Morgunblaðið - 10.08.2015, Síða 18
18 UMRÆÐAN Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015
Hinn 15. apríl 2013
varð Ísland fyrst Evr-
ópuríkja til að und-
irrita fríversl-
unarsamning við Kína.
Fríversl-
unarsamningur smá-
ríkisins við stærstu
verslunarþjóð og næst-
stærsta hagkerfi
heims vakti alþjóðaathygli og opnar
ýmis tækifæri til samkeppn-
isforskots íslenskra fyrirtækja. Kína
hefur einungis undirritað átta aðra
tvíhliða fríverslunarsamninga en
þeim hafa jafnan fylgt mikill vöxtur
í verslun aðila. Til að mynda nánast
þrefaldaðist útflutningsverðmæti
Nýja Sjálands til Kína á fjórum ár-
um frá gildistöku fríverslunarsamn-
ings árið 2008, úr 283 milljörðum í
821 milljarð króna.
Rúmu ári eftir gildistöku fríversl-
unarsamningsins hefur verslun á
milli Íslands og Kína ekki tekið
þann kipp upp á við sem margir
reiknuðu með. Framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu
sagði í seinasta mánuði reynslu af
samningnum hingað til vonbrigði og
að lítil aukning hafi átt sér stað síð-
an í innflutningi frá Kína (fimmti
stærsti innflytjandi til Íslands). Á
meðan dróst útflutningur til Kína
saman á milli 2013 og 2014, en fór þó
ágætlega af stað á fyrsta ársfjórð-
ungi 2015. Kína er þó einungis í 21.
sæti yfir útflutningslönd Íslands og
árið 2014 var viðskiptahalli við Kína
nærri nífaldur, eða 4,9 milljarðar í
útflutningsverðmæti á móti 42 millj-
örðum í innflutning. Það er því ljóst
að mikið verk er fyrir höndum í að
koma íslenskum vörum betur á
framfæri og bæta hag neytenda með
tollfrjálsri vöru frá stærsta útflytj-
anda heims.
Heimur á hraðri ferð
Ýmsir hafa gagnrýnt að talað sé
um Asíumarkað sem mikilvægan.
Staðreyndin er sú að staða efna-
hagsmála heimsins hefur breyst og
þunginn mun færast enn frekar
austur á bóginn. Í maí síðastliðnum
kom út áhugaverð bók um framþró-
un heimsmála skrifuð af þremur
starfsmönnum McKinsey ráðgjafar-
fyrirtækisins. Bókin heitir, No Or-
dinary Disruption, og setur m.a.
þéttbýlismyndun í Asíu í samhengi
við breytta heimsmynd. Höfundar
áætla að þrír milljarðir manna, að
langmestu leyti í Asíu, bætist við
„stétt neytenda“ frá 1990-2025.
„Millistéttin“ (þeir sem hafa ráðstöf-
unartekjur yfir 1.350 kr. á dag)
verður því orðin 4,2 milljarðar eða
rúmlega helmingur mannkyns árið
2025. Á næstu tíu árum áætla höf-
undarnir að helmingur umfram-
hagvaxtar heimsins komi frá 440
borgum í nýmarkaðsríkjum, þar af
verði 20 þeirra í „risaborgum“ (með
yfir 10 milljónir íbúa).
Ein þessara risaborga er Tianjin í
Kína, 130 km suðaustur af Peking
með 11,5 milljónir íbúa. Árið 2010
var hagkerfi Tianjin um 17,5 þúsund
milljarðar króna, eða nærri tífalt
stærra en hagkerfi Íslands það árið
og á stærð við hagkerfi Stokkhólms.
Árið 2025 er áætlað að hagkerfi
borgarinnar verði nær 84 þúsund
milljörðum króna eða á stærð við
hagkerfi Svíþjóðar í heild sinni. Lík-
legt verður þó að teljast að fá fyrir-
tæki á Íslandi hafi litið til Tianjin
sem álitlegs markaðar og það á ef-
laust við um margar aðrar stórar
borgir í Kína að undanskildum Pek-
ing, Guangzhou og Sjanghæ.
Kné þarf að fylgja kviði
Með hliðsjón af ofangreindu má
telja að umfang starfsemi utanríkis-
þjónustunnar í Asíu endurspegli
ekki mikilvægi þess markaðssvæðis.
