Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 39

Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015 Andlit bæjarins nefnist sýning sem opnuð var í Duus Safnahúsi í gær. Sýningin er framlag Listasafns Reykjanesbæjar til Ljósanætur og unnin í samstarfi við Ljósop, félag áhugaljósmyndara í Reykjanesbæ. „Það hefur verið stefna Lista- safnsins að á Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, sé heimafólk í fyrirrúmi og hafa listamennirnir hverju sinni tengst Reykjanesbæ með einum eða öðrum hætti. Að þessu sinni er hvort tveggja, viðfangsefnin og ljósmynd- arinn, heimafólk og á sýningunni verða rúmlega 300 myndir af bæjar- búum til sýnis og um helgina verða teknar fleiri myndir af íbúum og brottfluttum á fyrirfram auglýstum tímum því takmarkið er að ná sem flestum,“ segir m.a. í tilkynningu frá safninu. Þar kemur fram að upphaflega hafi verkefnið Andlit bæjarins orðið til eftir áramótin 2015 þegar Ljósop ákvað að setja upp litla sýningu fyrir Safnahelgi á Suðurnesjum sem hald- in var í mars sl. Að sögn Björgvins Guðmundssonar, sem tekið hefur allar myndir sýningarinnar, byrjaði hann á því að mynda vini og vanda- menn en fljótlega fór hann að hafa uppi á fólki sem gaman væri að mynda. „Verkefnið hefur spurst út og smám saman hefur það aldeilis undið upp á sig. Verkefnið hefur mikið og skemmtilegt sögulegt gildi, þá sérstaklega fyrir komandi kyn- slóðir,“ segir Björgvin. Aðalsteinn Ingólfsson er sýning- arstjóri og bendir hann á að metn- aður hópsins sé mikill. „Upprunaleg áform þeirra snerust um almenna hyllingu íbúa Reykjanesbæjar, gerð andlitsmynda af ákveðnum fjölda bæjarbúa á öllum aldri. Fram- kvæmdin hefur nú undið upp á sig. Sú sýning sem kynnt er hér á Ljósa- nótt er fyrsti kafli mikillar her- ferðar, hverrar endanlegt markmið er að taka ljósmyndir af öllum núlif- andi Reyknesingum, heimamönnum jafnt sem burtfluttum íbúum bæjar- ins. Vissulega er hér ekki tjaldað til einnar nætur, en takist þeim Björg- vin og félögum hans þetta ætlunar- verk sitt, að öllu eða langmestu leyti, er hér lagður grunnur að mikils- verðu framlagi til uppsöfnunar- myndlistar, og ekki síður til átta- hagabundinnar sagnfræði, mann- fræði og félagsfræði,“ segir Aðalsteinn í sýningarskránni. Opnuð hefur verið sérstök vefsíða í kringum verkefnið á slóðinni: and- litbaejarins.com/ Sýningin er opin alla daga milli kl. 12 og 17, en aðgangur er ókeypis. Andlit bæjarins í Duus Ljósmynd/Björgvin Guðmundsson Ásjóna Á sýningunni verða rúmlega 300 myndir af bæjarbúum til sýnis. The Drop Dead Diet nefnist dans- verk sem frumsýnt var á Reykjavík Dance Festival í seinasta mánuði, en tvær sýningar verða á verkinu í Tjarnarbíói sunnudaginn 6. sept- ember og föstudaginn 11. september kl. 20 bæði kvöld. „Í verkinu er tek- ist á við útlitslegar staðalímyndir í samfélaginu og öfgar í megrunar- kúrum. Áhorfendum er boðið á kynningu á nýjum og öfgafullum megrunarkúr, The Drop Dead Diet. Þeir fá jafnframt að sjá hvernig manneskjan tekst á við megrunar- kúra, meðal annars líkamlega áreynslu sem og breytingar á lík- amsvexti, freistingar og aðrar and- legar þolraunir,“ segir í tilkynningu. Höfundar og flytjendur verksins eru Gígja Jónsdóttir og Guðrún Selma Sigurjónsdóttir. Þær útskrif- uðust báðar af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2013, en höfðu áður stundað skiptinám í lát- bragðsleik haustið 2012, Gígja í Prag og Guðrún Selma í Stokkhólmi. Þriðji flytjandi verksins er mynd- listar- og tónlistarmaðurinn Loji Höskuldson sem jafnframt semur tónlistina. Loji, sem er meðlimur hljómsveitarinnar Sudden Weather Change, reynir að sameina tónlist og frásagnarlist og hefur m.a. samið tvö útvarpsleikrit. Leikmynda- og bún- ingahönnuður er Eleni Podara, sem búið hefur á Íslandi sl. tvö ár og m.a. unnið með Páli Óskari og Grísalap- palísu. Podara er með masters- gráðu, annars vegar í arkitektúr frá Aþenu og hins vegar í leikmynda- hönnun frá Prag. Dansverk um megrun Látbragð Guðrún Selma Sigurjónsdóttir og Gígja Jónsdóttir í sýningunni. Amber is the color of your energy nefnist sýning sem Anna Hrund Másdóttir opnar í Galleríi Listamönnum í dag. „Stöðug leit Önnu Hrundar að földum fjársjóðum í hennar nánasta umhverfi einkennir list hennar að miklu leyti. Hversdagsleg fyrirbæri eins og vaxlitir, köku- skraut og límbandsrúllur öðlast nýtt líf í meðförum hennar og úr verða oftar en ekki litskrúðug málverk, skúlptúrar og innsetningar. Verk hennar fá fólk til að sjá hlutina í kringum sig í nýju ljósi ekki síður en að vísa í listasöguna og eiga samtal við hana,“ segir í