Morgunblaðið - 28.09.2015, Page 20

Morgunblaðið - 28.09.2015, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2015 ✝ JónmundurStefánsson fæddist í Ólafsfirði 17. júní 1922. Hann lést á dvalarheim- ilinu Hornbrekku 20. september 2015. Foreldrar hans voru Jónína Kristín Gíslasdóttir hús- móðir, f. 24.8. 1895, d. 3.12. 1979, og Stefán Hafliði Steingrímsson verkamaður, f. 9.5. 1892, d. 19.2. 1972. Jónmundur var fjórði í röð tíu systkina. Látin eru Gíslína Kristín, Kristinn Eiríkur, Ólafur Steingrímur, Guðlaug Krist- björg, Sigurjón Þór, Sigurveig Anna og Þorfinna. Eftirlifandi systkini eru Sigþór Magnús og Margrét Sigurhelga. Fórsturforeldrar Jónmundar frá 11 ára aldri voru Guð- mundur Gíslason, f. 1893, d. 1969, Jónína Jónsdóttir, f. 1898, d. 1985, fóstursystur, Sigríður Guðmundsdóttir, f. 1918, d. 5.10. 2006, eftirlifandi uppeldissystir Jóna Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 1934. Jónmundur byrjar sem strákpolli að beita og stokka upp ásamt annarri verkamanna- 1949, hennar maki er Jón Viðar Óskarsson, börn þeirra eru: a) Þorsteinn Snævarr Björnsson, börn hans eru Jón Björn, Auður Birna og Bjarni Snær. b) Kristín Jónína Rögnvaldsdóttir, maki Þorsteinn Sveinsson, börn þeirra eru Ólíver, Sylvía og Tómas Leó. c) Petrína Þórunn Jónsdóttir, maki Björgvin Harð- arson, börn þeirra eru Hjördís Bára, Rakel Ósk, Auðunn Magni, Guðný Vala og Sindri Snær. d) Elín Sigurveig Jóns- dóttir, maki Hlynur Haf- steinsson, synir þeirra eru Jón Viðar, Kristján Snævarr og Ey- þór Júlíus. e) Óskar Gunnþór Jónsson. 2. Guðrún Kristín Jón- mundsdóttir, f. 17. febrúar 1950, hennar maki er Sigtryggur Val- geir Jónsson, börn þeirra eru: a) Valgerður Sigtryggsdóttir, maki Tryggvi Jónsson, börn þeirra eru Davíð Birkir, maki Eydís Inga og er þeirra barn Snædís Stefanía, Lilja Dögg, Guðrún Ósk, Jón Valgeir og Ey- björg Rós. b) Óskírður Sig- tryggsson. c) Steingerður Sig- tryggsdóttir, maki Ólafur Ægisson, börn þeirra eru Ægir Óli og Karítas Rún. d) Jónína Kristín Sigtryggsdóttir, maki Guðjón Andri Guðjónsson, börn þeirra eru Sigtryggur Valgeir, Þuríður Helga, Steingerður Klara, Ásdís Elfa og Sigurrós Lilja. Útför Jónmundar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 28. september 2015, kl. 13. vinnu sem bauðst. Jónmundur hóf snemma störf tengd sjómennsku, var á síld á sumrin en fór síðan á ver- tíð suður með sjó og beitti línu. Sam- hliða verkaði hann grásleppuhrogn á vorin í nokkur ár. Aðalstarf Jón- mundar var olíu- afgreiðsla, en hann tekur við ol- íuafgreiðslu Skeljungs af tengdaföður sínum, Þorsteini Þorsteinssyni, eftir lát hans 1958. Jónmundur starfaði fyrir Skeljung fram yfir sjötugt. Hann starfaði einnig í slökkvi- liði Ólafsfjarðar, söng með karlakórnum, var ötull félagi í Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar og slysavarnadeild karla. Jón- mundur og Kristín bjuggu alla sína tíð að Brekkugötu 9, eða þar til þau fluttu á Dvalarheim- ilið Hornbrekku í Ólafsfirði árið 2008. Þann 11. janúar 1946 giftist Jónmundur Kristínu G. Þor- steinsdóttur húsmóður, f. 18.10. 1923, d. 4.10. 2014. Dætur þeirra eru: 1. Snjólaug Steinunn Jónmundsdóttir, f. 26. janúar Elsku hjartans afi, við kveðj- um þig með söknuði og gleði í senn. Við vorum svo heppnar að hafa átt þig að, þú veittir okkur ófáar gleðistundir í gegnum tíð- ina. Þeir sem þekktu afa vissu að hann var forvitinn, stríðinn og skemmtilegur. Á einu ætt- armóti hjá Miðbæjarættinni fékk afi borða sem á stóð „Herra athyglissjúkur“. Helga systir hans sagði að hann hefði einnig átt að fá borða sem á hefði staðið „Herra forvitinn“, þetta segir heilmikið um hann afa. Á þessum mótum voru margar sögur rifjaðar upp af honum og