Sem stendur er Ísland með tvo út-
senda starfsmenn í sendiráðinu í
Peking. Sér til halds og trausts hafa
þeir einn viðskiptafulltrúa, tvo rit-
ara, túlk og bílstjóra. Auk Kína er
sendiráðið í Peking með níu önnur
umdæmislönd, þar á meðal stór-
þjóðir á borð við Víetnam (93,3 millj.
íbúa), Ástralíu (23,6 millj.) og Suður-
Kóreu (49,5 millj.). Samkvæmt áætl-
un worldmeters.info í júní 2015 var
mannfjöldi umdæmisríkjanna tíu
samanlagt 1.682.491.633 manns eða
um 840 milljónir á hvorn útsenda ís-
lenska starfsmanninn við sendiráðið
í Peking.
Annar höfunda þekkir af eigin
raun að sendiráðið í Peking veitir af-
bragðsþjónustu og vissulega eru
ekki mjög margir Íslendingar á
þessu svæði. Það hlýtur hins vegar
að vera lögmæt spurning hvort
áþreifanlegar áherslubreytingar í
takt við aukin tækifæri þurfi ekki að
fylgja þegar fríverslunarsamningur
er gerður við fjölmennasta ríki
heims. Þannig er Ísland jafnframt
eitt Norðurlanda ekki með ræðis-
skrifstofu í Sjanghæ, stórborg sem
rúmar mannfjölda allra Norður-
landanna samanlagt og er ein helsta
flutninga- og fjármálamiðstöð
heims.
Dæmin að ofan sýna þörfina til að
endurskoða áherslur íslenskra hags-
munaaðila í tengslum við fríverslun-
arsamninginn við Kína. Nú er lag að
nýta samkeppnisforskotið sem
samningurinn veitir. Tækifærin eru
margvísleg og sé vel að verki staðið
getur samningurinn aukið hagsæld
á Íslandi, í formi lægra vöruverðs
heima fyrir og aukins útflutnings-
verðmætis frá Íslandi.
Það eru þó nokkur praktísk atriði
sem þarf að huga sérstaklega að s.s.
kröfur í tengslum við uppruna, leyf-
ismál og að sjálfsögðu sjálfur flutn-
ingurinn milli landanna en eins og
staðan er núna eru möguleikarnir
takmarkaðir. Ekkert gerist af sjálfu
sér í þessum efnum og ljóst að kné
þarf að fylgja kviði í aðgerðum
stjórnvalda, ríkisstofnana, hags-
munasamtaka og fyrirtækja sem
verða að leggjast öll á eitt ef samn-
ingurinn á að reynast happafengur
fremur en glatað tækifæri.
Eftir Egil Þór
Níelsson og Helga
Má Jósepsson
» Ísland varð fyrst
Evrópuríkja til að
undirrita fríverslunar-
samning við Kína. Það
er í okkar höndum hvort
hann reynist happa-
fengur eða glatað tæki-
færi.
Egill Þór Níelsson
Egill er framkvæmdastjóri Kínversk-
Norrænu norðurslóðamiðstöðvar-
innar. Helgi er lögfræðingur hjá
KPMG ehf.
Helgi Már Jósepsson
Fríverslunarsamn-
ingur við Kína:
Vannýtt tækifæri
eða hæg framför
✝ Magnús Þorsteins-son fæddist í
Reykjavík 15. október
1918. Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli 26.
júlí 2015.
Foreldrar: Þorsteinn
Kristinn Magnússon,
verkamaður, fæddur í
Kolsholtshelli í Villinga-
holtshreppi í Árnessýslu
1892, d. 1976, og eigin-
kona hans Helga Þor-
gerður Guðmundsdóttir, húsmóðir í
Reykjavík, f. 1896, d. 1967. Helga Þor-
gerður var barnabarn sagnaritarans
Sighvats Grímssonar Borgfirðings og
Ragnhildar Brynjólfsdóttur eiginkonu
hans.
Systkini Magnúsar: Sigmundur Ólaf-
ur, f 1917, d. 1937; Ragnar Gunnar, f.
1920, d. 1920; Gunnar, f. 1921, d. 2013;
Sigríður, f. 1922, d. 1923; Steinar, f.
1924, d. 2007; Ragnhildur, f. 1925, d.
2005; Sighvatur, f. 1927, d. 1986; Sigríð-
ur, f. 1930, d. 2014.
Eiginkona: Helga Guðbjörnsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík, f. 13.4. 1923. For-
Matthildur, f. 1985; 5) Gunnlaugur, f.
28.8.1957, arkitekt, eiginkona Margrét
Aðalsteinsdóttir. Þeirra sonur: Daði, f.
