Tölvumál - 01.10.2012, Page 39
39
ekki sé hægt að læra forritun aðeins af bókum heldur verða
nemendur að forrita, en margir nemendur nýkomnir í háskóla
halda annað af reynslu úr öðrum fögum. Í öðru lagi er forritun yfir-
leitt alveg nýtt viðfangsefni fyrir nemendur. Þeir þurfa því að aðlaga
sig námslega að því að læra forritun. Að lokum þá loðir sá orðrómur
við forritun að aðeins „nördar“ kunni að forrita og að það sé mjög
erfitt að læra hana. Ef nemendur hafa það viðhorf þegar þeir koma
í skólann getur það haft áhrif á hversu móttækilegir þeir eru
(Jenkins, 2002).
Með ómeðvituðum lærdóm í gegnum leik náum við að sýna
nemendunum að forritun sé bæði áhugaverð og skemmtileg.
Carnegie Mellon University í Pittsburgh hefur þróað Alice – þrívítt
forritunarumhverfi – sem notað hefur verið með góðum árangri
sem fyrsti áfangi í forritun í háskólaumhverfinu. Við viljum nýta
þessa þekkingu, bæta við tengingu við atvinnulífið og setja upp
umhverfi í kringum Skema. Nota aðferðafræðina til að gera
kennurum kleift að setja upp slíkan áfanga í sínu umhverfi?. Það
eru ekki bara nemendur sem hræðast tækninám heldur kennarar
líka. Með því að láta kennurum í hendur tól og tæki til að nýta og
kennslu í aðferðafræðinni náum við að vinna á þessum ótta og fá
kennarana í lið með okkur. Hluti af aðferðafræðinni er að nýta sér
jafningjakennslu en slík aðferð hefur reynst mjög vel. Jafningja-
kennslan veitir kennara stuðning, gefur nemendum tækifæri til að
fá nálgun jafningja og eykur færni og áhuga jafningjakennara.
Þar sem að Menntavísindasvið virðist ekki vera vinna í takt við
þarfir samfélagsins hvað tæknimenntun kennara varðar þá er
nauðsynlegt að gefa kennurum tækifæri til að kynnast hinum
skemmtilega heim sem tæknin hefur upp á að bjóða. Í sumar fór
Skema af stað með námskeið í grunnforritun fyrir kennara í
samstarfi við 3F - Félag um upplýsingatækni og menntun. Það var
ótrúlega gaman að sjá áhugasama kennara taka sér frí frá
sumarfríinu og forrita eins og vindurinn með stuðning frá ungum
aðstoðarkennurum. Það sem skiptir verulega miklu máli hér er að
kennarar læri að skilja „egó-ið“ eftir fyrir utan kennslustofuna og
njóta þess að læra með og af nemendunum sínum. Það verður
nefnilega að viðurkennast að við gamlingjarnir náum aldrei að vera
öflugri en krakkarnir í að meðtaka og læra nýja tækni.
Mynd 2 Samvinna mynd tekin á kennaranámskeiði Skema í sumar
ÁRanguR og maRkmið
Nú þegar hafa nokkrir grunn- og framhaldsskólar tekið skrefið með
Skema í þágu uppfærslu á menntun í takt við tækniþróun og má
þar nefna Vífilsskóla Hjallastefnunnar, Hofsstaðaskóla, Sjálands-
skóla, Lágafellsskóla, Klébergsskóla, Fjölbrautarskólann í Breið-
holti og Háskólann í Reykjavík. Skema hefur einnig fengið stuðning
frá atvinnulífinu og má þar nefna samstarfssamning við CCP sem
felur í sér stuðning við innleiðingu á forritunarkennslu í grunnskóla
landsins auk þátttöku starfsmanna í kennslu. Við vonumst til þess
að fleiri skólar bætist í hópinn og stuðningur frá atvinnulífinu haldi
áfram að eflast, en eitt af markmiðum Skema er að sjá forritunar-
kennslu í boði í að minnsta kosti 70% af grunnskólum landsins fyrir
árið 2015.
Árangurinn aðferðafræðinnar leynir sér ekki en fyrsti nemandinn,
Ólína Helga Sverrisdóttir (11 ára), sem lærði forritun með Skema
aðferðafræðinni sigraði í vor forritunarkeppni á vegum bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI. Keppnin er haldin í samstarfi við Carnegie
Mellon University til að stuðla að öruggri netnotkun barna og
unglinga.
Mynd 3 Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna afhenti Ólínu Helgu
viðurkenninguna frá FBI og Carnegie Mellon University. Með þeim á
myndinni er fjölskylda Ólínu Helgu.
FoRskot til FRamtíðaR
samFélagsleguR ÁvinninguR
Menntun í takt við tækniþróun mun styrkja stoðir íslensks
atvinnulífs með því að auka tækniþekkingu og draga úr líkum á því
að íslensk fyrirtæki þurfi að flytjast úr landi sökum skorts á
tæknimenntuðu starfsfólki. Hagvöxtur munu aukast með eflingu á
hugverkinu en hagvöxtur er háður þekkingu og þekking er einn
stærsti lykilþátturinn í framleiðni – við verðum því að hefjast handa
við að efla menntakerfið í takt við tækniþróunina og gefa Íslandi
nýtt “Forskot til Framtíðar”.
HeimildiR: sjÁ veFútgÁFu Á www.sky.is
Hagkerfi framtíðarinnar byggir á tækni, tæknilæsi og þekkingu. Mikil
eftirspurn er eftir tölvu- og tæknimenntuðu fólki og fjölbreytt tækifæri í boði.
Má þar nefna mikla aukningu á tölvuleikjafyrirtækjum síðastliðinn ár.