Morgunblaðið - 04.09.2015, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Sannkallað knattspyrnulandsliðsæði
ríkti í gærkvöldi á meðan á landsleik
Íslands og Hollands stóð, bæði á Ís-
landi og í Amsterdam. Löngu eftir að
flautað var til leiksloka voru þús-
undir Íslendinga á Dam-torginu í
borginni að mála borgina bláa. Ís-
lenska landsliðið í knattspyrnu þarf
aðeins eitt stig til viðbótar til að
tryggja sér sæti á Evrópumótinu í
Frakklandi á næsta ári. Liðið leikur
gegn Kasakstan á sunnudag og er
fyrir löngu uppselt á leikinn.
Um 4.000 Íslendingar sungu og
trölluðu í Amsterdam fyrir leik og
þeir sem höfðu enn orku eftir leik
héldu viðteknum hætti. Þar var
gleðin við völd og viðbúið að þetta
langstærsta Íslendingapartý á er-
lendri grundu stæði langt fram á
nóttina.
Rafmögnuð stemning
Á Íslandi voru flestir barir þétt-
setnir, fjölmenni var á Ingólfstorgi
þar sem leikurinn var sýndur á risa-
skjá og heimahús voru undirlögð af
landsliðsstemningu. Alls staðar var
stuð og stemningin rafmögnuð –
nema í Vestmannaeyjum. Þar fór
rafmagnið af í gær og misstu Eyja-
menn því af leiknum í sjónvarpinu
eftir að bilun varð í spenni í tengi-
virki.
Vinnuflokkar Landsnets fóru á
staðinn og uppúr klukkan 22 var for-
gangsorka komin á í Vestmanna-
eyjum.
Þrír leikir eftir
Hollendingar tapa ekki oft heima-
leikjum og er Ísland fyrsta þjóðin
sem leggur Holland að velli í báðum
leikjum í undankeppni og fyrsta
þjóðin sem vinnur keppnisleik á
Amsterdam ArenA. Hollendingar
höfðu ekki tapað heimaleik síðan í
október árið 2000.
Íslenska landsliðið á þrjá leiki eft-
ir, gegn Kasakstan, Lettlandi á
heimavelli og svo gegn Tyrklandi á
útivelli. Ísland er efst í riðlinum með
18 stig, tveimur stigum meira en
Tékkland og heilum átta stigum á
undan Hollendingum.
Nánar er fjallað um leikinn sjálfan
á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.
Skapti Hallgrímsson
Stuð Dam torgið í Amsterdam fyrir leik. Þar komu Íslendingar saman og sungu sigursöngva og drukku í sig kjark áður en haldið var á Amsterdam Arena þar sem leikurinn fór fram.
Allt ætlaði um koll að keyra
Sögulegum sigri íslenska landsliðsins í knattspyrnu fagnað víða Eyjamenn misstu af leiknum
Gríðarleg stemning á íþróttabörum og í heimahúsum Amsterdam máluð blá í gærkvöldi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víti Þeir sem ekki komust út til Amsterdam hittust víða til að horfa saman. Á Ölveri var Tólfan með hitting þar sem
allt ætlaði um koll að keyra þegar íslenska landsliðið fékk dæmt víti eftir að brotið hafði verið að á Birki Bjarnasyni.
Morgunblaðið/Eggert
Áfram Sigurreifir Íslendingar veifuðu fánum og fylltust þjóðarstolti þegar
flautað var til leiksloka. Eitt stig dugar til að komast á EM í Frakklandi.
Skapti Hallgrímsson
Kóngurinn Fáni með nafni Eiðs
Smára Guðjohnsen á lofti.
Morgunblaðið/Eggert
Tilfinningar Trúlega hafa margir öskrað jafnhátt og þessi ágæti maður
þegar Gylfi Þór skoraði markið sem tryggði Íslandi sigur á Hollandi.
Skapti Hallgrímsson
Risastórt Íslendingapartý Sennilegaa hefur aldrei áður verið haldið stærra Íslendingapartý en á Dam torginu í
Amsterdam í gær. Íslenski fáninn og landsliðstreyjur gerðu Dam torgið að bláu mannhafi þar sem allir voru glaðir.
„Það er víst ekki
hægt að vera á
tveimur stöðum
í einu,“ segir
Páll Sævar
Guðjónsson,
vallarþulur KSÍ,
en hann mun
ekki verða á vell-
inum á sunnu-
dag þegar Ísland
leikur gegn Kasakstan heldur í
Berlín. Er þetta fyrsti landsleikur
sem Páll missir af í langan tíma. Í
stað hans verður Þorsteinn
Ragnarsson, vallarþulur Fylkis.
„Ég er að fara til Berlínar að
vinna með KKÍ á Evrópumótinu í
körfubolta. Við Þorsteinn höfum
verið í sambandi síðustu daga og
farið yfir hlutina. Það eru
ákveðnar reglur sem þarf að fara
eftir og það má ekki segja hvað
sem er. Það verður erfitt að
hugsa til Íslands á sunnudag en
ég hef fulla trú á strákunum.“
Fjarverandi á sunnudag
PÁLL SÆVAR GUÐJÓNSSON ER RÖDDIN Á LAUGARDALSVELLI
Páll Sævar
Guðjónsson