Morgunblaðið - 28.09.2015, Page 10

Morgunblaðið - 28.09.2015, Page 10
Íslendingur hefði heitið þessu nafni og var ekkert mjög uppveðraður til að byrja með. Ég setti mig samt í samband við Jensen og smám saman vaknaði hjá mér áhugi, sérstaklega þegar hann sagði að líklega hefði maðurinn verið sunnlenskur.“ Sunnlenskur var töfraorð, sem Magnús fékk ekki staðist. Honum rann nánast blóðið til skyldunnar, því sjálfur á hann ættir að rekja til Suð- urlands, föður síns megin; til Land- eyja, Hvolhrepps, Rangárvalla og Hrunamannahrepps. Þótt hann vissi mest um sunnlenskar ættir af öllum ættum landsins, rak hann ekki minni til að hafa heyrt um Þorvald Hall- dórsson sem uppi var á 19. öld. „Ég gat mér með réttu til um að Þorvaldur Halldórsson hefði verið hið rétta nafn Thorvalds Halvorsens, því það hljómaði svo líkt. Samkvæmt frásögn Jensens hafði Þorvaldur far- ið í skyndi til Ástralíu, látist þar við dularfullar aðstæður, sem leiddi til réttarrannsóknar. Til að reyna að komast til botns í málinu sló ég á þráðinn til Ragnars Böðvarssonar, sem ég þekkti frá því við sátum sam- an í stjórn Ættfræðingafélagsins og ég vissi að var fjölfróður um sunn- lenskar ættir. Þegar ég hafði rakið söguna hugsaði hann sig um stund- arkorn og sagði síðan „Ertu að tala um hann Þorvald á Bryggjum?“ Nánari eftirgrennslan þeirra leiddi í ljós að sá var einmitt mað- urinn. Magnús Óskar aflaði sér vitn- eskju um seinni hluta stuttrar ævi Þorvaldar, t.d. að hann fór fyrst til Danmerkur, síðan Hamborgar og þaðan til Ástralíu, þar sem hann stundaði garðyrkju, gerðist síðan gullleitarmaður í Queensland og dó í bænum Townsville aðeins 27 ára. Ragnari var kunnugt um Ástralíu- ferðina og að þaðan hefði Þorvaldur aðeins sent tvö bréf til Íslands, í maí og júní 1873, bæði stíluð á mág hans, Hermanníus sýslumann. Ragnar hafði uppi á bréfunum sem höfðu lengi verið til sýnis fyrir gesti og gangandi í byggðasafninu í Skógum. Danskur ævintýramaður Að sögn Magnúsar voru þeir Böðvar mjög áhugasamir um ættir og uppruna íslenska Ástralíufarans og leituðu víða fanga. „Grúsk Ragn- ars varð til þess að hann hafði uppi á bókinni Missing Friends, sem kom út 1892, og síðan í danskri þýðingu 1914 undir nafninu En udvandrers Æven- tyr í Australien. Fortalt af ham selv. Bókin er sjálfsævisaga vinar Þor- valdar, danska ævintýramannsins Thorvalds Peters Ludwigs Weite- meyers, en þeir nafnarnir voru klefa- félagar á margra mánaða siglingu frá Hamborg til Ástralíu 1872 og varð vel til vina. Þorvaldur kemur töluvert við sögu í frásögn Weitemeyers og þótt höfundurinn virðist ekki alltaf mjög nákvæmur varpar hún ljósi á það sem dreif á daga Þorvaldar síð- ustu tvö æviárin,“ segir Magnús og upplýsir að Ragnar hafi stuðst mest við dönsku þýðinguna en haft ensku frumútgáfuna til hliðsjónar. „Hann var mjög spenntur fyrir verkinu, leyfði mér að fylgjast með framvind- unni og bað mig stundum um að lesa yfir. Ragnar lést í fyrra og entist því ekki aldur til að sjá þýðingu sína á prenti.“ Magnús og Ragnar skrifa hvor Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Ættfræðin er skrýtinskepna. Aldrei er aðvita hvað grúsk áþeim vettvangi getur haft í för með sér,“ skrifar Magnús Óskar Ingvarsson, fyrrverandi stærðfræðikennari í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, í formála bókarinnar Vinur Land- eyings, sem bóka- útgáfan Sæmund- ur gaf nýverið út. Hér mælir maður sem í fjörutíu ár hefur grúskað í ættum lands- manna og á stundum komist á snoðir um ým- islegt skrýtið. Magnús kveðst ekki vera ættfræðingur, enda geti þeir einir skreytt sig slíkum titli sem gefið hafa út ættfræðirit. Hann er þó vel þekktur í grúskara- og ætt- fræðingakreðsum og því var engin tilviljun að ritstjóri Fréttabréfs Ætt- fræðifélagsins áframsendi honum rétt fyrir aldamótin fyrirspurn í tölvupósti frá danska sagnfræðingn- um Robert Örsted Jensen. Norrænir menn í Ástralíu „Jensen kvaðst vera að kanna sögu norrænna manna í Ástralíu og vantaði frekari vitneskju um Thor- vald Halvorsen, sem hann taldi hafa verið fyrsta Íslendinginn