1989. Langafabörn Magnúsar og Helgu
sem komust á legg eru 23 talsins.
Magnús ólst upp í stórri verka-
mannafjölskyldu í Reykjavík, gekk í
Miðbæjarskólann í Reykjavík, en fór
ungur að vinna fyrir sér. Vann á sumrin
í sveit frá 10 til 12 ára aldurs. Far-
mennska Magnúsar hófst í desember
1936 með es. Goðafossi (II). Fyrsta
starf: káetu- og vikadrengur, síðar
messadrengur, óvaningur, viðvaningur
(„léttmatrós“) og háseti. Magnús sigldi
á Goðafossi í síðari heimsstyrjöldinni á
milli þess sem hann stundaði nám í
Stýrimannaskólanum en á þeim tíma
var Goðafoss skotinn niður af þýskum
kafbát. Útskrifaðist frá farmannadeild
skólans 1946, fékk stýrimannsstöðu
1948. Á ýmsum „fossum“ Eimskipa-
félagsins næstu árin. Tók við skipstjórn
í afleysingum 1958 uns hann var ráðinn
skipstjóri í júlí 1961. Skipstjóri til árs-
loka 1983, fór þá á eftirlaun 65 ára eftir
47 ára sjómennsku. Vann eftir það tvö
sumur í afleysingum sem hafnsögu-
maður við Reykjavíkurhöfn.
Útför Magnúsar fer fram í dag, 10.
ágúst 2015, frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík og hefst athöfnin klukkan 13.
eldrar: Guðbjörn Hansson
lögregluvarðstj. í Reykjavík
og Guðfinna Gunnlaugs-
dóttir, húsmóðir.
Magnús og Helga gengu í
hjónaband 8.7. 1944 sem
varði í 71 ár. Þeirra börn: 1)
Guðbjörn, f. 11.5. 1944, loft-
skeytam. og eftirlitsmaður,
eiginkona Elín Birna Sigur-
geirsdóttir. Börn: a) Þor-
steinn Helgi, f. 1966, barns-
móðir: Hallfríður
Þorsteinsdóttir. Börn Guðbjörns og El-
ínar: b) Sigurgeir, f. 1970 og c) Goði
Már, f. 1976; 2) Þorsteinn Helgi, f. 19.5.
1946, loftskeytamaður, eiginkona Guð-
rún Margrét Jóhannsdóttir. Dóttir
þeirra: Áslaug Erlín, f. 1984; 3) Birna
Guðfinna, f. 16.3. 1949, húsmóðir, eigin-
maður Bjarni Jónsson, þau skildu. Börn
þeirra: a) Helga Lára, f. 1968, b) Ingv-
ar, f. 1973, d. 1973, c) Magnús, f. 1974,
d) Linda Björk, f. 1979; 4) Magnús Sig-
mundur, f. 29.3. 1953, skrifstofustjóri
og doktor í hagsögu, eiginkona Guðrún
Jóna Óskarsdóttir. Börn þeirra: a)
Hlynur, f. 1976, b) Freyr, f. 1979, c)
Mig langar að minnast tengdaföður
míns, Magnúsar Þorsteinssonar skip-
stjóra. Hann varð 96 ára gamall og læt-
ur eftir sig eiginkonu, Helgu, sem er 92
ára. Þau bjuggu í farsælu hjónabandi í
71 ár og studdu vel við hvort annað þeg-
ar heilsa þeirra varð fyrir skakkaföllum
gegnum árin. Fyrir allmörgum árum
síðan missti Helga sjónina og var Magn-
ús henni mikil hjálparhella meðan
kraftar hans leyfðu og samhjálp þeirra
var ætíð gagnkvæm. Þau áttu miklu
barnaláni að fagna. Magnús varð á lífs-
leiðinni fyrir nokkrum áföllum vegna
veikinda sem hann náði sér ótrúlega vel
upp úr og var nokkuð ern þar til heilsan
fór endanlega að gefa sig fyrir þremur
árum.
Magnús var skipstjóri á fraktskipum
Eimskipafélagsins og eru mínar bestu
minningar um hann tengdar þeim árum.
Við hjónin bjuggum í Lundi í Svíþjóð og
voru ófáar ferðir farnar til Helsingborg-
ar og Kaupmannahafnar með barna-
börnin til að hitta „afa“ þegar Mánafoss
lagðist að bryggju þar.
