Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 32
32
Í kjölfarið af snjallsíma- og spjaldtölvubyltingunni sem hófst fyrir nokkrum
árum síðan má segja að nýtt skeið í rekstri tölvukerfa og upplýs ingatæknisviða
hafi byrjað víða um heim. Það sem margir í dag kalla neytendavæðingu
upplýsingatækniiðnaðarins kristallast í hugtaki sem heyrist æ oftar hjá
fyrirtækjum.
BYOD eða ‚ Bring Your Own Device‘ er hugmyndafræði sem snýr að því að
starfsmenn fyrirtækja noti frekar sín eigin tæki við dagleg störf heldur en að
fyrirtækin sjálf setji stefnu um það hvaða tæki eru notuð og útvegi
starfsmönnum tæki í leiðinni. Við fyrstu sýn lítur þetta út fyrir að vera beggja
hagur; starfsmaður fær að nota tæki sem honum líkar betur við og fyrirtæki
þurfa ekki að kaupa tæki sem er síðan sett í hendur starfsmanns. En eins og
mörg fyrirtæki hafa verið rekin að undanförnu þá er reynslan ef til vill önnur.
Allt frá því að snjallsímabyltingin hófst fyrir alvöru í kringum árið 2010 þá hefur
þrýstingur aukist á upplýsingatækni- og tölvusvið fyrirtækja um að gefa leyfi
fyrir því að þessi nýju tæki verði notuð innan fyrirtækja. Þrýstingurinn um
notkun tækjanna kemur því að neðan, þ.e. frá starfsmönnunum sjálfum því að
öllu jöfnu hefur það verið yfirstjórn og í kjölfarið tæknisvið fyrirtækjanna sem
hafa séð um að koma tækjum í umferð og sjá um rekstur þeirra. Oftar en ekki
hefur verið haft lítið samráð við endanotendurna sem sitja þá uppi með tæki
sem á að þjóna ákveðnum tilgangi en stendur síðan á endanum ekki undir
væntingum.
BYOD hefur því breytt miklu fyrir þá sem hafa tekið ákvarðanir um tækjanotkun
hjá fyrirtækjunum og fært valdið í hendur starfsmannanna sem eru þegar öllu
er á botninn hvolft þeir sem þurfa að nota tækið. Misjafnt er eftir fyrirtækjum
hvernig innleiðing á þessari hugmyndafræði hefur gengið, í mörgum tilvikum
hefur þetta gengið vel og starfsfólk hefur fengið að velja sér þau tæki sem
það vill en í fyrirtækjum sem gera miklar öryggiskröfur og halda uppi ströngu
aðgengi að upplýsingum, eins og bankar og aðrar stofnanir, hefur þetta
reynst erfiðara.
Þungamiðjan í þessari snjallsíma- og spjaldtölvubyltingu er Android-stýrikerfið
frá Google. Það sem Google lagði af stað með í upphafi með stýrikerfinu var
að gera það aðgengilegt fyrir hvern þann framleiðanda sem vill og sá Google
fyrir sér að þetta yrði ein besta leiðin til þess að halda hinum ýmsum
þjónustuleiðum Google að símanotendunum eins og t.d. Gmail og Maps-
lausninni sem og leitarvélinni Google. Einnig skipti það Google máli að hafa
stýrikerfið eins opið og mögulegt væri fyrir hvern þann sem vill eiga við það
og búa til smáforrit fyrir það eða ‚apps‘ eins og slík forrit eru kölluð í daglegu
tali.
Hins vegar hefur hin tröllaukna notkun á Android-stýrikerfinu síðastliðin þrjú
ár orðið til þess að stýrikerfið er um þessar mundir skotspónn tölvuhakkara
og annarra óprúttina aðila sem vilja valda sem mestum vandræðum fyrir
notendur. Samkvæmt tölum frá Trend Micro þá hefur aukning í vírusum og
annarri óværu í Android-stýrikerfinu stigmagnast á undanförnum mánuðum
og vill Trend Micro meina að eitt af hverjum tíu smáforritum fyrir Android-
stýrikerfið í umferð sé einhvers konar vírus.
Samkvæmt tölum sem birtust í nýlegri skýrslu frá Trend Micro* þá greindust
293.091 smáforrit sem hreint og beint ‚malware‘ eða óværa og til viðbótar þá
voru önnur 150.203 smáforrit skilgreind sem líkleg forrit til þess að valda
miklum skaða. Í þessu samhengi má nefna að það tók Windows-stýrikerfið
frá Microsoft 14 ár að fá sambærilegan fjölda af óværum. Af þessum 293.091
smáforritum þá voru 68.740 sem áttu uppruna sinn í Google Play, forritaveitu
Google fyrir Android-stýrikerfið. Alls voru 22% af þessum smáforritum talin
leka óþarfa notendaupplýsingum til þriðja aðila.
