Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þessir vösku menn unnu saman eins og einn mað-
ur við að að útbúa settjörn við stífluna við Elliða-
vatn í Kópavogi í vikunni. Regnvatnið rennur
fyrst í settjörnina áður en það fer í Elliðaárnar.
Fylgst er með vatninu í tjörninni og gripið til við-
eigandi ráðstafana ef vart verður til dæmis við
mengun. Þessi settjörn er nokkuð stór og er
áætlaður kostnaður 50–60 milljónir króna, að
sögn sviðsstjóra umhverfissviðs Kópavogsbæjar.
Settjarnirnar eru fljótar að fyllast af gróðri og
falla fljótt inn í borgarlandslagið. Þegar gaumur
er gefinn að er þær víða að finna í borginni.
Stefnt er að því að fjölga þeim jafnt og þétt innan
Kópavogs. Fyrstu settjarnirnar í Kópavogi voru
útbúnar fyrir nokkrum árum. thorunn@mbl.is
Kostnaður við framkvæmdina 50–60 milljónir
Morgunblaðið/Golli
Lífríki Elliðavatns í Kópavogi verndað með settjörn
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Verð á raforku hefur hækkað um
3,8%–6,65% frá því í janúar 2014.
Mesta hækkunin er hjá Orkusölunni,
6,65%, en minnst hjá Fallorku þar
sem verðið hækkaði um 3,8%. Þetta
kemur fram í nýrri könnum ASÍ á
raforkuverði. Framkvæmdastjóri
Orkusölunnar segir skýringuna vera
hækkun á heildsöluverði Lands-
virkjunar.
Heimilin í landinu greiða annars
vegar fyrir flutning og dreifingu raf-
orku og hins vegar fyrir raforkuna
sjálfa. Ekki er hægt að velja dreif-
ingaraðila, því dreifiveitur hafa sér-
leyfi á tilteknum landsvæðum. Aftur
á móti velur hver og einn kaupandi af
hverjum hann kaupir raforkuna.
Heimili á Reyðarfirði greiðir þannig
Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir flutn-
ing og dreifingu rafmagns en gæti
vel keypt rafmagn af Orkubúi Vest-
fjarða eða Orku náttúrunnar.
Skattabreytingar á tímabilinu
Í könnuninni var gert ráð fyrir að
heimilið keypti 4.000 kWst á ári af
raforku. Samanburðurinn nær til
rúmlega eins og hálfs árs, en á því
tímabili var skattur á raforkusölu,
umhverfis- og auðlindaskatturinn,
lækkaður úr 0,13 kr. á kWst. í 0,129
kr. á kWst. Virðisauki var lækkaður
úr 25,5% í 24% og nýtt jöfnunar-
gjald, sem leggst á alla greiðendur,
sett á sem er 0,2 kr./kWst. Þetta eru
gjöld sem fyrirtækin innheimta fyrir
hönd ríkissjóðs.
Mislangir samningar
„Þetta liggur alfarið í hækkun á
heildsöluverði frá Landsvirkjun sem
hefur verið töluvert umfram verð-
lag,“ segir Magnús Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Orkusölunnar.
„Hækkanir okkar fylgja þeim alger-
lega.“ Spurður hvers vegna hækk-
unin sé hlutfallslega mest hjá Orku-
sölunni segir hann ýmsar skýringar
á því. Gerðir séu mislangir samning-
ar við Landsvirkjun og að auki séu
sumar orkusölur með eigin virkjanir
og það hafi áhrif á verð.
Orkubú Vestfjarða er sú orkusala
sem hækkaði verð sitt næstmest, en
er þrátt fyrir það með lægsta verðið.
„Það eru tvö hækkunartímabil inni í
þessu,“ segir Kristján Haraldsson,
orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða,
spurður um skýringar á hækkuninni.
Þar á hann við að þeir langtíma-
samningar sem orkuveiturnar gera
við Landsvirkjun um kaup á raf-
magni feli í sér að verðið hækkar 1.
júlí ár hvert í samræmi við vísitölu-
hækkanir. Aðrar skýringar segir
Kristján vera launahækkanir og dýr-
ari aðföng sem tengjast orkufram-
leiðslu Orkubúsins.
Raforka hækkaði mismikið
Hækkun á heildsöluverði Landsvirkjunar sögð vera skýring Launahækkanir
og dýrari aðföng hafa einnig haft áhrif 3,8%–6,65% hækkun frá janúar 2014
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Til stendur að hefja viðræður við
stjórnendur framhaldsskólanna í
Reykjavík um möguleika á gjald-
skyldu á bílastæðum á lóðum skól-
anna. Sóley Tómasdóttir, borg-
arfulltrúi VG og formaður
Bílastæðanefndar Reykjavík-
urborgar, segir að tilgangurinn sé
að efna til viðræðna um bílastæða-
mál. Ekki standi til að skikka
skólana til að taka upp gjaldskyldu.
