Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1913, Blaðsíða 9
VII
bæta þjóðfjelagsmeinið, og ráða
þjóðfjelagsgátuna eða bæta úr á-
standinu sem þá var í landinu, ástand-
inu sem Hannes Finnsson lýsir best og
nákvæmast, og rekur bezt hinar sögulegu
rætur til af öllum þessum mönnum.
Hannes Finnsson skrifar ritgjörðina
um »mannfækkun og hallæri á íslandi«
árið 1792. Hann rekur sögu mannfækk-
unar frá fyrstu tímum. Hann stj'ðst við
annála og alþingisbækur, og frá 1700
styðst hann þess utan við skjrrslur yfir
fædda og dána, sem liann hefur aðgang
að í báðum biskupsdæmunum. Ritgjörð-
in er skrifuð til þess að íslendingar »ekki
missi móðinn« eftir Reykjarmóðuharðind-
in, og vogi að halda áfram að lifa í land-
inu. Saga hans um manndauða og ha 11 -
æri hjer á landi er í fám orðum þessi.
Fjórlánda öldin er hörð og hallærasöm,
og eyðir tnjög fjárstofninum fyrir lands-
búum. Fimtánda öldin »fækkar fólkinu
ákafiega. 1402 kemur »svarlidauði«, og
eftir sögusögnum og ýmsum munnmæl-
um dóu 2/3 allra landsmanna úr honurn.
En þegar lekið er tillit tíl þess, að munn-
mælin og þeir sem þau hafa skrifað upp,
segja einkum frá því sögulegasta, og að
í Noregi og Svíþjóð er upplýst nú, að
lijer um hil 1/s fólksins liafi dáið í »svarta
dauða« þá verð jeg að vera sömu skoð-
unar sem Jón dósent Jónsson um það, að
hjer hafi að eins látist x/3 landsmanna í
pestinni. Þá er eftir að komast að nið-
urstöðu um mannfjöldann á landinu 1402.
Espólín álítur að hjer hafi verið 120,000
manns. Hannes biskup Finnsson álítur
að lijer hafi yfir höluð ekki fleira fólk
verið en 50,000 rnanns, en eftir rann-
sóknum Björns prófessors Ólsens á mann-
fjöldanum 1311 má giska á að fólkið á
Iandinu hafi 1402 verið nálægt 80,000
og að þrigjungurinn af því liafi dáið, eða
25—27000 manns. Mannfallið er jafn
ógurlegt fyrir því. Um hallæri er lítið
getið á 15. öld. En 1492- 95 geysar
pestin hjer aftur. Jón Jónsson dósent
segir að sú pesl hafi ekki verið »svartí
dauði« eins og alment hefur verið sagt,
heldur hafi það verið »bólan« i verstu
mynd. Pá segja munnmælin að enn liafi
fallið 2/a landsmanna, en það mun óhætt
að færa það niður í x/s landsmanna, því
»plágan« kom alls ekki á sumum stöð-
um. En um fólksfjöldann 1492 vita
menn eklcert nú. Hafi »svarti dauði«
skilið eftir 50,000 manna á landinu og
þeim fjölgað jafnt og þjett um 4—500
manns á ári hefði fólksfjöidinn 1492 get-
að náð 90,000 tnanna. A öldinni voru
»þartil nokkrar bólusóttir«, skepnufellir
og fjárdauði af eldgosum, sem kom af
stað heildag Eyfirðinga 1477. Landsmenn
hafa þess vegna ekki fengið að vera í
friði milli plágunnar fyrri og síðari, og
hefur ekki fjölgað svo ört og slysalaust
að þeir hafi verið komnir upp fyrir 80000
manns 1492, að líkindum hefur síðari
plágan felt önnur 25 — 27000 manns eins
og hin fyrri, og mannfjöldinn 1500 verið
eitthvað nálægt 50000 manns.
Ritgjörð Hannesar Finnssonar sýnir
hvernig hafísar, frosthörkur og snjóþyngsli
vinna á velmegun Norðurlands, og að eld-
gos, jarðskjálftar og rigningar sigra til-
raunirnar lil að halda við velmeguninni
á Suðurlandi. Hann getur nokkrum
sinnum um óhenluga eða óhæga kaup-
höndlun. Skúli Magnússon berst mestan
hluta æfi sinnar móti kauphöndluninni
upp á líf og dauða. Hann talar um
landið þegar hann skrifar á móti einok-
uninni. Hannes Finnsson hugsar og
skrifar um fólkið. Skúli er liermaður
sem berst fyrir ættjörðina, hann sveigir
hagskýrslurnar sínu máli í vil. Hannes er
valmenni, sem liugsar mest um velferð
fólksins. Hann dæmir áreiðanleik skýrsln-
anna og vill komast að rjetluslu niður-
stöðu. Fyrir Skúla er verslunarjöfnuður-
inn í viðskiftum við Dani aðalalriðið,
fyrir Hannesi er mikill fólksfjöldi mestu
gæðin. Fyrst unnin ull færir meiri pen-
inga til landsins en óunnin, þá er fyrir