Morgunblaðið - 28.09.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Líf var í Lindakirkju í Kópavogi í gær, þar sem
fram fór svokallað kirkjubrall. Börn úr söfn-
uðinum létu ljós sitt skína í kirkjunni og töfruðu
fram ýmis listaverk. Þau föndruðu fugla og
fiska, máluðu á kökur, fléttuðu armbönd og mál-
uðu myndir með blautu spagettíi. Öll verkefnin
tengdust sköpunarsögu Biblíunnar, hvert á sinn
hátt. Að föndrinu loknu var börnunum boðið upp
á gómsætar pylsur.
Sköpunarsagan máluð með spagettíi
Morgunblaðið/Golli
Ungir listamenn létu ljós sitt skína í kirkjubralli í Lindakirkju
Spáð er vætutíð
fram að næstu
helgi, sérstaklega
á vestanverðu
landinu. Vænta
má rigningar í
dag, fyrst á Suð-
austurlandi og
síðan um land allt
seinnipartinn.
Vindstyrkur
verður á bilinu 5-
13 metrar á sekúndu og bætir í þeg-
ar líða tekur á daginn.
Aðfaranótt þriðjudags fer djúp
lægð yfir landið með hvassviðri eða
stormi, jafnvel roki á austanverðu
landinu. Vindstyrkur verður því
mikill.
Þegar komið er fram á þriðjudag
og miðvikudag er ákveðin suð-
vestanátt yfir landinu. Verður þá
vinda- og vætusamt, sérstaklega á
Suðvestur- og Vesturlandi.
Á fimmtudag verður besta veðrið
á Austurlandi, þar sem spáð er að
hiti geti farið upp í 14 stig og vindur
verður undir fimm metrum á sek-
úndu.
isb@mbl.is
Vætutíð
spáð fram
að helgi
Vætutíð Næstu
daga mun rigna.
Blíðviðri spáð
eystra á fimmtudag
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er búist við því að samn-
inganefndir Eflingar og Starfs-
greinasambandsins (SGS) og
samninganefnd ríkisins undirriti
nýjan kjarasamning í dag. Björn
Snæbjörnsson, formaður SGS, vildi
ekki staðfesta þetta í gær en sagði að
góður gangur væri í viðræðum.
„Maður veit aldrei,“ sagði Björn
aðspurður hvort samningsaðilar
yrðu með penna á lofti á fyrirhug-
uðum fundi í dag. „En þetta er ekki
búið fyrr en þetta er búið,“ sagði
Björn. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins munu samningarnir, sem
m.a. ná til hjúkrunarheimila, líkjast
þeim sem undirritaðir voru á al-
mennum vinnumarkaði í vor. Úr-
skurður gerðardóms um laun hjúkr-
unarfræðinga og félaga í BHM og
nýjar tölur um launaþróun einstakra
stétta munu því ekki hafa áhrif á
þennan samning.
Eins eru samningar á milli samn-
inganefnda ríkisins og Samtaka fyr-
irtækja í velferðarþjónustu (SFV) á
lokastigi. Ólafur G. Skúlason, for-
maður Félags hjúkrunarfræðinga,
sagði í gær að einungis væri beðið
eftir að gefið yrði grænt ljós fyrir
fjármögnun samninganna af hálfu
ríkisins. „Þessi samningur er sam-
bærilegur við það sem aðrir hjúkr-
unarfræðingar hafa fengið,“ sagði
Ólafur. Aðspurður sagði hann að
kjör hjúkrunarfræðinga sem störf-
uðu undir SFV og þeirra sem störf-
uðu innan almenna geirans væru
sambærileg. Hjúkrunarfræðingar
hjá sveitarfélögum nytu hins vegar
ívið lakari kjara en aðrir úr starfs-
stéttinni.
