Tölvumál - 01.10.2012, Qupperneq 37
37
Skortur á tæknimenntuðu fólki er farinn að hafa áhrif á íslenskt
atvinnulíf og grípa þarf strax til aðgerða. Það þarf að efla
vitundarvakningu í þjóðfélaginu og auka áhuga á tæknimenntun
með samvinnu menntastofnana og atvinnulífs. Þær leiðir sem
farnar hafa verið undanfarin ár hafa ekki skilað árangri. Það þarf að
byrja nógu snemma á að vekja áhuga á tækni, kenna forritun á
nútímalegan máta og gera tækninám aðgengilegra.
mikill skoRtuR Á tæknimenntuðu
Fólki
Hagkerfi framtíðarinnar byggir á tækni, tæknilæsi og þekkingu.
Mikil eftirspurn er eftir tölvu- og tæknimenntuðu fólki og fjölbreytt
tækifæri í boði. Má þar nefna mikla aukningu á tölvuleikjafyrirtækjum
síðastliðinn ár. Það þarf að byrja strax í dag að þjálfa upp næstu
kynslóð og efla tölvufærni í þágu þverfaglegrar hæfni. Börn þurfa
að læra að vinna með tölvuna en ekki bara vinna á hana, líkt og
þau þurfa að læra að skrifa jafnt sem lesa. Þá þarf að gera
umbætur á kennslu í takt við tækni- og þjóðfélagslegar breytingar
og góð lausn væri að koma kennslu í forritun inn í grunn- og
framhaldsskóla landsins.
Í dag eru ekki margir kostir í boði hvað varðar nám í forritun fyrir
börn og unglinga. Nánast enga kennslu er að finna í grunnskólum
landsins og val á áföngum í forritun fer fækkandi í framhaldsskólum.
Í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti var reynt að setja upp hugbún-
aðar línu en hún stóð ekki undir sér og var lögð niður. Aðrir skólar
hafa svipaða reynslu. Það vantar kennara á sviðinu, það vantar
þekkingu nemenda á tæknigreinum og útkoman verður sú að
kennsla í t.d. forritun leggst af. Það eru einhver fjarnámskeið í boði
en þau eru illa nýtt. Erlendis er það sama upp á teningnum og fer
vandamálið einungis vaxandi þar sem börn, unglingar og kennarar
velja sig frá áföngum í stærðfræði- og tæknigreinum .
til Hvaða aðgeRða ætla
menntayFiRvöld að gRípa?
Mynd 1 sýnir hvernig verja á tíma nemenda í hinar ýmsu náms-
greinar. Aðgerðirnar eru „skýrar“ – grunnskólanemendur fá 2,68%
eyrnamerkt í upplýsinga- og tæknimennt. Það þýðir að nemandi í
8.-10. bekk fær 80 mínútur á viku sem samsvarar einni tvöfaldri
kennslustund á viku. Það telja menntayfirvöld nóg fyrir upplýsinga-
og tæknimennt.
Mynd 1 Upplýsingar úr nýrri Aðalnámskrá grunnskólanna
Þetta sýnir meira en margt annað að þó að Aðalnámskráin sé ný,
er ekki tekið tillit til nútímaþjóðfélags og þarfa atvinnulífsins sem
byggja að miklu leyti á tækniþekkingu og tæknilæsi. Hún vísar
reyndar til þess að upplýsinga- og tæknimenntun skuli dreifast
þverfaglega yfir námsgreinar/námssvið. En er það nóg? Dugar
þetta til að byggja upp tæknimenntun í landinu? Þarf ekki meira til?
Þróunin er alls ekki í samræmi við breytta tíma. Það er sorglegt til
þess að vita að með upplýsinga- og tæknimennt er meira átt við
lífsleikni og ritvinnslu en nýtingu á tækninni sjálfri. Það er enn verið
að ala upp kynslóðir sem eru einungis neytendur tækninnar í
staðin fyrir að vera virkir þátttakendur. Miðað við fjárhagsstöðu
sveitafélaganna þá gefur þetta sveitafélögunum tækifæri á að
fresta uppfærslu á tækjabúnaði. Skólinn þarf einungis að uppfylla
2,68% til að uppfylla nýja aðalnámskrá grunnskólanna. Það er
mikilvægt að menntayfirvöld kippi hausnum upp úr sandinum og
byggi upp menntakerfi og menntun sem er tengd lífi barna og
ungmenna utan skólans og atvinnulífið kalla eftir. Tækni er ekki
einhver bóla sem kemur til með að hverfa - hún er komin til að vera
og börn, unglingar og fullorðnir þurfa að kunna að nýta hana hvort
sem er við nám, vinnu eða leik.
menntun í takt við
tækniþRóun eRu
menntayFiRvöld enn í
toRFkoFanum?
Rakel Sölvadóttir, framkvæmdastjóri Skema ehf.
Sjá umfjöllun í fjölmiðlum, m.a. http://www.visir.is/skortur-a-folki-med-taeknimenntun-hamlar-hagvexti/article/2011110539751, http://www.visir.is/mikill-voxtur-
kallar-a-folk/article/2011110539885 og http://www.ruv.is/frett/skortur-a-taeknimenntudu-folki
Sjá umfjöllun um ástandið í Bretlandi http://www.youtube.com/watch?v=MkSEUb2LWX0&feature=player_embedded
1.-‐4.bekkur 5.-‐7.bekkur 8.-‐10.bekkur Vikulegur
kennslutími
Vikulegur
kennslutími
Heildartími
í
1.-‐
4.bekk.
Mínútur
á
viku
Heildartími
í
5.-‐
7.bekk.
Mínútur
á
viku
Heildartími
í
8.-‐
10.bekk.
Mínútur
á
viku
Heildartími
í
1.-‐
10.bekk.
Mínútur
á
viku
Hlutfall
Íslenska,
íslenska
sem
annað
tungumál
og
íslenskt
táknmál 1,120 680 630 2,430 18.08%
Erlend
tungumál;
enska,
danska
eða
önnur
Norðurlandamál 80 460 840 1,380 10.27%
List-‐
og
verkgreinar 900 840 340 2,080 15.48%
Náttúrugreinar 420 340 360 1,120 8.33%
Skólaíþróttir 480 360 360 1,200 8.93%
Samfélagsgreinar;
trúabragðafræði,
lífsleikni,
jafnréttismál,
siðfræði 580 600 360 1,540 11.46%
Stærðfræði 800 600 600 2,000 14.88%
Upplýsinga-‐
og
tæknimennt 120 160 80 360 2.68%
10/24/12
Til
ráðstöfunar
/Val 300 160 870 1,330 9.90%
Alls 4,800 4,200 4,440 13,440 100%
Námsgreinar
-‐
Námssvið