„Það er mikilvægt að hvetja fram-
haldsskólanema til að nota almenn-
ingssamgöngur. Þeir eru að fá bíl-
próf og það er jákvætt á margan
hátt að stytta þann tíma sem ungt
fólk er háð einkabílnum,“ segir Sól-
ey. „Bílastæði kosta peninga eins og
öll önnur þjónusta við einkabílinn og
það er ekkert óeðlilegt að þeir taki
þátt í þeim kostnaði.“
Að sögn Sóleyjar er stefnt að því
að þessar viðræður hefjist í vetur og
að þeim muni koma fulltrúar borg-
arinnar, bílstæðanefndar, fulltrúar
framhaldsskólanna og nemenda-
félaganna.
FÁ rukkar fyrir stæði
Gjaldskylda hefur verið á bíla-
stæðum við Fjölbrautaskólann í Ár-
múla í nokkur ár. Bílastæðinu er
lokað með aðgangshliði og er gjaldið
fyrir bílastæði á haustönn 5.000 kr.
auk 1.500 króna skilagjalds. Sóley
segir að þetta fyrirkomulag hafi
gengið vel, en segist ekki geta sagt
til um hvort aðrir skólar muni hafa
sama háttinn á. „Við bjóðum fram
ráðgjöf okkar, ef það er vilji hjá
skólunum til að fara þessa leið. Þær
yrðu eflaust mismunandi, skólarnir
eru með mismikinn fjölda stæða og
misgott aðgengi að almennings-
samgöngum.“
Hafa skólastjórnendur kallað eftir
þessu? „Nei, þetta er að okkar frum-
kvæði.“ Yrði ekki lagt í næstu íbúð-
argötum ef það yrði farið að rukka
fyrir stæði við skólana? „Auðvitað
gæti gjaldheimtan haft neikvæð
áhrif. En það þarf að skoða þetta á
hverjum stað fyrir sig. Það er ekki
Bílastæðasjóðs eða borgarinnar að
taka ákvarðanir í þessum efnum,
flestir af þessum skólum eru á lóðum
í eigu ríkisins,“ segir Sóley.
Vilja ræða gjaldskyldu á
bílastæðum framhaldsskóla
Samið var í
kjaradeilu VM,
Félags vélstjóra
og málmtækni-
manna, og Sam-
taka atvinnulífs-
ins í húsakynnum
ríkissáttasemjara
í gær. Guðmund-
ur Ragnarsson,
formaður VM,
segir að í samn-
ingnum sé bókun varðandi launaþró-
unartryggingu sem skili sér í meiri
upphafshækkun til félagsmanna en í
fyrri samningnum sem VM og SA
gerðu með sér hinn 22. júní sl. en sá
var felldur í allsherjaratkvæða-
greiðslu um samninginn í júlí með
rúmlega helming atkvæða.
Samningurinn nær til um 1.800 fé-
lagsmanna VM sem höfðu boðað til
ótímabundins verkfalls frá og með
sunnudeginum næsta.
„Við teljum okkur hafa bætt
samninginn sem var felldur,“ segir
Guðmundur en í nýja samningnum
er einnig kveðið á um breytingar á
orlofsréttindum félagsmanna.
Með samningnum hefur, líkt og
áður sagði, verkfallinu sem átti að
hefjast á sunnudag verið frestað til
5. október verði samningurinn felld-
ur. Félagsmönnum verður kynntur
samningurinn á næstu dögum, að
sögn Guðmundar, og verður niður-
staða úr kosningu um samninginn að
liggja fyrir eigi síðar en 22. sept-
ember nk. ash@mbl.is
Samið í
kjaradeilu
VM og SA
Guðmundur
Ragnarsson
Nær til 1.800 fé-
lagsmanna VM
Undirritaður var kjarasamningur
milli kennara Tækniskólans og
Tækniskólans í gær. Samningurinn
byggist ekki á breyttu vinnumati líkt
og innleitt var í ríkisreknum fram-
haldsskólum með kjarasamningum
sem voru undirritaðir í vor.
Guðríður Arnardóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara, seg-
ir að samninganefnd hafi verið skip-
uð félagsmönnum úr röðum kennara
Tækniskólans og var samið um 1,3
prósenta launahækkun kennara
Tækniskólans frá 5. júní í stað 9,3
prósenta hækkunar í ríkissamn-
ingnum. Gildistími samningsins er
til 31. október 2016. ash@mbl.is
Vinnumatið
helst óbreytt
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
UP! MEÐ
STUÐIÐ
e-Up! rafmagnsbíll verð frá:
2.990.000 kr.