Morgunblaðið - 10.08.2015, Síða 21

Morgunblaðið - 10.08.2015, Síða 21
Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Boðinn Félagsvist kl. 13. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga kl. 9.30-16, hádegismatur kl.12, panta þarf með dags fyrirvara í síma 6171503, meðlæti með síðdegiskaffi selt kl. 14-16. Gerðuberg Opnar vinnustofur kl. 9-15.30.Tölvukennsla, hafið sam- band við umsjónarmann. Blöðin liggja frammi, heitt á könnunni. Gjábakki Handavinnustofan opin, hádegisverður kl. 11.40, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, molasopi í boði til kl. 10.30, blöðin og púsl liggja frammi, einnig spjaldtölva, morgun- leikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30, spilað brids kl. 13, kaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, leikfimi á Ruv kl. 9.45, ganga kl. 10, eftir gönguna er boðið upp á slökun í salnum, handa- vinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, Nánar í síma 411-2790. Norðurbrún 1 Mánudagur:Tréútskurður kl. 13-16. Þriðjudagur: Tréútskurður kl. 9-12. Miðvikudagur:Tréútskurður kl. 9-12. Bónus- bíllinn fer frá Norðurbrún kl. 14.40. Félagsvist kl. 14-16. Fimmtudagur: Tréútskurður kl. 9-12. Föstudagur:Tréútskurður kl. 9-12. Sléttuvegur 11-13 Opið frá kl. 8.30-16. Morgunkaffi, dagblöð og spjall kl. 8.30. Hádegisverður kl. 11.30. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi og meðlæti selt kl. 14.30-15.30. Blöðin liggja frammi og púsl. Smáauglýsingar Snyrting ÁSTA Hársnyrtistofa, Bolholti 6 Langar þig i eitthvað nýtt? Komdu þá til okkar á Hárgreiðslu- stofu Ástu, fáðu góða ráðgjöf og klippingu sem passar fyrir þig! Klipping, litur, greiðsla - hvenær sem þig vantar þá hringdu i síma 7759388. Allir nýir viðskiptavinir fá 20% afslátt! (gildir frá 13. ágúst til 30. september 2015). Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn FASTEIGNA- VIÐHALD Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. johann@jaidnadarmenn.is S. 544-4444/777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Tómstundir Úrval STIGA borðtennisborða. Til afgreiðslu strax. F&F kort ehf. www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920/897 1715. Íþróttir Verðlaunagripir - gjafavara -áletranir Bikarar, verðlaunapeningar, barm- merki, póstkassaplötur, plötur á leiði, gæludýramerki - starfsgreinastyttur Fannar Smiðjuvegi 6, Rauð gata Kópavogi, sími 5516488 Til sölu Rotþrær-vatnsgeymar- lindarbrunnar. Rotþrær og siturlagnir. Heildar lausnir - réttar lausnir. Heitir Pottar. Lífrænar skolphreinsistöðvar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211 Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Ríf ryð af þökum, ryðbletta, hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com skottast út í bakarí og kaupa eitt- hvað sem okkur langaði í. Hún var mikill næturhrafn og þótti gott að sofa út á morgnana. Manni datt eiginlega ekki í hug að hringja í hana fyrr en í fyrsta lagi upp úr 13 því annars átti maður á hættu að vekja hana. Hún var einstaklega smekkleg kona og var alltaf vel tilhöfð og fín. Hún lét helst ekki sjá sig án vara- litar, hvort sem hún var að fara í boð eða lá á sjúkrahúsi. Hún átti auðvelt með að versla föt á sig og aðra, sem fóru vel. Svo var hún líka einstaklega handlagin og þeg- ar dæturnar voru litlar þá saum- aði hún mikið af fötum á þær enda fannst henni úrvalið í búðunum lít- ið eða ekki nógu fallegt. Mamma sagði mér stundum sögur af henni frá því að hún var lítil og var hún jafn lítið morgung- löð þá. Afi kom alltaf heim í hádeg- inu í mat og amma dröslaðist fram úr rúminu rétt áður en afi kom til að setja fiskinn í pottinn – enn í náttfötunum. Mamma, sem var elst systranna, lék sér því oftast ein á morgnana meðan amma dormaði. Einhvern tímann spurði hún ömmu, sem var hálfsofandi, hvort hún