraftur
þeirra beggja er mun meiri en í eldri leikjatölvum og má líkja grafík og
hljóðgæðum leikja við tölvugerðar kvikmyndir. Stjórntæki eru þráðlaus
og bjóða tölvurnar upp á þráðlausa nettengingu. Í leikjatölvunum er
þannig hægt að spila og spjalla við aðra tölvuleikjaspilara, versla í
gegnum netið og hlaða niður tölvuleikjum og öðru afþreyingarefni.
Xbox 360 og PS3 geta spilað kvikmyndir og tónlist og bjóða upp á
ýmis konar afþreyingarefni í háskerpu mynd gæðum.
Nintendo hefur komið fram með áhugaverðar nýjungar í leikjatölvu-
spilun og var fyrst þessara þriggja leikjatölva til að nota hreyfingar
spilarans sem stjórntæki, þ.e.a.s. þegar spilarinn stjórnar því hvað
gerist í tölvuleiknum með því að hreyfa sig á tiltekinn hátt. Sony og
Microsoft bjóða upp á aukahlutina PS Move og Kinect í leikjatölvur
sínar sem gerir spilurum kleift að nota hreyfingar til að framkvæma
aðgerðir í leikjum.
íslendingaR búa til tölvuleiki
Þó að margir íslenskir tölvuleikir hafi verið gefnir út fyrir borðtölvur hafa
þeir þó ekki ratað til leikjatölvanna. Það mun þó breytast með tilkomu
DUST 514 frá íslenska leikjafyrirtækinu CCP síðar á þessu ári, en
DUST 514 er fyrstu persónu fjölspilunarskotleikur (MMOFPS) fyrir
PlayStation 3 þar sem spilarinn fer í hlutverk hermanns sem berst á
einum af mörgum plánetum EVE heimsins. Spilarar DUST 514 og fjöl-
spil unarleiksins EVE Online (sem einnig er frá CCP) munu hafa áhrif á
mótun og framtíð hins gríðarstóra EVE heims sem CCP hefur skapað.
Íslendingar hafa auk þess verið duglegir að gefa út leiki fyrir snjallsíma
og spjaldtölvur sem verða sífellt öflugri og bjóða upp á fleiri
spilunarmöguleika en áður. Þar má meðal annars nefna leikina Tiny
Places, Maximus Musicus, The Moogies, 28 Spoons Later og
Godsrule sem íslenska leikjafyrirtækið Gogogic vinnur að um þessar
mundir. Þó snjallsímar og spjaldtölvur flokkist seint sem leikjatölvur þá
kjósa sífellt fleiri notendur að spila tölvuleiki á þeim sem hefur veitt
leikjafyrirtækjum aðgang að nýjum og stórum hópi leikjaspilara.
Greinin er byggð á kafla í BA ritgerð minni í sagnfræði, Nörd
norðursins. Leikjatölvur og tölvuleikir sem (sagn)fræðilegt viðfangs efni
frá 2009.
HeimildiR: sjÁ veFútgÁFu Á www. sky.is