Tölvumál - 01.10.2012, Side 25

Tölvumál - 01.10.2012, Side 25
25 Internetsamband er talið jafn sjálfsagt í dag og aðgangur að rafmagni og vatni. Það eru þó ekki nema rétt rúmir tveir áratugir síðan þetta grunnsamskiptalag var innleitt hér á landi. Ekki var sjálfgefið á árunum fyrir 1990 að það samskiptaumhverfi sem við í dag köllum á vondri íslensku IP-samskipti (Internet Protocol) yrði ráðandi. Þessi grunnsamskiptahögun hafði verið að þróast í háskólasamfélögum árin á undan. SURIS (Samtök um Upplýsinga- net Rannsóknaraðila á Íslandi) voru stofnuð 1987 og tengdust 10 aðilar saman á rannsóknarneti. Það var 21. júlí árið 1989 sem Ísland tengdist Internetinu eins og má lesa í grein eftir Maríus Ólafsson á Vísindavef Háskóla Íslands. http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=6358 Einurð og framtíðarsýn þurfti til að innleiða Internettæknina hér á landi. Þar var Maríus Ólafsson fremstur í flokki. Á þessum tíma lagði hann þrotlausa vinnu í að koma á réttri högun á Internetið á Íslandi. Tryggja þurfti að allir netþjónar tengdust rétt inn á Netið, að það væri rétt upp byggt, að íslenska væri gjaldgeng á vefsíðum o.s.frv. Í úttekt World Economic Forum 2011 (The Global Information Technology Report 2010 – 2011) kemur fram að Ísland skarar framúr á einu sviði, en það eru tæknilegir innviðir hér á landi. Við erum með best aðgengi að rafmagni, best aðgengi að stafrænu efni og síðast en ekki síst hæsta hlutfallið af öruggum netþjónum í þeim 138 löndum sem tóku þátt í úttektinni. Fagmennska og elja Maríusar í að ala upp og fræða íslenska tæknimenn í því hvernig byggja á upp öruggt netumhverfi skilar sér í þessum niðurstöðum. Hann á því stóran þátt í að byggja upp gott starfsumhverfi og jákvæða ímynd fyrir upplýsingatækni á Íslandi. Maríus Ólafsson er virtur af samstarfsmönnum sínum. Þá virðingu hefur hann hlotið vegna mikillar þekkingar sinnar á uppbyggingu Internetsins, sterkrar og góðrar framtíðarsýnar, mikillar rökfestu samhliða einstakri ljúfmennsku og lipurð í öllum samskiptum og verkefnum. Það er því mikill heiður að veita Maríusi þessa viðurkenningu. um upplýsingatækniveRðlaun ský Upplýsingatækniverðlaun Ský eru heiðursverðlaun fyrir framúr- skarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi. Skýrslutæknifélag Íslands (Ský) veitir verðlaunin og eru þau að danskri fyrirmynd og er veiting þeirra er árleg frá árinu 2010. tilFneFningaR og val Hægt er að tilnefna einstakling eða forsvarsmann fyrirtækis eða verkefnis sem hefur skarað framúr á sviði upplýsingatækni, skapað verðmæti og auðgað líf Íslendinga með hagnýtingu á upplýsinga- tækni. Áhersla er lögð á að framlagið hafi þegar sannað sig með afgerandi hætti. Allir í tengslaneti Ský geta sent inn tilnefningar. Valnefndin getur einnig sent inn tilnefningar. Hver aðili getur aðeins sent inn eina tilnefningu og skal hún rökstudd. Eftir að fresti til tilnefninga lýkur velur valnefnd þann aðila sem þykir skara framúr og skal hún vera einróma um valið og rökstyðja það vel. Tilnefningar skulu sendar í tölvupósti til sky@sky.is og skal rökstyðja tilnefningu svo valnefnd hafi forsendur til að meta hvort um sé að ræða framlag sem kemur til álita við val á verðlaunahafa. valneFnd Árlega skipar stjórn Ský valnefnd sem hefur sérþekkingu og reynslu á sviði upplýsingatækni. Valnefnd samanstendur af tveimur síðustu verðlaunahöfum, fulltrúa frá samtökum upplýsinga tækni- fyrirtækja, fulltrúi háskóla, fulltrúi styrktaraðila, fulltrúi stjórnar Ský ásamt starfandi framkvæmdastjóra Ský. veRðlaunaHaFaR FRÁ uppHaFi Friðrik Skúlason fékk fyrstu UT-verðlaun Ský 20. maí 2010. Gylfi Magnússon Viðskiptaráðherra afhenti honum verðlaunin á UT-deginum. Reiknistofa bankanna fékk önnur UT-verðlaun Ský 18. mars 2011. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin á UT messunni. Maríus Ólafsson fékk þriðju UT-verðlaun Ský 9. febrúar 2012. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR afhenti verðlaunin á UTmessunni. Rökstuðningur valnefndar er birtur á vef Ský ásamt myndum frá verðlaunaafhendingum. Við hvetjum alla sem tengjast UT geiranum til að senda inn tilnefningar og auka þannig breidd þeirra sem koma til greina við næstu veitingu verðlaunanna sem verður á UT messunni 2013. maRíus ólaFsson FæR ut­veRðlaun ský 2012 Valnefnd Upplýsingatækniverðlauna Skýrslutæknifélags Íslands er sönn ánægja að veita Maríusi Ólafssyni Upplýsingatækniverðlaun Ský 2012. Maríus er af þeim sem best þekkja talinn faðir Internetsins á Íslandi. Verðlaunin voru afhent á UTmessunni þann 9. febrúar af Ara Kristni Jónssyni, rektor Háskólans í Reykjavík. Verðlaunagripurinn er glerlistaverk eftir listakonuna Ingu Elínu.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.