þeim systkinum, mik- ið var nú hlegið, já hann afi gat svo sannarlega látið fólk hlæja. Gleðin sem afi hefur gefið okkur í gegnum árin er ómetanleg. Það væri hægt að gefa út heila bók af prakkarastrikum afa, en þau verða ekki þulin upp hér. Í staðinn viljum við systur þakka fyrir allar stundirnar sem við höfum átt með afa. Afi Jómbi vann hjá Skeljungi eða Shell lungann úr sinni starfsævi, enda kölluðum við hann oft olíukóng. Við fengum að þvælast með honum á bryggjunni í Shell-hús- inu og fengum oft að sitja í traktornum, þegar við lítum til baka eru þetta ómetanlegir tímar. Einnig var alltaf hægt að fara til afa og spila við hann, hvort sem það var að leggja kapal sem hann gerði mikið af eða spila ólsen-ólsen. Hann hik- aði þó ekki við að beita brögðum í spilum, hvort sem um var að ræða gegn okkur barnabörnun- um eða síðar meir barnabarna- börnunum og höfðum við öll gaman af. Það voru ófáar æv- intýraferðirnar sem við fórum með afa og ömmu um fjörðinn okkar og einnig til Akureyrar. Þeim fannst svo gaman að renna inn í Vín og kaupa ís á góðviðrisdögum. Margar góðar stundir áttum við systur í Höfða, sumarbústað ykkar Magga frænda, þar var mikið brallað og dundað sér við. Haustið var í miklu uppáhaldi hjá afa, þá lagðist hann í berja- mó og naut útiverunnar. Það sem okkur systrum finnst líka svo dásamlegt þegar við förum að rifja upp minn- ingar um afa er hvað hann hafði mikla næmni fyrir náttúrunni. Það átti að bera virðingu fyrir henni og okkur var meðal ann- ars kennt að tína ber með fingr- unum, ekki með tínu það var al- gjörlega bannað. Taka upp rusl ef við sæjum slíkt og ganga vel um landið. Afi Jómbi var mikill mann- vinur og var hann okkur systr- um mikil fyrirmynd, efst eru okkur í huga ferðir með honum inn á Akureyri, hann átti það til að taka upp puttalinga. Óháð því hvort þeir töluðu íslensku eða ekki, hann notaði bara ein- hver tákn með tali til að gera sig skiljanlegan. Hann vildi allt- af hjálpa öðrum, fannst líka svo gaman að vera í kringum fólk, tala við það og spá í hvað aðrir væru að gera. Á veturna gaf afi alltaf fuglunum fuglafóður og annað góðgæti, hann hafði mikla ánægju af að fylgjast með þeim. Á Brekkugötunni hjá ömmu og afa var alltaf dásamlegt að vera, fá hlýtt faðmlag og ekki verra ef við gátum lagst á bumbuna á afa þegar við vorum litlar, sem við kölluðum „afakodda“. Afi var mikill öðlingur og fyr- irmynd. Við systur kveðjum hann fullar þakklætis, takk fyrir allt, elsku afi, elskum þig ávallt. Valgerður, Steingerður og Jónína Kristín Sig- tryggsdætur. Í dag verður elskulegur afi okkar jarðsunginn frá Ólafs- fjarðarkirkju. Hann sem var okkur svo kær. Á stundu sökn- uðar, sorgar og tómleika er dýr- mætt að eiga ljúfar minningar um besta afa í heimi. Afi var skemmtilegur með eindæmum og prakkari í sér, góður og gjaf- mildur ekki bara við okkur, heldur við alla sem hann þekkti. Við litum mjög upp til hans og hann var okkur góð fyrirmynd. Það var gaman að alast upp á Ólafsfirði, fara með afa niður á bryggju þar sem hann afgreiddi olíu í bátana og skipin þegar þau komu að landi. Á haustin var fastur liður hjá okkur að fara með afa í berjamó. Hann elskaði að tína ber og ekki síður að borða þau. Á haustin notaði hann mikið af frítíma sínum í berjaferðir og að tína fjallagrös í seyði, sem hann taldi allra meina bót. Hann spilaði mikið við okkur og kenndi okkur að leggja kapal. Það var alltaf gaman að vera heima hjá afa og ömmu, gott að spjalla við þau og þau alltaf til staðar fyrir okkur. Afi hafði gaman af saklausum prakkarastrikum og að gantast við fólk og eru margar skemmti- legar sögur til um það. Upp í hugann kemur ferm- ingardagur hans, þegar hann fékk lánað