í Queens- land í Ástralíu. Mér þótti ólíklegt að Landeyingurinn sem hvarf í Ástralíu Aðeins einn Íslendingur er talinn hafa freistað gæfunnar í Queenslandi í Ástr- alíu þegar fimmti hluti þjóðarinnar fluttist til Vesturheims seint á 19. öld. Síð- an hafði lítið til hans spurst þar til 1999 að fyrirspurn frá dönskum sagnfræð- ingi leiddi Magnús Óskar Ingvarsson og Ragnar Böðvarsson heitinn á slóðir Þorvaldar Halldórssonar frá Landeyjum. Grúskararnir voru himinlifandi þeg- ar Ragnar fann meira en aldargamla bók eftir vin Landeyingsins. Landnemi Teikn- ing af landnema í Ástalíu sem birtist í frumútgáfu bókar Weitemeyers. Innflytjendur Stigið á skipsfjöl. Gullgrafarar Frá Drottningarlandi. Ragnar Böðvarsson 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2015 Bridget Ýr McEnvoy geðhjúkrunar- fræðingur fjallar um gjörhygli kl. 17.15 í dag í Borgarbókasafni - Menn- ingarhúsi Spönginni. Yfirskrift erind- is hennar er Gjörhygli - leið til að vera til staðar í lífinu. Bridget Ýr mun kynna helstu kenningar um gjörhygli og jafnframt kenna gestum hvernig hægt er að tileinka sér gjörhygli með því að leiða þá í gegnum nokkrar hug- leiðsluæfingar. Gjörhygli fjallar um að beina at- hyglinni að líðandi stund. Huganum er beint að því sem er að gerast þá stundina án þess að fella dóma, án fyrirfram gefinna skoðana eða for- dóma. Gjörhygli snýst um að sættast við það sem við finnum, skynjum, hugsum, heyrum eða sjáum. Bridget Ýr er frá Írlandi, en hefur búið á Íslandi síðastliðin þrjátíu ár. Hún lærði geðhjúkrun á Írlandi og hefur starfað við hana í heimalandi sínu, á Akureyri og við Heilsustofnun í Hveragerði. Hún hlaut kennara- þjálfun í gjörhygli við Háskólann í Bangor Wales árið 2005 og hefur kennt hana frá 2006. Bridget Ýr hef- ur haldið fjölda námskeiða í gjör- hygli, sérstaklega fyrir hópa verkja- sjúklinga. Þegar erindinu lýkur verður boðið upp á stutt tónlistaratriði. Leifur Gunnarsson, kontrabassaleikari, Gunnar Hilmarsson gítarleikari og Ingrid Örk Kjartansdóttir söngkona flytja tvö lög af hljómdisknum Húsið sefur sem kom nýverið út. Í leiðinni er viðburðaröð þar sem flutt eru stutt erindi síðasta mánu- dag hvers mánaðar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Borgarbókasafnið - Í leiðinni Kennari Bridget Ýr McEnvoy hlaut kennaraþjálfun í gjörhygli. Athyglin á líðandi stund Heimildarmyndin „Hver stund með þér“ verður frumsýnd kl. 15 í dag á Gjábakka, Fannborg 8 í Kópavogi. Myndin, sem er sérviðburður á Riff kvikmyndahátíðinni, segir frá Ólafi Birni Guðmundssyni sem orti ást- arljóð til konu sinnar, Elínar Maríus- dóttur, á 60 ára tímabili. Að þeim liðnum samdi barnabarn þeirra, Anna María Björnsdóttir, tónlist við ljóðin og gaf út á plötunni „Hver stund með þér“. Er þetta efniviður heimildar- myndarinnar. ,,Þegar ég byrjaði að vinna að plötunni og fór að segja fólki frá ljóðunum og lögunum þá höfðu margir á orði við mig að nú- tíma fyrirmynd vantaði um þess kon- ar ást sem endurspeglast í ljóðunum. Skortur á slíkum fyrirmyndum virtist leiða suma að spurningunni: af hverju ætti ég að trúa á ástina yfir höfuð? Þetta kveikti hugmyndina að heimildarmyndinni,“ segir hún. Leikstjóri myndarinnar er Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir. Eftir sýningu ræða kvikmynda- gerðarmennirnir við gesti og Anna María og Svavar Knútur flytja lög af plötunni „Hver stund með þér“. Sýn- ingin er ókeypis á meðan sæti leyfa. Sérviðburður á Riff kvikmyndahátíðinni í Gjábakka Hver stund með þér – Ástarljóð afa til ömmu í 60 ár Fjársjóður Ólafur Björn Guðmundsson orti ástarljóð til konu sinnar, Elínar Maríusdóttur, á 60 ára tímabili. Barnabarn þeirra samdi tónlist við ljóðin. Fæst íapótekum,Krónunni, Hagkaup,NettóogGrænheilsa.Umboð:Celsus. Duft í kalt vatn eða boost Þægileg inntaka Styður: Efnaskipti og öflugri brennslu Minni sykurlöngun Slökun og svefn Vöðva og taugastarfsemi Gott á morgnana eða kvöldin 1/3 tsk = 350mg - ekkert bragð ENGIN MAGAÓNOT Mikill virkni Náttúrulegt Þörungamagnesíum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.