Tölvumál - 01.10.2012, Qupperneq 42

Tölvumál - 01.10.2012, Qupperneq 42
42 Tímarnir breytast og mennirnir með og það sama á við um gildismat fólks. Þeir hæfileikar og færni sem menn tileinka sér og hvað þykir eftirsóknarvert í þeim efnum er því breytingum undirorpið. Sem dæmi má taka að eitt sinn þótti ekki mikið til þess koma að spila biljard sem var talið meira fyrir iðjuleysingja í reykfylltum bakherbergjum. Gamlar bíómyndir í svart-hvítu eins og t.d. „Hustler” með Paul Newman endurspegluðu þennan tíðaranda. Fleiri mætti áreiðanlega tína til. Nú er svo komið að hundruðir þúsunda, jafnvel miljónir manna (og kvenna) hafa atvinnu af því að keppa í biljard og hafa af því góðar tekjur í verðlaunafé, auglýsingar og greiðslur frá styrktaraðilum. Fyrir hundrað árum síðan hefði mörgum líklega þótt undarlegt að fullorðnir menn fengju greidd laun á við ársframleiðslu smáríkis fyrir að sparka í uppblásinn leðurbolta. Að horfa á ástundun íþrótta frá þessu sjónarhorni vekur til umhugsunar þann sess sem tölvuleikir og spilun þeirra hefur í skapað sér í samfélaginu í dag. Nokkuð ber á að eldri kynslóðum, fjölmiðlum og þeim sem sinna menntun barna þyki lítið til þess koma að ungmenni noti fleiri klukkustundir á dag í spilun tölvuleikja. Aftur á móti eru færri dæmi um það að ungt fólk sé í dag skammað fyrir að spila of mikinn fótbolta. Á sama tíma og atvinnumenn í knattspyrnu, biljard eða öðrum greinum hafa góðar tekjur af sinni iðkun hefur athyglisverð þróun átt sér stað hjá þeim sem spila tölvuleiki. Áður fyrr kepptu menn í tölvuleikjum fyrst og fremst upp á heiðurinn og það að skapa sér nafn. Nutu þeir bestu oft töluverðrar virðingar. Nú er svo komið að á hverju ári eru haldin fjölmörg mót þar sem keppt er í ýmsum frægum leikjum þar sem spilað er fyrir verðlaunafé. Hæstu verðlaun sem undirritaður hefur heyrt um er 1.000.000 USD fyrir sigur á móti sem haldið var í júlí árið 2005 í BNA. Nú er ekki óalgengt að bestu tölvuleikjaspilarar í heimi séu að vinna sér inn um 250 þúsund USD á ársgundvelli. Þessi þróun er einnig byrjuð á Íslandi og nýverið var haldið tölvuleikjamótið Hringurinn þar sem peningaverðlaun voru í boði. Um er að ræða árlegan viðburð sem er skipulagður af Tvíund, nemendafélagi tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Þarna mættu um 200 manns til að etja kappi í tölvuleikjunum League of Legends, Counter Strike, Starcraft II og fleiri leikjum. Þegar haft er í huga að hversu hröð útbreiðslan er á leikjatölvum inn á heimili og þann almenna áhuga sem tölvuleikir vekja þá er alveg hægt að ímynda sér að að þeir bestu í heiminum innan einhvers tiltekins leiks geti á endanum haft sömu laun og stjörnur í hefðbundnari íþróttagreinum. Til að átta sig betur á hvert stefnir þá má rifja upp að í nóvember 2010 var leikurinn „Call of Duty: Black Ops” gefin út. Fólk stóð í biðröðum eftir að komast yfir leikinn, sumir voru svo heppnir að komast yfir boðsmiða í útgáfu partý sem voru send út í beinni á Netinu. Meira að segja Chrysler framleiddi jeppa sem var nefndur eftir leiknum. Activision, sem framleiddi leikinn, var einn mánuð að selja fyrir 1.000.000.000 USD (einn milljarður dollara!) þar af seldist fyrir 650.000.000 USD á fyrstu fimm dögunum. Til samanburðar þá var innkoma af Harry Potter and the Deathly Hallows Part 2 aðeins 169.000.000 USD fyrstu sýningarhelgina. Leikurinn „Call of Duty: Modern Warfare 3” toppaði þetta svo með sölu fyrir 750.000.000 USD á fyrstu 5 dögunum eftir útgáfu. Þetta er til marks um að tölvuleikjaiðnaðurinn er ekki lengur bílskúrsiðnaður sem lifir á að selja leiki til þröngs hóps létt nördaðra og feitra hvíta karlmanna heldur iðnaður með fjöldahylli sem er að slá við öðrum greinum skemmtanaiðnaðarins eins og samanburðurinn við sölutölur á Harry Potter gefa til kynna. Annað sem má nefna í þessu samhengi er að í dag er svo komið að 42% iðkenda eru konur. Könnun á aldursdreifingu hafa einnig leitt i ljós þær athyglisverðu niðurstöður að stór hluti spilara í heimahúsum í dag er miðaldra fólk sem ólst upp við tölvuleiki níunda áratugarins, eins og Pac-Man og Space Invaders í spilakössum í leikjasölum. Þessi hópur er að spila tölvuleiki í bland við ungt fólk sem ólst upp við Playstation og Xbox. Aðdráttarafl tölvuleikja er að þeir gera leikmanninum kleift að upplifa ævintýri í ímynduðu umhverfi allt frá geimóperum í fjarlægum vetrarbrautum til hlutverkaleikja sem gerast t.d. á hinum myrku miðöldum. Spilun tölvuleikja í hófi getur veitt skemmtun og eR Hægt að HaFa líFsviðuRvæRi aF spilun tölvuleikja Jón Harrý Óskarsson, Microsoft Services Iceland Frá ónefndu tölvuleikjamóti

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.