Morgunblaðið - 10.08.2015, Page 24

Morgunblaðið - 10.08.2015, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms-lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar-lögmaður Sérfræðingar í líkamstjónarétti Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Notaðu fádæma gáfur þínar til að greiða úr fjármálavanda. Vertu bara þú sjálf/ ur og sinntu þínum störfum sem best þú get- ur. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú skalt varast óþarfa eyðslu í dag, að öðrum kosti áttu á hættu að lenda í skuld. Kannaðu málið vandlega áður en þú lætur til skarar skríða. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú munt eiga mikilvægar samræð- ur við foreldra þína eða yfirmenn í dag. Ef þú þarft að leggja spilin á borðið skaltu gera það kurteislega. Bjóddu þeim sem þú hefur auga- stað á út. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er alltaf best að taka á hlutunum með skilningi og þolinmæði því ekkert vinnst með frekju og yfirgangi. Nú ertu í miðjunni og veist hvað þarf til að komast í mark. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Grunnurinn þarf að vera góður til þess að það sem á honum rís sé til frambúðar. Bíddu til morguns með að gera ferðaáætlanir. Batnandi manni er best að lifa. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú veltir fyrir þér ólíkum viðhorfum en þegar öllu er á botninn hvolft þarft þúi sjálf/ ur að taka ákvarðanir. Gerðu þá kröfu að hann geri hreint fyrir sínum dyrum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert ákaflega trygglynd/ur vinum þín- um og vandamönnum og gerir þér grein fyrir því að lífið hefur upp á ýmislegt óvænt að bjóða. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er nauðsynlegt að afgreiða fortíð sína til þess að geta haldið lífinu áfram. Reyndu að gera sem mest úr því. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Samræður þínar við vini þína og kunningja verða líflegar og uppörvandi. Stundum virðast hlutirnir frekar í lagi ef þeir eru í ólagi. Stutt ferðalag gæti gert krafta- verk. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú átt ekki annars úrkosta en að taka því sem að þér er rétt þessa dagana. Sýndu kjark og leyfðu hæfileikum þínum að blómstra. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þetta er ekki rétti tíminn til að vænta stöðuhækkunar. Fólk finnur til örlætis og þarf að fá tækifæri til að sýna það. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að fara vel með þig því at- hugunarleysi getur leitt til þess að þú verður að leggjast í rúmið. Ekki skella skollaeyrum við því sem þú veist að er rétt og hjálpar þér. Á fimmtudaginn var hér í Vísna-horni pistill um hagyrð- ingamót eftir Ólaf Stefánsson. Hér eru sýnishorn af þvílíkum kveðskap og farið í vísnasarp Ólafs G. Ein- arssonar, en hann var vinsæll og snjall stjórnandi slíkra móta. Á vísnakvöldi á Selfossi í desember 2002 var margt kveðið um nið- urstöðu prófkjara. Séra Hjálmar kvað: Nú er offramboð mætra manna sem mörg nýleg dæmin sanna. Fyrst er prófkjör og röðun svo pólitísk böðun, og svo grátur og gnístran tanna. Ég hafði látið þá í ljós þá skoðun mína í þinginu að friða ætti endur. Steingrímur J. Sigfússon orti: Honum Drottinn gáfur gaf góðan munn og styrk til handanna. Halldór Blöndal héðan af má heita faðir andanna. Ég svaraði: Áðan hraður upp hann sté heiðursmaðurinn snjalli að mér glaður gjörir spé Gunnarsstaðaskalli. Steingrímur svaraði með annarri hringhendu: Vísur hraðar Halldór má í hauga raða