mætti leika sér með sparistellið og jújú umlaði amma, það var allt í lagi. Þegar hún svo vaknaði um hádegisbilið þá var hún alveg brjáluð og sagði að það sem hún leyfði á morgnana væri bannað. Hún var líka dugleg við að fara út að leika með krökkunum – t.d. á skauta og í kýló – en það var frekar óalgengt hjá mömmum á þessum tíma – þær voru að baka og sinna öðrum heimilisstörfum, en það fannst ömmu ekki skemmtilegt og fór því frekar út að leika sér með krökkunum. Amma var hrifin af alls kyns íþróttum og fylgdist vel með sínu uppáhaldsliði í enska boltanum – Manchester United. Beckham var í miklu uppáhaldi hjá henni meðan hann lék enn með United og síðan Rooney. Það kom henni skemmti- lega á óvart þegar hún varð níræð að fá United-treyju í afmælisgjöf, ég hugsa að það séu ekki margar níræðar konur sem hefðu kunnað að meta slíka gjöf. Ég á eftir að sakna ömmu Rúnu mikið en minning hennar lifir áfram í okkur öllum sem þekktum hana. Hvíl í friði elsku amma. Sigrún Óttarsdóttir (Ída).  Fleiri minningargreinar um Sigrúnu G. Fjeldsted bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Guðrún Hjart-ardóttir fædd- ist að Klöpp, Mið- neshreppi, 11. desember 1926. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Skjóli 23. júlí 2015. Foreldrar henn- ar voru Hjörtur Björgvin Helgason frá Lykkju á Akra- nesi, bílstjóri og bóndi, síðar kaupfélagsstjóri í Sandgerði, f. 1898, d. 1994, og kona hans Sveinbjörg Jónsdóttir, húsfreyja frá Bæjarskerjum í Miðneshreppi, f. 1903, d. 1978. Guðrún ólst upp í Miðnes- hreppi og á Seltjarnarnesi. Systkini Guðrúnar eru: Sveinsína, f. 25. ágúst 1924, d. 10. nóvember 1998; Lilja, f. 30. maí 1929, d. 15. desember 2002; Jón Einar, f. 3. maí 1931, d. 24. októ- sambúð með Helenu Aagestad. c) Marteinn, í sambúð með Marí- önnu Evu Dúfu Sævarsdóttur. 3) Valur Þór, kvæntur Guðnýju Pál- ínu Sæmundsdóttur. Uppeldis- dóttir hans og dóttir Guðnýjar er Hrefna Sæunn Einarsdóttir. Sambýlismaður Hrefnu er Egil Hansen. Sonur þeirra er Erik Valdemar. Synir Vals og Guð- nýjar eru: a) Andri Þór, í sambúð með Freyju Hrund Ingveld- ardóttur. b) Ísak Freyr. 4) Tví- burabróðir Vals, fæddur and- vana. Guðrún sat tvo vetur í gagn- fræðaskóla í Reykjavík. Vorið 1945 útskrifaðist hún frá Samvinnuskólanum. Sama ár hóf hún störf hjá Nýbyggingaráði, síðar Fjárhagsráði í innflutnings- og gjaldeyrisdeild. Hún lauk prófi frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur árið 1950. Guðrún vann frá árinu 1955 til starfsloka sem fulltrúi á Hagstofu Íslands. Auk þess sinnti hún húsfreyju- störfum alla tíð af sérstakri alúð og umhyggju. Útför Guðrúnar fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 10. ágúst 2015, og hefst athöfnin kl. 13. ber 2014. Eftir- lifandi er Erla, f. 21. nóvember 1936. Guðrún giftist Marteini Guðjóns- syni járnsmið 27. október 1951. For- eldrar hans voru Guðjón Vilhjálms- son og Guðríður Rósantsdóttir. Synir Guðrúnar og Mar- teins eru: 1) Guðjón Steinar, kvæntur Eddu Guð- geirsdóttur. Börn þeirra eru: a) Hrund Guðrún, gift Sævari Dór Halldórssyni. Sonur þeirra er Guðjón Atli. b) Ólafur Valur, í sambúð með Silju Hafliðadóttur. Dóttir þeirra er Edda Sif. c) Katrín Heiða. 2) Hjörtur Björg- vin, kvæntur Guðbjörgu Lind Jónsdóttur. Synir þeirra eru: a) Arnaldur, kvæntur Ólöfu Dröfn Sigurbjörnsdóttur. b) Dagur, í Einföldu hlutirnir Mamma stendur við strauborðið. Klætt hveitilaki með óþekktum áletrunum fyrir hinn ólæsa minnir það á svellið við enda götunnar. Ég er nýkominn þaðan með kúlu á hausnum. Mamma strýkur mér um vanga, hellir kakói í bolla. Í bakaraofninum rís nýtt landslag. Mér sýnist svellið úti byrjað að bráðna. Heyri krakkaskarann hlaupa upp stigaganginn. Úr næstu íbúð ómar píanó. Hljómarnir renna saman við hlémerkið í útvarpinu. Nú hafa fuglarnir hér í garðinum gert það