Morgunblaðið - 10.08.2015, Side 32
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 222. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Blind kona rekin út af McDonalds
2. Svona færðu pottþétt fullnægingu
3. Aldrei áður jafn fjölmennt …
4. Aðskildust í straumharðri á
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Djasshátíð Reykjavíkur hest nk.
miðvikudag og stendur í fimm daga.
M.a. mun bandaríski trommuleikarinn
Allison Miller koma fram á hátíðinni
ásamt hljómsveit sinni BOOM TIC BO-
OM. Allison hefur verið valin „rising
star drummer“ í hinu virta Downbeat-
tímariti. Nánar á reykjavikjazz.is.
Djasshátíð Reykjavík-
ur hefst í vikunni
Á morgun,
þriðjudag, kemur
kvartett söngkon-
unnar Kristbjarg-
ar Kari Sólmunds-
dóttur fram á KEX
hosteli. Auk henn-
ar skipa hljóm-
sveitina Vignir
Þór Stefánsson,
Jón Rafnsson og Kári Íbsen Árnason.
Hljómsveitin spilar klassíska djass-
standarda. Ókeypis er á tónleikana
og þeir hefjast kl. 20.30.
Kvartett Kristbjargar
Kari á Kexinu
Á morgun, þriðjudag, á síðustu
tónleikum sumarsins í sumar-
tónleikaröð Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar, verður bresk og amerísk
stemning. Ingibjörg Guðjónsdóttir
sópran syngur við undirleik Sólveigar
Önnu Jónsdóttur. Á efnisskrá eru
Seven Elizabethan Lyrics eftir Roger
Quilter, Three Songs eftir
William Walton og söng-
lög eftir Amy M.C.
Beach, Leonard
Bernstein, Ned
Rorem og Ern-
est Charles.
Hefjast kl.
20.30.
Breskt og amerískt
í Sigurjónssafni
Á þriðjudag Suðvestan 3-8 m/s. Skýjað að mestu á Suður- og
Vesturlandi, en yfirleitt þurrt. Hiti 10 til 17 stig.
Á miðvikudag Gengur í suðaustan 13-20 m/s með rigningu. Held-
ur hægari vindur og þurrt á Norður- og Austurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í vestan 10-15 norðantil á landinu
með rigningu, en hægari vindur annars staðar. Skýjað með köflum.
VEÐUR
„Þessi árangur er mikil
viðurkenning fyrir íslensku
sundhreyfinguna. Ég er afar
stoltur af því að vera lands-
liðsþjálfari Íslands þessa
stundina og hjarta mitt er
hjá íslensku keppendunum
sem hafa lagt á sig gríðar-
lega vinnu til þess að kom-
ast á þann stað sem þeir
eru á,“ sagði Jacky Pell-
erin, landsliðsþjálfari Ís-
lands í sundi, að loknu
HM í sundi. »1
Þjálfarinn segist
afar stoltur
Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt-
leik vann einn leik og tap-
aði öðrum í vináttu-
landsleikjum gegn
Hollandi hérlendis. Í
gær höfðu Hollendingar
betur í Höllinni en á
föstudaginn vann
Ísland í Þorláks-
höfn. Leikirnir
voru góður
undirbúningur
fyrir íslenska
liðið fyrir
lokakeppni EM
í september
því þar verður
Holland einn-
ig en ekki í
riðli með Ís-
landi. »4
Ísland og Holland unnu
sitt hvorn leikinn
ÍBV vann Leikni 2:0 í miklum
fallslag í Pepsi-deild karla í
knattspyrnu í gær og kom sér úr
fallsæti í leiðinni. Breiðhyltingar
eru aftur komnir í hið óvinsæla
næstneðsta sæti. Stjarnan og
Víkingur skildu jöfn 1:1 í miklum
hitaleik í Garðabæ þar sem
heimamenn enduðu leikinn
tveimur leikmönnum færri og
gríðarlega pirraðir. »7, 8
ÍBV úr fallsæti
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands, var heiðursgestur á tveimur
hátíðum í Vesturheimi um verslunar-
mannahelgina. „Þetta var meirihátt-
ar upplifun,“ segir hún um fyrstu
ferð sína á slóðir Vestur-Íslendinga í
Norður-Dakóta í Bandaríkjunum og
Manitoba í Kanada.
Hátíðin í Mountain í Norður-
Dakóta, Deuce of August, var haldin
í 116. sinn en Íslendingadagshátíðin í
Gimli í 126. sinn. Agnes segir að fyrir
sig, landsbyggðarkonuna, hafi verið
gaman að koma á þessa staði og sér-
staklega til Mountain.
„Á þessum slóðum hugsaði ég
mjög til hjónanna Ragnars H. Ragn-
ar, fyrrverandi skólastjóra Tón-
listarskóla Ísafjarðar, og Sigríðar
Jónsdóttur, því þau bjuggu þarna
þangað til þau voru kölluð til Ísa-
fjarðar 1948 og áttu stóran þátt í
uppeldi mínu þar eins og fjölda ann-
arra barna sem fóru í Tónlistar-
skólann.“
Agnes segir það hafa verið áhrifa-
ríkt að hitta 100% Íslendinga, sem
séu hreyknir af uppruna sínum þrátt
fyrir að tala ekki íslensku. „Og börn-
in segja afi og amma,“ heldur hún
áfram. „Það var líka merkilegt að
heyra.“
Ást og kærleikur
Hátíðirnar fara fram í fámennum
smábæjum og segir Agnes dugnað
fólksins með ólíkindum, að halda
þessa viðburði ár eftir ár með til-
heyrandi vinnu og kostnaði. „Það
sem vakti ekki síður athygli mína er
að margir af íslenskum ættum hafa
ekki aðeins komið sér vel áfram í
samfélaginu heldur hvað þeir sem
eiga fjármagn deila því með öðrum.
Okkur var til dæmis þrisvar boðið í
fjölmennar matarveislur í heima-
húsum þar sem viðkomandi fjöl-
skyldur borguðu allan kostnað. Þetta
þótti mér mjög merkilegt, til eftir-
breytni og til umhugsunar. Þarna er
ekki bara verið að hugsa um sjálfan
sig heldur hópinn og heildina, meðal
annars vegna ástar á landi og þjóð.
Þetta er umhugsunarvert fyrir okk-
ur. Þessi samkennd þjóðarinnar hef-
ur að vissu leyti horfið á Íslandi, að
við þorum að vera stolt af landi okk-
ar og þjóð og bera kærleika til henn-
ar.“
Samskiptin við afkomendur Ís-
lendinga í Vesturheimi hafa eflst
mikið undanfarna áratugi. Agnes
segist hafa fundið fyrir því hvað
þessi samskipti séu mikilvæg fyrir
fólkið vestra og miklu skipti að halda
þeim áfram. „Frændræknin hefur
mikið að segja og ég vona að ég eigi
eftir að fara aftur vestur.“
„Meiriháttar upplifun“
Samkennd
Vestur-Íslendinga
til eftirbreytni
Ljósmynd/Shirley J. Olgeirson
Mountain Jolene Halldorsson, forseti félags Íslendingabyggða í Norður-Dakóta, og Loretta Bernhoft,
kjörræðismaður Íslands í Norður-Dakóta, gáfu Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi Íslands, gjafir.
Ljósmynd/Sveinbjörg Pálsdóttir
Gimli Anna Birgis og Agnes M. Sigurðardóttir heilsa upp á íbúa í Betel.
Sumir þeirra tala og skilja íslensku, þó að þeir hafi aldrei til Íslands komið.