Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 24

Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 24
UTmessan 2013 Upplýsingatæknimessan var haldin í þriðja sinn 8. og 9. febrúar 2013 í Hörpu í formi ráðstefnu og sýningar á föstudegi fyrir fagfólk í upplýsingatækni og sýningu og örkynningum sem var opinn öllum á laugardegi. Upplýsinga tækniverðlaun Ský voru einnig veitt á UTmessunni. Að UTmessunni 2013 stóð Skýrslutæknifélagið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, og Samtök iðnaðarins með dyggum stuðningi CCP, Nýherja, Opnum kerfum og Microsoft Ísland. Yfir 700 manns voru á ráðstefnu UTmessunnar föstudaginn 8. febrúar sem tókst gífurlega vel. Yfir 50 fyrirlestrar voru í boði á 8 þemalínum ráðstefnunnar. Yfir 5 þúsund manns mættu á opið hús laugardaginn 9. febrúar og var stemming mjög góð. Ungir sem aldnir gengu um og fengu að sjá nýjustu tækni og mjög vinsælt var að fá að prófa DUST 514 tölvuleikinn ásamt því að setjast niður og prófa að forrita með leiðsögn ungra krakka. Mikið var um að vera í sýningarbásum fyrirtækjanna sem skörtuðu sínu fegursta á messunni. Það er óhætt að segja að UTmessan hefur stimplað sig inn hjá Íslendingum og lítur út fyrir að viðburðinn muni vaxa og dafna enn meira á næstu árum. Undirbúningur fyrir UT messuna 2014 er farin af stað og er það von okkar að enn fleiri taki þátt í henni en þeirri fyrstu og við getum þannig sýnt Íslendingum hve mikill hugur er í fólki í UT geiranum. 24

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.