að sínu. Ég legg við hlustir og velti því fyrir mér hvar hún hafi búið þögnin umhverfis blokkina og ‘einföldu hlutirnir’ sem mamma kallaði svo – þessir sem voru límið í tilverunni eins og þegar hún renndi straujárninu yfir skyrtuna mína – slétti úr huglægu brotunum í sálu minni svo ég ætti auðveldara með að takast á við stóru misfellurnar þessar sem hún sagði að biðu mín seinna undir öðrum svellum þar sem lífið kviknar stöðugt að nýju án orða. Hjörtur Marteinsson. Mig langar að kveðja Gunnu tengdamóður mína með örfáum orðum. Ég kynntist þessari yndislegu og vel gefnu konu fyrir tæpum 45 árum og bar aldrei skugga á vin- skap okkar. Hún var heilsteypt og hjálpfús og vildi allt fyrir alla gera. Fjölskyldan var alltaf í fyrsta sæti og hún fylgdist alltaf med öllum, jafnt börnum, barna- börnum og barnabarnabörnum. Hvernig þeim gekk í skóla, hverj- ir voru í vinnu og hún átti það til að hringja og útvega unglingun- um vinnu ef á þurfti að halda. Við komu til hennar var alltaf til bakkelsi, enda var hún góður kokkur og bakari. Ég nýt enn handskrifaðra uppskrifta hennar Það var yndislegt veður kvöldið sem Guðrún tengdamóðir mín kvaddi í síðasta sinn. Dagurinn hafði verið óvenjulega heitur og sólin, sem farin var að lækka á lofti, varpaði hlýrri birtu á um- hverfið. Þetta var veður við hæfi, því svona var Gunna sjálf. Hlý og góð kona sem gerði allt sem í hennar valdi stóð til að fólkinu hennar liði vel. Það var í júlí 1986 sem ég hitti tengdaforeldra mína í fyrsta sinn. Ég var mjög feimin en þau tóku mér bæði afskaplega vel. Hafi Gunna haft einhverjar efa- semdir um þessa ungu konu sem var sex árum yngri en sonurinn, og kom að auki með litla stúlku með sér inn í sambandið, þá lét hún mig aldrei finna fyrir þeim. Hún tók mér og Hrefnu dóttur minni opnum örmum og það eina sem hún býsnaðist stundum yfir var sú staðreynd að á þessum tíma drakk ég hvorki kaffi né te og henni fannst ómögulegt að gefa mér bara mjólk að drekka. Auk vinnu utan heimilis var Gunna húsmóðir af gamla skól- anum. Heimilið var alltaf skín- andi hreint og snyrtilegt, hún bakaði dýrindis kökur og var meistarakokkur. Hún var frábær gestgjafi sem passaði upp á að allir fengju nóg að borða og var endalaust að bjóða meira. Frá henni fór enginn svangur, svo mikið er víst. Gunna lagði áherslu á að vera snyrtileg til fara og hafði gaman af fallegum fötum. Ekkert fór framhjá henni, hún sá strax ef ég var í nýrri flík og gladdist fyrir mína hönd. „Mikið er þetta smart,“ varð henni þá að orði og ekki sparaði hún heldur hrósið ef henni fannst ég eða aðr- ir líta sérlega vel út þann daginn. Upphaflega bjuggum við Val- ur á Akureyri, síðar fluttum við til Noregs og svo aftur til Akur- eyrar. Tengdaforeldrar mínir hafa hins vegar búið í Reykjavík alla tíð. Samskipti okkar ein- kenndust því mest af símtölum og heimsóknum, og þegar ég sat hjá Gunnu daginn sem hún dó flæddu fram óteljandi minninga- brot af okkur að heilsast og kveðjast. Mismunandi staðir, mismunandi tímar, en hún hafði alltaf sérstakt lag á því að taka fólki fagnandi og við brottför var alltaf fast faðmlag og koss á báð- ar kinnar. Gunna var amma af lífi og sál og gladdist innilega yfir öllum samverustundum við barnabörn- in. Sem betur fer hafði hún sex barnabörn og tvö barnabarna- börn staðsett í Reykjavík en hún hefði ábyggilega viljað hitta Hrefnu, Andra og Ísak mun oftar en tilefni gáfust til. Í staðinn sendi hún afmælis- og jólagjafir og með þeim fylgdu kveðjur sem hún skrifaði með sinni fallegu rit- hönd. Lengi framan af voru páskaegg send milli landa og landshluta. Allt gert til að gleðja börnin. Gunna var stálminnug og fram á síðasta dag fylgdist hún vel með öllu sem gerðist í lífi okk- ar og barnabarnanna. Tengdamóðir mín náði háum aldri þrátt fyrir endurtekin hjartaáföll og ýmis önnur