hjól og hjólaði beint út í sjó og var dreginn upp úr sjónum í fermingarfötunum. Þekktust í fjölskyldunni er sennilega sagan af því þegar hann bauð systrum sínum í bíl- túr upp í sveit. Eftir akstur um stund lét hann bílinn hökta og drepa á sér, sagði þeim að fara út að ýta, sem þær og gerðu, en þegar þær voru búnar að ýta lengi setti hann bílinn í gang og keyrði í bæinn. Skildi þær eftir svo þær urðu að ganga heim. Systrunum var ekki skemmt en þær fyrirgáfu þessum hrekkj- ótta bróður sínum og seinna gátu þau endalaust hlegið að þessu. Þannig að það var ekki skrít- ið að Ella systir hélt, þegar hún var lítil, að bókin Langafi prakkari væri skrifuð um hann afa Jómba. Eftir að hann fór á dvalar- heimilið Hornbrekku, og meðan hann hafði heilsu til, létti hann lund fólksins þar bæði með gamansemi og góðmennsku sinni. Nú á kveðjustund þökkum við fyrir hverja samverustund með afa og fyrir allt það sem hann kenndi okkur. Minningarnar eru okkur mikill fjársjóður sem við munum ávallt varðveita. Þannig að þegar við lítum til baka rifj- ast upp skemmtilegar minning- ar og sögur af afa, sem við deil- um með börnunum okkar, þannig lifir minning hans. Elsku mamma og Gunna frænka, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi algóður Guð blessa minningu þína, elsku besti afi. Þorsteinn Snævarr, Kristín Jónína, Elín Sig- urveig og Óskar Gunnþór. Elsku afi Jómbi, ég trúi ekki að þú sért farinn frá mér. Þú varst besti vinur sem hægt er að hugsa sér og verður ávallt efst í huga mér. Ég er endalaust þakklát fyrir allar minningarnar okkar saman og allt sem við höfum gert, alla rúntana okkar saman og öll skiptin sem við spiluðum og svindluðum á hvort öðru og allt yndislega spjallið okkar. Ég man sérstaklega eftir einum rúntinum okkar þegar þú keyrð- ir upp að Múlagöngum og ætl- aðir að snúa við fyrir utan þau, ég hef verið ca. 7 ára, og hélt að þetta væri mitt síðasta því þú varst svo nálægt brúninni en auðvitað tókst þér að snúa við eins og ekkert væri og komumst við heil heim. Tattúið mitt til heiðurs þér mun ég bera með stolti þangað til ég kem til þín og mun ég alltaf halda upp á töluna þína, 21. Það verður skrítið að fara til Ólafsfjarðar þegar það er enginn afi Jómbi þar til að grínast í manni! Þú varst fyndnasti maður í heim- inum og aldrei langt í brand- arana hjá þér, t.d. síðasta af- mælisdaginn þinn þegar þú sagðir við alla að þú værir nú bara 72 ára en ekki 93 ára og fussaðir yfir því að enginn kynni stærðfræði! Elsku besti, yndis- legi, fallegi og fyndnasti afi minn, ég er svo heppin að hafa átt 19 ár með þér og ég er svo glöð yfir því hvað við vorum mikið saman. Ég veit að þú ert glaður að vera loksins kominn aftur til ömmu Stínu og getur passað upp á hana aftur, knús- aðu hana fast frá mér og von- andi getið þið tínt fullt af fal- legum aðalbláberjum saman aftur. Ég mun sjá til þess að 17. júní verði alltaf haldinn hátíð- legur sem dagurinn þinn, ég lofa því. Ég mun aldrei gleyma því þegar við hlustuðum í síð- asta sinn á lögin Villa Vill sam- an og þegar þú brostir í síðasta sinn til mín, þá minningu mun ég geyma á góðum stað í hjart- anu mínu. Ég gái út um gluggann minn. hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar, ég reyndar sé þig alls staðar, þá napurt er. Það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Elsku afi Jómbi, hvíldu í friði, ég mun sakna þín á hverjum degi, þangað til minn tími kem- ur og við hittumst aftur, vertu tilbúinn með spilin! Þín Auður Birna. Góður drengur er genginn, já ef einhver á skilið það sæmd- arheiti er það Jónmundur Stef- ánsson, fósturbróðir minn og frændi, sem kvaddi þessa jarð- vist á dvalarheimilinu Horn- brekku í