tilkynn- ingu. Anna Hrund lauk B.S. gráðu í stærðfræði frá HÍ áður en hún útskrifaðist með B.A. gráðu í myndlist frá LHÍ 2010. Hún stundar nú mastersnám við California Institute of the Arts í Los Angeles í Bandaríkjunum. Anna Hrund opnar sýningu Fjársjóðir Anna Hrund vinnur með hversdagsleg fyrirbæri. Fiðluleikarinn Eva Mjöll Ingólfsdóttir heldur tón- leika í Löngubúð á Djúpa- vogi annað kvöld kl. 20. Þar frumflytur hún tvö ný verk; „Meistarinn himna hers“ útsett af David Mor- neau og „Hugsanir Hrafna“ eftir Mark Hagg- erty. Auk þess flytur hún stutt verk eftir 15 tónskáld og tekur hvert um sig eina mínútu í flutningi; „An Evening indigo“ eftir Rain Worthington með vídeó eftir Rakel Steinarsdóttur og ljóð Gunnbjargar Óla- dóttur og „Lavaflow“ eftir sjálfa sig við vídeó eftir Daða Harðarson og Rakel Steinarsdóttur. Eva nam fiðluleik við Tónlistarháskólann í Brussel, síðar í Genf og loks Sweelink tónlistarháskólann í Amsterdam. „Fiðluleikur hennar ber keim af hinum a-evrópska og rússneska skóla með slípuðum, fín- gerðum en jafnframt tilfinningaþrungnum tóni. Eva var um tíma búsett í Japan þar sem hún efndi til tón- leika sem hlutu mikið lof, en efni þeirra var hljóðritað á fyrsta geisladisk hennar 1995. Annar geisladiskur kom út 1998. Eva stundaði um tíma nám í tónsmíðum, hljómsveitarritun og stjórn við Harvard háskólann í Boston. Hún hefur búið og starfað víða um heim og er núna búsett í New York,“ segir í tilkynningu. Fiðlutónleikar í Löngubúð Eva Mjöll Ingólfsdóttir Útför – saga ambáttar og skatt- svikara nefnist nýr gamanleikur sem frumsýndur verður á Bryggju- loftinu á veitingastaðnum Bryggj- unni á Akureyri í kvöld kl. 21. Í verkinu er leitað svara við því hvað geri Íslendinga að Íslend- ingum, hvaðan þeir komi og hvert þeir séu að fara. „Í verkinu er mis- kunnarlaust gert grín að hegðun og hugðarefnum Íslendinga, en þar koma m.a. við sögu landflótti til Noregs, offjölgun ferðamanna, byrjendalæsi og Framsóknarflokk- urinn. Veigamikill þáttur verksins eru frumsamin lög, en sýningin inniheldur titla á borð við „For- feðraveldið“, „Þetta reddast allt“ og „Miðað við höfðatölu“,“ segir m.a. í tilkynningu. Sýningin er samin og flutt af Vandræðaskáldum, en þau eru Sesselía Ólafsdóttir, leikkona og leikstjóri, og Vilhjálmur B. Braga- son, leikskáld. Bæði eru þau til- tölulega nýkomin heim úr námi frá London, en Útför er þeirra fyrsta sýning eftir heimkomu. Búninga- og sviðsmyndahönnuður er Herdís Hermannsdóttir. Ljósmynd/Daníel Starrason Vandræðaskáld Vilhjálmur B. Bragason og Sesselía Ólafsdóttir í hlutverkum sínum í gamanleiknum Útför – saga ambáttar og skattsvikara sem frumsýndur verður í kvöld. Nýr gamanleikur sýndur á Bryggjunni Billy Elliot (Stóra sviðið) Fös 4/9 kl. 19:30 Sun 13/9 kl. 19:00 Fim 24/9 kl. 19:00 Lau 5/9 kl. 19:00 Fös 18/9 kl. 19:00 Fös 25/9 kl. 19:00 Lau 12/9 kl. 19:00 Sun 20/9 kl. 19:00 Sun 27/9 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Fim 10/9 kl. 20:00 aukas. Lau 19/9 kl. 20:00 Lau 26/9 kl. 20:00 Fös 11/9 kl. 20:00 aukas. Mið 23/9 kl. 20:00 Aukasýningar í september Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 20/9 kl. 13:00 Sun 4/10 kl. 13:00 Sun 11/10 kl. 13:00 Sun 27/9 kl. 13:00 Lau 10/10 kl. 13:00 Haustsýningar komnar í sölu Hystory (Litla sviðið) Lau 12/9 kl. 20:00 Sun 20/9 kl. 20:00 Sun 27/9 kl. 20:00 Fös 18/9 kl. 20:00 Fös 25/9 kl. 20:00 Aðeins þessar sýningar! Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Þri 8/9 kl. 19:30 fors. Fim 17/9 kl. 19:30 Aukas. Sun 27/9 kl. 19:30 8.sýn Mið 9/9 kl. 19:30 fors. Fös 18/9 kl. 19:30 3.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Fim 10/9 kl. 19:30 fors. Lau 19/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Fös 11/9 kl. 19:30 Aðalæ. Sun 20/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn Lau 12/9 kl. 19:30 Frums. Fös 25/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 26/9 kl. 19:30 7.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Fös 4/9 kl. 19:30 Fös 11/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 19/9 kl. 19:30 8.sýn Fös 4/9 kl. 19:30 Aðalæ. Lau 12/9 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/9 kl. 19:30 9.sýn Lau 5/9 kl. 19:30 Frums. Fim 17/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 6/9 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/9 kl. 19:30 7.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. 4:48 PSYCHOSIS (Kúlan) Fim 10/9 kl. 19:30 Frums. Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Mið 16/9 kl. 19:30 3.sýn DAVID FARR HARÐINDIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.