50% félagsmanna greitt atkvæði
Félög opinberra starfsmanna eiga
enn eftir að ganga frá kjarasamn-
ingum og SFR og Sjúkraliðafélag Ís-
lands munu ljúka atkvæðagreiðslu
um verkfallsboðun á morgun, þriðju-
dag. Að sögn þeirra Árna Stefáns
Jónssonar, formanns SFR, og Krist-
ínar Guðmundsdóttur, formanns Fé-
lags sjúkraliða, hafa þegar yfir 50%
félagsmanna greitt atkvæði, en það
er markið sem til þarf svo atkvæða-
greiðslan verði bindandi.
Ekki hefur verið boðað til fundar í
kjaradeilunni en Kristín sagðist
„ekki trúa öðru“ en boðað yrði til
kjarafundar fljótlega. „Ég er bjart-
sýn á að kallað verði á okkur eftir
helgi. Við höfum fengið fregnir um
að kjarasamningur Starfsgreina-
sambandsins og Eflingar liggi fyrir,“
sagði Kristín og sagði jafnframt að
sjúkraliðar færu ekki fram á annað
en sambærilega samninga og þar
yrðu undirritaðir.
Búist við undirritun í dag
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Starfsgreinasambandið Búist er
við að Efling og SGS skrifi undir.
Efling og Starfsgreinasambandið semja við ríkið Hjúkrunarfræðingar hjá
SFV einnig búnir að semja Sjúkraliðar búast við sambærilegum samningi
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að fulltrúar stærstu heild-
arsamtaka á vinnumarkaði,
SALEK-hópsins, sem miðar að
því að ná heildarsamkomulagi á
vinnumarkaði til frambúðar,
vinni ekki eftir tímaramma.
„Menn eru nokkuð sammála um
það hvernig hlutirnir gætu litið
út í framtíðinni en það er annað
mál að komast þangað. Megin-
viðfangsefnin eru annars vegar
launaskrið og hins vegar lífeyr-
ismál á almenna markaðnum,“
segir Gylfi. Hann segir að menn
horfi til hinna Norðurlandaþjóð-
anna. „Þar hafa menn náð
ákveðinni stöðu og skilningi um
það hvað hafi forgang. En það
tók mörg ár og upp undir áratug
að ná þeirri stöðu,“ segir Gylfi.
Sammála um
framtíðarsýn
SALEK-HÓPURINN
Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pír-
ata, telur að ekki sé nóg gert til að
tryggja að málsmeðferðartími úr-
skurðarnefndar um upplýsingamál
sé styttur. Í svari við fyrirspurn
hennar á Alþingi um meðal-
afgreiðslutíma nefndarinnar kemur
fram að biðtíminn sé um 200 dagar
frá því að kæra berst nefndinni.
„Það er þekkt að það tekur
óhemjulangan tíma að fá úrskurð
frá þessari úrskurðarnefnd. Hún
er fjárvana. Það er óviðunandi að
blaðamenn þurfi kannski að bíða í
heilt ár eftir að fá úrskurð um
hvort þeir fái aðgang að upplýs-
ingum. Ég veit að það er þannig.
Ef maður er að vinna að frétt, þá
er hún löngu kulnuð þegar svörin
koma,“ segir Birgitta og áréttar
mikilvægi þess að tryggja aðgang
almennings og fjölmiðla að upplýs-
ingum um starfsemi stjórnvalda. Í
óundirbúnum fyrirspurnartíma á
Alþingi hinn 14. september gagn-
rýndi hún að nefndin fengi ekki
meira fjármagn til að stytta þenn-
an biðtíma. Í svari við fyrirspurn-
inni sagði Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra að mjög
æskilegt væri að stytta þann tíma
eins og kostur væri. „Ég tel reynd-
ar að það eigi að vera hægt að gera
það án verulega aukins fjármagns,
það þurfi ekki endilega að stranda
á því, en það er þó eitthvað sem er
rétt að líta til þegar menn leitast
við að stytta þennan tíma, þ.e.
meta hvort það þurfi að bæta í
þetta fjármagni,“ sagði ráð-
herrann. isb@mbl.is
Meðalbiðtími eftir úrskurði um
rétt til upplýsinga um 200 dagar
Birgitta Jónsdóttir segir nefndina vera fjárvana
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bið Forsætisráðherra sagði að það
væri æskilegt að stytta biðtímann.