Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 13

Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 13
13 Á þeim stutta tíma sem Facebook hópar skólafólks hafa verið starfræktir hafa fjölmörg dæmi um samráð, samstarf og efnismiðlun, sýnt fram á gagnsemi þeirra fyrir skólaþróun í landinu. Með réttu má telja þennan nýja vettvang til hluta af möguleikum kennara til símenntunar og starfsþróunar sem fram fer óháð tíma og stað. Vettvangurinn rýfur því einangrun og jafnar möguleika og aðgengi kennara á öllu landinu að fræðslu, efni og starfssamfélagi jafninga. Samfélagsmiðlar eiga drjúgan þátt í að styrkja starfssamfélag Sérkennslutorgsins. Tengslamyndun við þátttakendur í hópum og á síðum sem tengjast viðfangsefnum Sérkennslutorgsins styrkir starfsamfélagið og hefur hingað til reynst afar gagnlegt. Má þá sérstaklega nefna hópa og síður sem tengjast spjaldtölvum í sérkennslu um SpjaldTölVur í SérkennSlu Á síðustu misserum hefur sala á spjaldtölvum aukist og er svo komið að fleiri spjaldtölvur eru seldar á heimsvísu en hefðbundnar einkatölvur. Þó spjaldtölvur teljist enn ekki sem almennur búnaður í skólastarfi hafa þó nokkur áhugaverð þróunarverkefni verið unnin í skólum hér á landi. Þessi verkefni eru mikilvæg sem fyrirmyndir fyrir væntanlega og aukna spjaldtölvunotkun í skólastarfi. Reynslan sýnir að spjaldtölvur hafa fjölþætt gildi í sérkennslu og margvíslega notkunarmöguleika. fyrSTa SpjaldTölVan í SafamýrarSkóla Um áramót 2010-2011 fékk Safamýrarskóli, sem þá var og hét, gefins Ipad frá Sunnusjóði. Ákveðinn nemendahópur Safamýrarskóla var á þeim tíma með miklar sérþarfir. Þeir voru með fjölfötlun og margir með alvarlega þroskahömlun. Það var því hreint stórkostlegt að fá að vera vitni að og upplifa fyrstu skiptin sem þessir nemendur fengu tækið í hendurnar. Spjaldtölvan er næm á snertingu svo ekki þarf mikið til að fá viðbrögð. Þó svo að hreyfifærni sé afar takmörkuð þarf ekki nema örlitla snertingu og nemendur geta sjálfir kallað fram hljóð, mynstur, liti og fleira á skjáinn. Þeir eru himinlifandi yfir því að geta haft áhrif á umhverfi sitt. Stærð spjaldtölvunnar gerir það að verkum að hægt er að leggja hana í fang eða stilla fyrir framan nemanda svo að hann getur unnið sjálfstætt. Sum smáforritin sem gagnlegt er að nota með hópi nemenda með mikið skerta skynjun hafa einnig titring. Þegar skjárinn er snertur koma hljóð, mynstur og titringur. Það gerir upplifunina enn áhrifaríkari. Andlitin ljóma og nemendur finna að þeir geta gert alveg sjálfir, án hjálpartækja og án stuðnings frá kennara eða aðstoðarmanneskju. Á þessum árum sem liðin eru síðan að fyrsta spjaldtölvan kom í Safamýrarskóla eru komnar fjórar nýjar uppfærslur af Ipad og hann er sífellt að verða þróaðri með margvíslegum möguleikum á notkun. Má segja að með tilkomu myndavélarinnar í spjaldtölvunni hafi skapast mörg skemmtileg tækifæri til að vinna með námsefni og tengja myndir af nemendum og þeirra nærumhverfi við verkefni sem þeir vinna í smáforritum spjaldtölvunnar. Hljóðupptaka er einnig gríðarlega mikilvæg og kemur sér vel í málörvun því nemendum finnst oft áhugavert að hlusta á sjálfa sig og virkar það hvetjandi fyrir nemendur sem annars eru ekki