Einnig voru nokkur skiptin þar sem
við fengum að sigla með afa á skipinu og
eru tvær ferðir sérstaklega eftirminni-
legar. Önnur ferðin var sigling frá Ham-
borg til Íslands í ótrúlega góðu veðri
fyrstu dagana og með tilheyrandi sólböð-
um á þilfarinu og bridsspili á kvöldin.
Hin ferðin var jólaferð frá Kaupmanna-
höfn til Riga í Lettlandi sem þá var hluti
Sovétríkjanna og upplifðum við í þeirri
ferð ýmis spaugileg atvik og ævintýri.
Nú eru rúmlega 30 ár liðin frá því að
Magnús kom í land og áttu flestir von á
að það yrði erfitt fyrir hann að fóta sig á
ævikvöldi og vera alltaf heima. En
Magnús naut þess og hafði jafnan yndi af
barnabörnum sínum og var í miklu uppá-
haldi hjá þeim. Þau eiga góðar minningar
um afa sinn sem alltaf var til í spila, leika
og sprella með þeim.
Síðustu árin var skammtímaminni
Magnúsar farið að gefa sig en lengst af
var auðvelt að ræða við hann um löngu
liðna atburði og undir það síðasta mundi
hann meira að segja hvað kýrnar hétu á
Litlu-Brekku í Borgarfirði árið 1930 þar
sem hann var í sveit sem drengur. Eldri
sonur okkar hjóna býr í Los Angeles og
gat Magnús alltaf áttað sig á hvar í heim-
inum hann væri búsettur.
Í ljóðabók Matthíasar Johannessen,
Fagur er dalur, sem út kom 1966, koma
fyrir eftirfarandi línur úr ljóðabálkinum
Sálmar á atómöld:
Líf mitt er bátur
gisinn af sól og löngu sumri.
Og hafið bíður.
Án þess að eiga annars kost
sigli ég yfir hafið
í þínu nafni.
(Matthías Johannessen.)
Ég kveð þig tengdapabbi með þessum
ljóðlínum og um leið votta ég Helgu,
börnum þeirra og fjölskyldum samúð
mína.
Guðrún Jóna Óskarsdóttir.
Í huga mér var afi minn alltaf sveip-
aður hetjuljóma og gerði margt á sínum
yngri árum sem barnshugurinn gat bara
reynt að ímynda sér. Mig dreymdi oft um
að hafa upplifað eitthvað af því sem sög-
ur afa gáfu til kynna að hann hefði lent í
en eftir því sem árin liðu áttaði ég mig
betur á því að þau hversdagslegu æv-
intýri sem ég upplifði með honum í gegn-
um barnæskuna voru alveg jafn dýr-
mætt veganesti út í lífið. Alltaf hafði
hann tíma fyrir mig, sama hversu
ómerkilegt erindið var og alltaf fundum
við eitthvað sniðugt til þess að bralla.
Afi hefur reynst frábær fyrirmynd og
var yndisleg manneskja. Ég kveð hann
með söknuð í hjarta en að sama skapi
þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta
þess heiðurs að eiga hann sem afa.
Matthildur Magnúsdóttir.
Magnús Þorsteinsson
✝ Ingimar Kristjánssonfæddist í Hafnarfirði
25. september 1934. Hann
lést eftir mjög stutta legu á
Landakotsspítala 29. júlí
2015.
Foreldrar hans voru
Kristín Halldóra Guð-
mundsdóttir, f. 8. sept-
ember 1902, d. 29. nóv-
ember 1989, og Kristján
Sigurður Sigurðsson, f. 8.
desember 1898, d. 29. októ-
ber 1956. Búsett í Hafnarfirði. Systkini
hans: Sigurður Hákon, f. 1927, Eyjólf-
ur, f. 4. ágúst 1929, d. 17.júní 2012,
Magnús, f. 1937, og Elísabet, f. 1942.
Ingimar var kvæntur Kristínu
Gunnbjörnsdóttur. Foreldrar hennar
voru Guðbjörg María Sigfúsdóttir og
Ottó Níelsson, kjörfaðir Gunnbjörn
Jónsson, þau eru öll látin. Ingimar og
Kristín hafa búið í Hafnarfirði allan
sinn búskap, saman eiga þau soninn
Ingimar fæddist og ólst upp í Hafn-
arfirði, á sumrin var hann sendur í
sveitina vestur á Dýrafjörð til ættingj-
anna og síðan norður að Skeggjastöð-
um í Miðfirði. Hann fór ungur á sjó og
unni sjónum alla tíð og var heiðraður
af Sjómannafélagi Hafnarfjarðar 2002.
