Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 33

Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 33
33 Hilmar Veigar er góð fyrirmynd og frumkvöðull. Hann hefur verið óþreytandi í að vinna með og styðja menntastofnanir, allt frá grunnskóla upp í háskóla, þegar kemur að upplýsingatæknimiðuðu námi. Hilmar er verðug fyrirmynd unga fólksins og sýnir svo ekki verður um villst að hægt sé að ná langt með þrautseigjunni og að ekkert gerist ef ekki er haldið af stað og haldið áfram þó að móti blási. Hann hefur einnig í gegnum starf sitt hjá CCP og samtökum upplýsingafyrirtækja aukið almennan áhuga á upplýsingatækni og nýsköpun. Hilmar Veigar Pétursson hefur starfað sem framkvæmdastjóri CCP frá 2004 og alla tíð síðan leitt fyrirtækið í gegnum viðvarandi velgengni og gríðarlegan vöxt. Meðal verkefna sem hann hefur tekist á við eru umtalsverð stækkun reksturs fyrirtækisins í Shanghai, Kína og samruna við White Wolf Publishing í Atlanta árið 2006. Hilmar hefur tryggt sess CCP sem leiðandi afls á tölvuleikjamarkaði og er þekktur sem frumkvöðull í þróun sýndarveruleika, útgáfu sýndarveruleikaleikja og þróun tækninnar á bak við slíka leiki. Hann var nefndur einn af 20 áhrifamestu mönnum á sviði nettölvuleikja (e. MMO Industry) árin 2007 og 2008 af Beckett Massive Onliner Gamer Magazine. Hilmar er eftirsóttur fyrirlesari og hefur m.a. talað á Edinburgh Interactive Festival, Nordic Game Conference og the Austin Game Developer’s Conference. Hilmar gekk til liðs við CCP árið 2000 sem yfirmaður tæknimála (CTO) og leiddi verkefnið EVE Online sem leit dagsins ljós árið 2003. Áður starfaði Hilmar hjá SmartVR og OZ. Nýlega hefur CCP fyrirtækið tengt saman tvo tölvuleiki DUST 514 og EVE Online. CCP hefur náð þeirri stöðu að mestur hluti tekna félagsins er erlendis frá og telur því í samtölu útflutningstekna þjóðarinnar. Hilmar Veigar tekur virkan þátt í mótun vaxtar íslensks hugvits með setu í ýmsum stjórnum og ráðum sem tengjast upplýsingatækni og frumkvöðlastarfsemi henni tengdri. Hilmar er tölvunarfræðingur B.S. frá Háskóla Íslands. Leikjaiðnaðurinn er nú orðinn einn af máttarstólpum í útflutningi skapandi greina. Hilmar og samstarfsfólk hans hjá CCP hafa komið að og hvatt til hugmyndaauðgi í sprotastarfsemi og þannig tekið þátt í vexti tölvuleikjaiðnaðar á Íslandi og aðstoðað þar sem þeir hafa getað. CCP er einkafyrirtæki sem margir rekstraraðilar horfa upp til og leitast við að gera sambærilega hluti og ná árangri. Oftar en ekki leita þessir aðilar ráða hjá Hilmari sem góðfúslega hefur deilt áralangri reynslu sinni og tengslaneti, því Hilmar veit að ólíkt flestum auðlindum sem eyðast þegar þær eru notaðar þá má segja að þekking vaxi sé henni deilt. Hilmar snertir strengi víða og heyrst hefur að ungur drengur hafi horft á mynd af Hilmari, litið á móður sína og sagt: „Ég ætla sko að verða tölvunörd eins og hann„. Það er Skýrslutæknifélagi Íslands mikill heiður að veita Hilmari Veigari Péturssyni þessa viðurkenningu. Verðlaunagripurinn er glerlistaverk eftir Ingu Elínu listamann. um upplýSingaTækniVerðlaun Ský Upplýsingatækniverðlaun Ský eru heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi. Skýrslutæknifélag Íslands (Ský) veitir verðlaunin og eru þau að danskri fyrirmynd og er veiting þeirra er árleg frá árinu 2010. Tilfnefningar og Val Hægt er að tilnefna einstakling eða forsvarsmann fyrirtækis eða verkefnis sem hefur skarað framúr á sviði upplýsingatækni, skapað verðmæti og auðgað líf Íslendinga með hagnýtingu á upplýsingatækni. Áhersla er lögð á að framlagið hafi þegar sannað sig með afgerandi hætti. Allir í tengslaneti Ský geta sent inn tilnefningar. Valnefndin getur einnig sent inn tilnefningar. Hver aðili getur aðeins sent inn eina tilnefningu og skal hún rökstudd. Eftir að fresti til tilnefninga lýkur velur valnefnd þann aðila sem þykir skara framúr og skal hún vera einróma um valið og rökstyðja það vel. Tilnefningar skulu sendar í tölvupósti til sky@sky.is og skal rökstyðja tilnefningu svo valnefnd hafi forsendur til að meta hvort um sé að ræða framlag sem kemur til álita við val á verðlaunahafa. Valnefnd Árlega skipar stjórn Ský valnefnd sem hefur sérþekkingu og reynslu á sviði upplýsingatækni. Valnefnd samanstendur af tveimur síðustu verðlaunahöfum, fulltrúa frá samtökum upplýsingatækni fyrirtækja, fulltrúi háskóla, fulltrúi styrktaraðila, fulltrúi stjórnar Ský ásamt starfandi framkvæmdastjóra Ský. VerðlaunaHafar frá uppHafi • Friðrik Skúlason fékk fyrstu Upplýsingatækiverðlaun Ský 20. maí 2010. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra afhenti honum verðlaunin á UT-deginum. • Reiknistofa bankanna fékk önnur Upplýsinga tækni verðlaun Ský 18. mars 2011. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin á UTmessunni. • Maríus Ólafsson fékk þriðju Upplýsingatækniverðlaun Ský 9. febrúar 2012. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR afhenti verðlaunin á UTmessunni. • Hilmar Veigar Pétursson fékk fjórðu Upplýsingatækni verðlaun Ský 8. febrúar 2013. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin á UTmessunni. Rökstuðningur valnefndar er birtur á vef Ský ásamt myndum frá verðlaunaafhendingum. Við hvetjum alla sem tengjast UT geiranum til að senda inn tilnefningar og auka þannig breidd þeirra sem koma til greina við næstu veitingu verðlaunanna sem verður á UT messunni 2014. Hilmar Veigar péTurSSon fær uT Verðlaun Ský 2013 Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, fékk UT verðlaun Ský 2013 en þetta er í fjórða sinn sem verðlaunin eru afhent. Það var forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem afhenti Guðrúnu E. Stefánsdóttur, eiginkonu Hilmars Veigars, verðlaunin á UTmessunni í Hörpu, en Hilmar var staddur erlendis starfa sinna vegna.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.