veikindi. Hún var ótrúlega seig og lífsvilj- inn sterkur allan þennan tíma. Síðustu mánuðina mátti þó greina að hún var orðin södd lífdaga og nú hefur hún fengið hvíldina. Með þessum orðum kveð ég tengda- móður mína með þakklæti fyrir allan þann kærleika sem hún sýndi mér og fólkinu mínu. Guðný Pálína Sæmundsdóttir. Þegar ég kom fyrst með Hirti á heimili foreldra hans í Ljósa- landi fyrir 37 árum síðan var mér tekið af mikilli vinsemd og hlýju. Greinilegt var að Gunna og Matti fundu til ábyrgðar gagnvart mér þar sem ég kom utan af landi og var bara 17 ára. Ég fylltist fljótt aðdáun á þess- ari konu sem hlúði svo vel að Matta og strákunum sínum og var alltaf tilbúin að aðstoða þá sem þess þurftu með. Gunna var afskaplega vönduð kona og lagði ávallt áherslu á það góða og jákvæða í fari fólks. Hún kunni því illa þegar fólki væri hallmælt. Hún var mikil smekk- kona og hafði góða tilfinningu fyrir efnum, áferð og litum og naut smekkvísi hennar sín vel á heimili þeirra Matta, sem var ein- staklega fágað en jafnframt hlý- legt og praktískt. Gestagangur var ætíð mikill á heimilinu enda móttökurnar ekki af verri endanum. Hvort sem um var að ræða saumaklúbbinn, skákfélaga Matta eða skólafélaga strákanna og svo seinna barna- börnin, þá fengu allir jafn höfð- inglegar viðtökur. Ilmandi kaffi, brúnkaka með smjörkremi, nýbökuð hjóna- bandssæla, þeyttur rjómi og köld mjólk – allt fallega framreitt og best af öllu var að með þessu fylgdi félagsskapur og smitandi hlátur Gunnu sjálfrar sem hlust- aði af áhuga á gestina og var skörp og skemmtileg í tilsvörum. Mér er minnisstæð frásögn hennar af ferð þeirra Matta norð- ur í land með með synina Hjört og Val, sem biðu spenntir aftur í fólksvagninum eftir því að hitta Guðjón bróður sinn, sem þar var í sveit. Árið var 1967. Farangrin- um hafði verið hlaðið ofan á bíl- inn, þar á meðal gamla Alþingis- hátíðartjaldinu, sem og öðrum hefðbundnum útilegubúnaði þeirra tíma ásamt því sem Gunna taldi afar mikilvægt, að væri með en það var hveiti, egg, smjör, van- illudropar og lyftiduft. Þessu var öllu vandlega pakkað í vatnsheld- an dúk og fest tryggilega á far- angursgrindina. Keyrt var eftir holóttum malarvegunum í roki og rigningu. Þetta var kalt sumar og hafís lá inn á fjörðum norðan- lands. Þegar komið var að Hraukbæ hafði bætt svo í vindinn að varla var stætt utandyra. Húsráðendur tóku það ekki í mál að láta gestina liggja úti í kulda og hvassviðri. Gunnu og Matta var boðin stofan og strákarnir látnir sofa upp í hjá Guðjóni. Gunna sagði ferðina hafa verið hina ævintýralegustu. Þrátt fyrir napurt veður hefði verið ein- stakt að kynnast norðlensku gest- risninni og fornaldarlegum bú- skaparháttum á Hraukbæ. Þegar keyrt var til baka í bæinn í örlítið skárra veðri hafði ekki verið snert við nauðsynlegum bökunarvörun- um, sem sátu enn tryggilega fast- ar á farangursgrind gamla fólks- vagnsins. Mikilvægasta veganest- ið var samt ekki á farangurs- grindinni heldur falið innan í manni sjálfum, sagði Gunna og hló. Hún hafði nefnilega góðan húmor fyrir aðstæðunum og sjálfri sér. Hún spurði stundum glettin þegar einhver í fjölskyld- unni var að leggja upp í ferð, hvort það væri ekki örugglega hveiti og lyftiduft meðferðis. Ég þakka Gunnu fyrir ein- staka vinsemd og allt góða vega- nestið sem hún hefur látið mér og strákunum mínum í té. Guðbjörg Lind. sem hún skrifaði með sinni fal- legu rithönd á afgangspappír frá Hagstofunni, þar sem hún vann lengst af. Það var gott að kynnast þessari góðu konu sem hafði góða nærveru og eiginleika til að bera, svo sem húmor léttleika og já- kvæðni. Minningin um þessa yndislegu konu lifir. Takk fyrir samveruna. Edda Guðgeirsdóttir. Guðrún Hjartardóttir  Fleiri minningargreinar um Guðrúnu Hjartar- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.