Hann var á sjónum uns byrjað var að
byggja álverið í Straumsvík, hann tók
þátt í uppbyggingunni þar, vann síðan
í kerskála á 4 vaktinni og varð verk-
stjóri 1978, hann gegndi því starfi til
starfsloka.
Ingimar og Eyjólfur bróðir hans
áttu saman jörð vestur í Dölum og
höfðu þar fjölmarga hesta sem og í
Hafnarfirði, þeir fóru síðan í sveitina á
vorin með hestana og komu ekki aftur
í bæinn fyrr en á haustin, þar reru
þeir líka til fiskjar á sumrin og höfðu
unun af.
Ingimar var heilsuhraustur allt þar
til fyrir þrem árum að illvígur gestur
lagðist á hann, sem og aðrir fylgikvill-
ar, sem að lokum höfðu yfirhöndina.
Ingimar verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 10. ágúst
2015, kl. 13.
Ingimar, f. 30. ágúst
1978, tilvonandi eigin-
kona hans er Silvía Krist-
jánsdóttir, f. 3. ágúst
1985, sonur Ingimars er
Skarphéðinn Gauti, f. 12.
mars 2009, móðir hans
Sigrún Elfa Jónsdóttir.
Kristín átti tvö börn af
fyrra hjónabandi. 1. Vil-
hjálmur Gunnbjörn Vil-
hjálmsson, f. 1.júní 1970,
eiginkona hans er María
Jakobsdóttir, f. 24. ágúst 1971, saman
eiga þau Monicu Jökulrós, f. 25. sept-
ember 2000. Vilhjálmur átti Arnar
Mána, f.4. janúar 1994, með Öldu Rós
Jensen og María átti Jakob Valby, Al-
exander og Emil Snæ úr fyrri sambúð.
2. Anna María Vilhjálmsdóttir, f.
19.febrúar 1972, synir hennar eru
Christopher Andri Hill, f. 4. febrúar
2000, og Dominic Daði Wheeler, f. 3.
maí 2007.
Elsku kæri pabbi.
Fyrsta alvöru minning mín um okkur er
að klappa hestum, ég var hræddur en hafði
þig. Þannig var það alla tíð, ég hafði alltaf
þig. Ég man hversu gaman mér þótti þegar
þú last ævintýrin fyrir mig og svo seinna
þegar þú lést mig lesa orð og orð, blaðsíðu og
blaðsíðu. Hversu stoltum þú lést mér líða.
Þessi orð, þessar blaðsíður og þetta stolt
gáfu mér ótrúlega margt. Þú varst svo stolt-
ur af því að vera Hafnfirðingur og FH-ingur.
Ég man þegar þú kenndir mér að grípa, með
því að segja að ég væri í FH ef ég gripi en í
Haukum ef ég gripi ekki. Vá hvað ég vandaði
mig að grípa og vá hvað ég varð mikill FH-
ingur, tvær flugur í einu höggi.
Húmornum og hlátrinum mun ég aldrei
gleyma, þó fíflagangur væri aldrei þinn te-
bolli. Allar sögurnar sem þú sagðir mér.
Hvort sem þær voru dæmisögur til að hug-
hreysta eða skemmtisögur til að gleðja.
Alltaf hlustaði ég með athygli, jafnvel þó ég
væri að heyra þær í annað skipti.
Pólitíkin var aldrei langt undan enda
mjög pólitískur. Ég var því fljótur að
mynda mér skoðanir á hinu og þessu, ekki
alltaf gáfulegar, en þú hjálpaðir mér þá oft
og benti mér í rétta átt. Þá sló oft í brýnu,
jafnvel þó við værum sammála gat hávað-
inn verið óþægilegur fyrir utanaðkomandi.
Viðeigandi er að hafa ljóðið sem þú kenndir
mér fyrst.
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil.
með spekingslegum svip og taka í nefið,
(Og allt með glöðu geði
er gjarnan sett að veði.)
Og þó þú tapir, það gerir ekkert til
því það var nefnilega vitlaust gefið.
(Steinn Steinarr)
Takk fyrir allt sem þú gafst mér. Takk
fyrir að styðja mig í öllu sem ég hef tekið
mér fyrir hendur. Takk fyrir að vera til
staðar og ýtt á eftir mér þegar eitthvað hef-
ur virst óyfirstíganlegt. Takk fyrir mig, þín
verður sárt saknað.
Þinn sonur,
Ingimar Ingimarsson.
Ingimar Kristjánsson