meður galla er gæfan baðar geislum þá minn Gunnarsstaðaskalla. Þessi orðaskipti eru tekin úr „Enn hlær þingheimur“ eftir Árna Johnsen. Einhverju sinni var ég í óvenju þungum þönkum á þing- flokksfundi: Þá orti sr. Hjálmar: Ábúðarmikill inni hér athugar gögn og blöð. Halldór í þungum þönkum er þriðja daginn í röð. Ég svaraði: Ýmsum finnst það ærugalli, ekki er trúarþörfin rík: Hlaupinn burt frá kjóli og kalli klerkur lenti í pólitík. Sr. Hjálmar svaraði um hæl: Allt er þetta indælt starf og eftir settum línum. Fleiri sauðum sinna þarf en Sauðkrækingum mínum. Stefán Jónsson orti einhverju sinni í tilefni af því að flokkssystir hans Guðrún Helgadóttir var ekki mætt á þingflokksfund: Það er lán í sjálfu sér, sérlega vegna flokksins, að Guðrún Helga okkar er annars staðar – loksins. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kastað fram vísum Í klípu AÐ GANGA Á LAUSRI LÍNU. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SÉRÐU?! ÉG GLEYMDI AÐ HERÐA RÓNNA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að muna. ÉG ER ÆÐI, ÆÐI, ÆÐI. ÉG ER BESTUR, BESTUR, BESTUR. ÞEMALAGIÐ MITT. STUNDUM LÍÐUR MÉR EINS OG ÉG SÉ EKKERT MEIRA EN ÞÍN PERSÓNULEGA ELDABUSKA. SVONA, SVONA, HELGA... ÉG MYNDI EKKI NOTA NÁKVÆMLEGA ÞESSI ORÐ... ÉG SÉ ÞIG MEIRA EINS OG MINN PERSÓNULEGA KOKK! ÖRYGGI ER NR. 1 TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ! Spámenn sem kynna ýmiss konarnýmæli nota gjarnan háfleyg orð til þess að öðlast virðingu í sam- félaginu. Upphafið tungutak er verkfæri til að smeygja sér inn í um- ræðu dagsins og fá svonefnda álits- gjafa og eftir atvikum stjórn- málamenn til að taka undir. Þannig hefur spekingastóð mikið gert sig gildandi að undanförnu í umfjöllun um svonefnt deilihagkerfi. Sé málið og innistæða orðsins krufin er fátt nýtt í málinu, því að hagkerfi þetta byggir einfaldlega á vöruskiptum og sjálfsagðri greiðasemi. x x x I dönskum einokunarverslunumfyrri alda á Íslandi var bæði deilt og skipt. Bændur lögðu inn afurðir sínar, til dæmis ull og vaðmál, og fengu á móti til dæmis hveiti og syk- ur. Frá fyrri árum í Reykjavík eru til margar rómantískar frásagnir þar sem ungt fólk hjálpaðist að við að koma sér þaki yfir höfuðið. Verð- andi nágrannar aðstoðu hver annan í steypuvinnu og meðal iðnaðarmanna byggðist allt á vinnuskiptum. Múr- ari setti slettur á veg og rafvirkinn lagði í og svo var málið möndlað þannig að báðir komu út á sléttu. x x x Svo þekkjum við að þegar fólkfærir sig milli íbúða koma vinir og kunningar og bera búslóðina. En þá er líka sjálfsagt að við gjöldum í líku síðar, þegar eftir því er leitað. Af því sést að deilihagkerfið er ekk- ert nýmæli, þótt annað sé sagt. x x x Annað skrýtið orð hefur fengiðvægi, það er nágrannavarsla, sem þykir þjóðráð fólks sem býr við sömu götu ef stugga þarf við vafa- sömu liði. Tryggingafélög og lög- regla hvetja fólk til samstöðu og gefa ráð um hvernig staðið skuli að. En þarf þess? Hefur ekki alltaf tíðk- ast eins og krakkar þekkja að lykill að húsinu heima sé geymdur hjá konunni í næsta húsi, sem gefur kettinum og vökvar blómin ef ein- hver bregður sér af bæ? Að granna- gæsla sé ný uppgötvun er því skrýt- ið, að mati Víkverja sem býr í blokk og er vel á verði, bæði á nótt sem nýtum degi. víkverji@mbl.is Víkverji Allra augu vona á þig, þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma, lýkur upp hendi þinni og seður allt sem lifir með blessun. Sálmarnir 145:15-16 mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.