Ólafsfirði 20. septem- ber síðastliðinn, 93 ára að aldri. Hann kom í fóstur til foreldra minna, Jónínu Jónsdóttur og Guðmundar Gíslasonar í Ós- garði, 11 ára gamall, ári áður en ég fæddist. Svo ég naut sam- vista hans sem stóra bróður. Ég minnist hans sem ljúfmennis og gleðigjafa og þakka honum fyrir umhyggju hans og kærleik við mig og foreldra mína alla tíð. Minningar um dásamlega æskudaga í firðinum mínum fagra hrannast upp. Frjálsræði og leikir æskuáranna. Það eru forréttindi að alast upp í litlu samfélagi þar sem allir þekkjast og vinátta og samstaða ríkir. Jónmundur var mikill náttúru- unnandi, hafði gaman af því að renna fyrir silung í vatninu og lax í ánni. Hann elskaði að fara í berjamó, þekkti gróður fjallanna og átti sínar uppá- haldsberjabrekkur, þar naut hann fegurðar og friðar náttúr- unnar. Minningar mínar um heim- sóknir til Ólafsfjarðar eru mér dýrmætar. Eiginkona Jónmund- ar, Kristín Guðfinna Þorsteins- dóttir, var mikil sómakona, list- feng og skemmtileg. Heimili þeirra var fallegur sælureitur. Þau bjuggu allan sinn búskap í Brekkugötu 9, öðru nafni Fé- lagahúsinu, þar var tekið á móti gestum með opnum faðmi og frábærum veitingum. Þegar heilsu þeirra hrakaði fluttu þau á dvalarheimilið Hornbrekku þar sem þau nutu frábærrar umönnunar síðustu árin og voru þakklát fyrir dvölina þar. Kristín lést 4. október 2014, við kistulagningu hennar flutti Jónmundur henni þakkir fyrir sambúðina, ástina, umhyggjuna og hve dýrmæt hún var honum á lífsgöngunni. Þessi stund er mér ógleymanleg því hún var svo undurfalleg. Víða sáust tár á hvarmi viðstaddra að henni lok- inni. Elsku systur, Snjólaug og Guðrún. Ég votta ykkur samúð mína vegna andláts ykkar ást- kæra föður og er þakklát ykkur fyrir alla þá ást og hlýju sem þið sýnduð honum alla tíð. Ég þakka innilega fyrir allar góðu minningarnar. Jóna Ingibjörg Guðmundsdóttir. Jónmundur Stefánsson  Fleiri minningargreinar um Jónmund Stefánsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, LÁRU GUÐBJARGAR AÐALSTEINSDÓTTUR, Hjaltabakka, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans á deildum 11G, 11E og 12G fyrir góða umönnun og hlýju í hennar garð. . Bjarni Sveinsson, Þórunn Ólafsdóttir, Meyvant Einarsson, Hulda Bjarnadóttir, Haukur Óskarsson, Bjarney Bjarnadóttir, Sveinn Ingi Bjarnason, Kristín Geirsdóttir. Móðir okkar, JÓFRÍÐUR HELGADÓTTIR frá Ólafsfirði, lést þann 23. september á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 30. september, kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeir sem vilja minnast hennar láti líknarstofnanir njóta þess. . Helga Eiríksdóttir, Gunnar H. Jóhannsson, Guðlaug P. Eiríksdóttir og fjölskyldur. Okkar ástkæri HILMAR JÓN BRAGASON, fyrrum kennari í Menntaskólanum á Laugarvatni, lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 24. september. Útför hans fer fram frá Áskirkju föstudaginn 2. október kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. . Óliver Hilmarsson, Helga Björt Möller, Georg Hilmarsson, Fríða Einarsdóttir, Claudia Ósk Georgsdóttir og barnabörn. Bróðir minn, HELGI BJÖRNSSON, Kvískerjum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Hornafirði sunnudaginn 27. september. Jarðarförin auglýst síðar. . Hálfdán Björnsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AGATHA HEIÐUR ERLENDSDÓTTIR, Álftamýri 48, lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 21. september. Hún verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 2. október kl. 13.00. . Vilhjálmur Vilhjálmsson, Lárus Jóhannesson, Tanya Zharov, Erlendur Davíðsson, Anna Björg Davíðsdóttir, Ægir Haraldsson, Ólafía Björk Davíðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.