duglegir að nota málið. Til eru mörg góð smáforrit til boðskipta í spjaldtölvum og nemendur sem eru með skertan málþroska og tjá sig með myndum geta með hjálp spjaldtölvunnar náð að tjá sig á markvissari hátt en áður. Ef nemendur hafa færni til er hægt að færa boðskiptaforritið yfir í Ipod eða Iphone sem er mun minni fyrirferðar en á engan hátt síðri sem boðskiptatæki. Hingað til hefur framleiðsla gagnlegra smáforrita í sérkennslu verið mun meiri í Ipad en Android spjaldtölvum. Því hefur hefur Ipad reynst gagnlegra og fjölbreyttara kennslutæki fram að þessu. Stýrikerfi Ipadsins er einnig sérlega þægilegt og viðmótið aðgengilegt. Þess má einnig geta að Apple er með ákveðið gæðaeftirlit og til að koma smáforriti á markað þarf það fyrst að vera samþykkt af Apple sem setur það inn í Appstore. Enn er ekki hægt að nota íslenska talgervla í Ipad en það er hins vegar hægt í Android spjaldtölvum og talgervlarnir virka sérlega vel í Windows spjaldtölvum. Vonir standa til þess að Apple fyrirtækið samþykki stuðning við íslensku talgervlana svo að hægt verði að nota þá í Ipad líka enda eykur það gildi þessara aðgengilegu og útbreiddu spjaldtölvu til muna. SmáforriT og aðlögun þeirra að íSlenSku Öflug framleiðsla smáforrita gerir það að verkum að mikilvægt er að fylgjast vel með nýútkomnum smáforritum og skoða hvort þau henti í sérkennslu. Við hér á Íslandi erum sífellt að leita að smáforritum sem hægt er að laga að íslensku tungumáli. Nefna má framleiðendur sem gefa út smáforrit með miklum möguleikum á aðlögun en það eru til dæmis Alligator og Grasshoppers. Í dag er spjaldtölvan að verða æ algengari í kennslustofunni. Nemendur eru einnig í auknum mæli að eignast sínar eigin spjaldtölvur. Góðar spjaldtölvur eru dýrar og vitanlega ekki á færi allra foreldra að kaupa slík tæki fyrir börnin sín. Því er svo farið að ef spjaldtölvuvæða á skóla, þarf að skera niður af öðrum útgjaldaliðum. Enn sem komið er eru ekki veittir sérstakir fjárstyrkir til spjaldtölvukaupa og því er það algerlega undir stjórn skólans komið hver áherslan er hverju sinni og hvort keyptar eru spjaldtölvur fyrir nemendur. Það er engum vafa undirorpið að allir nemendur með sérþarfir geta nýtt sér spjaldtölvu. Þeir nýta hana á mismunandi hátt og einn helsti kostur spjaldtölvunnar er einmitt fjölbreytt framboð kennsluefnis og því hægt að finna efni sem hæfir getu hvers og eins. Spjaldtölvan er mikilvæg viðbót í námi barna með sérþarfir og án efa verður hún innan fárra ára jafn mikilvæg í skólastarfinu og blýantur og blað. Reynsla af fyrsta starfsári Sérkennslutorgsins, upplifun af virkni og samstarfi kennara í samfélagsmiðlum og sú áhugaverða virkni sem á sér stað í tengslum við notkun spjaldtölva í skólastarfi er hvetjandi fyrir kennara sem leggja sig fram í störfum sínum á 21. öldinni. Það er ekki síst áhugasömum kennurum að þakka að Sérkennslutorgið er til og vilja þeirra til að deila með sér efni og hugmyndum. Öll þessi gerjun eykur trú á að símenntun og starfsþróun kennara muni stuðla að skólaþróun sem þörf er á nú á tímum margvíslegra breytinga sem bæði eru krefjandi en um leið áhugaverðar og spennandi að takast á við.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.