Trend Micro skoðaði í þessari skýrslu
sinni um 2 milljónir af smáforritum fyrir Android-stýrikerfið og af þessari tölu
eru um 700.000 í Google Play.
Þrátt fyrir þessa stöðu er BYOD þó langt í frá að vera ein löng hörmungarsaga
því mörg fyrirtæki víða um heim tala um ótvíræða kosti þess að fara eftir
þessari hugmyndafræði og eru atriði eins og sparnaður, aukin ánægja
starfsmanna, aukin afkastageta, sveigjanlegri vinnutími og margt fleira nefnd.
Á móti þurfa fyrirtæki og þeir sem halda utan um tækjarekstur fyrir fyrirtækin
að spyrja sig þessara spurningar: Hvernig held ég uppi öryggi? Hver á að
hafa kunnáttu á öll þessi tæki? Mega starfsmenn fara inn á hvaða heimasíður
sem er? Hver ber ábyrgð á tækinu? Hefur þessi stefna áhrif á lagaumhverfið
sem fyrirtækið starfar í? Er þetta öruggt?
Reynslan hefur sýnt að til þess að BYOD-stefna heppnist hjá fyrirtæki þá þarf
að huga að öryggismálunum og í því tilliti hafa stærri fyrirtæki tekið í notkun
tækjastjórnunarlausnir (MDM) sem geta fylgst með því hvaða tæki eru í
umferð, hvaða öryggisstefnur eru uppsettar fyrir það og takmarkað aðgengi
notenda að t.d. því hverju er hægt að hlaða niður, hvert er farið á Netinu og
eins hvaða gögn eru aðgengileg fyrir notandann.
BYOD getur því virkað vel sem lausn fyrir ákveðnar tegundir af fyrirtækjum en
það liggur alveg fyrir að BYOD-útfærslan án öryggisuppsetningar og
skipulegs verklags eftir innleiðingu getur valdið leiðindum og á endanum
kostað fyrirtæki meira heldur en lagt var af stað með í upphafi.
Í því sambandi er hægt að horfa til þess hvað framleiðendur eru að gera og
hvaða tæki eru þar í boði en allir helstu framleiðendur á snjallsímum og
spjaldtölvum, sem og framleiðendur þeirra helstu snjallsímastýrikerfa sem eru
á markaðnum, eru meðvitaðir um þessa þróun og eru að gera margt til þess
að mæta kröfum neytenda og fyrirtækja í þessum efnum.
Framboðið á tækjum fyrir starfsfólk á ferðinni hefur aukist gríðarlega á
undanförnum misserum og því er ljóst að hin gamaldags stefna um að eitt
ákveðið tæki sé í boði fyrir starfsmenn er að líða undir lok. Þó svo að fyrirtæki
taki þá ákvörðun að fylgja t.d. einu stýrikerfi eða kaupa bara tæki frá einum
framleiðanda þá er það auðveldara í dag en fyrir tíu árum síðan þegar fyrstu
snjallsímarnir voru að koma á markaðinn. Framleiðendur taka mið af
mismunandi kröfum fyrirtækja og eru t.a.m. að nota eitt stýrikerfi yfir breiða
línu af símtækjum. Misjafnt er eftir stýrikerfisframleiðendum hvaða áherslur
eru lagðar fyrir framleiðendur símtækjanna um hvaða vélbúnað þau þurfa að
uppfylla en fastmótuð stefna í þeim efnum getur tryggt aukið samræmi milli
tækja á mismunandi verðbili.
Aðilar í rekstri tölvukerfa og framleiðendur eru þó sammála um eitt að það
versta í stöðunni sé að gera ekki neitt. BYOD er komið til með að vera og því
þurfa fyrirtæki að taka afstöðu til þessarar hugmyndafræði og hvort eigi að
innleiða hana með formlegum hætti eða hafna henni alfarið.
Eins þarf að hafa í huga að þó svo að til séu öryggislausnir og tækja-
stjórnunarkerfi þá getur það verið varasamt að taka í notkun t.d. símtæki sem
keyra á stýrikerfum sem eru vinsæll skotspón fyrir tölvuhakkara og þá sem
eru að leita að öryggisglufum hjá fyrirtækjum. Á endanum snýst þetta líka um
notandann sjálfan og þankagang þeirra sem nota tækin því tækið sjálft og
lausnirnar eru aldrei eins örugg og sá sem nýtir sér tæknina í leik og starfi.
*http://www.trendmicro.co.uk/media/ds/mobile-app-reputation-service-
datasheet-en.pdf
byod – lauSn eða
leiðindi?
Magnús Viðar Skúlason, starfar sem vefstjóri og sérfræðingur í fjarskiptalausnum og er í
hjáverkum einnig ritstjóri Tæknibloggsins, www.taeknibloggid.is