Skólavarðan - 01.10.2007, Blaðsíða 11

Skólavarðan - 01.10.2007, Blaðsíða 11
Misskipting tekna slík að engu tali tekur KJARAMÁLARÁÐSTEFNA KÍ SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 7. ÁRG. 2007 Hátt á þriðja hundrað manns sátu kjaramálaráðstefnu Kennarasambands Íslands á alþjóðadegi kennara 5. okt- óber sl. Ráðstefnan var haldin í KHÍ en þess má geta að Kennarasambandið og KHÍ standa sameiginlega að veglegri afmælisdagskrá í allan vetur í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá setningu fyrstu fræðslulaga og fyrstu nemendur hófu nám í gamla Kennaraskólanum sem nú er Kennarahúsið. Á kjaramálaráðstefnunni var fjallað um ýmis mál sem tengjast kjörum félagsmanna KÍ sem og annars launafólks. Fyrirlesarar á ráðstefnunni voru Ole Petter Blindheim frá norsku kennarasamtökunum, Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ, Gunnar Páll Pálsson formaður VR, Karl Björnsson sviðsstjóri kjarasviðs SÍS, Elín Björg Jónsdóttir varaformaður BSRB, Katrín Ólafsdóttir lektor í HR og Halldóra Friðjónsdóttir formaður BHM, auk Eiríks Jónssonar formanns KÍ, Aðalheiðar Steingrímsdóttur formanns FF og loks Elnu Katrínar Jónsdóttur varaformanns KÍ sem flutti saman- tekt um ráðstefnuna í lok hennar. Eiríkur Jónsson formaður KÍ setti ráð- stefnuna og sagðist í ávarpi sínu vona að umfjöllunarefni dagsins yrði „uppspretta mikillar og málefnalegrar umræðu um kjaramál á komandi mánuðum“. Hann lagði áherslu á að ráðstefnan væri vettvangur til að fá fram ólík viðhorf og mikilvægt að fólk segði meiningu sína umbúðalaust. „Við þurfum að hafa kjark til að hlusta á skoðanir annarra hvort sem við erum sammála þeim eða ekki,“ sagði hann. „Við verðum að muna að engin ein aðferð eða skoðun er rétt við samningaborðið heldur er einungis um að ræða ólíkar aðferðir sem allar stefna að því marki að ná samkomulagi.“ Eiríkur sagðist jafnframt telja að sjaldan eða aldrei hefði verið mikilvægara að nýir kjarasamningar leiddu til lausnar sem sátt næðist um. Laun félagsmanna KÍ væru almennt allt of lág og allt of margir kennarar sem væru að útskrifast veldu sér annað starf en kennslu. „Misskipting tekna er að verða slík að engu tali tekur,“ sagði hann og nefndi miljarðinn sem Háskólinn í Reykjavík fékk að gjöf nýverið. „Ég er ekki að gera lítið úr þessari gjöf eða þeim góða hug sem að baki býr en ef þessi upphæð er sett í samhengi við það umhverfi sem við lifum í og skiljum kemur ýmislegt merkilegt í ljós. Það tekur kennara á meðallaunum, 280.000 brúttó – 195.000 nettó, 427 ár að vinna fyrir þessari upphæð ef hann lætur allar ráðstöfunartekjur sínar í þetta. Með öðrum orðum: Þetta eru tólf sinnum ævitekjur kennara. Það tekur hins vegar einn nýríkan Íslending innan við tíu ár að safna þessu saman úr þeim aukakrónum sem flæða út úr sparibauknum og hann þarf ekki að nota sjálfur. Þetta er skýrt dæmi um að tekjuskiptingin í þjóðfélaginu er stærra vandamál en margir vilja vera láta. Þetta er líka skýrt dæmi um að nægir peningar eru til í þjóðfélaginu til að greiða þau laun sem duga til þess að fá til starfa nægjanlegan fjölda velmenntaðra kennara Nægir peningar til að greiða kennurum mannsæmandi laun OLE PETTER BLINDHEIM Á KJARAMÁLARÁÐSTEFNU KÍ: STYRKUR FÓLGINN Í STÆRÐINNI 11 LAUNAMYNDUN RÆÐST AF FLEIRU EN KJARASAMNINGUM. Katrín Ólafsdóttir FÓLK HRÆTT VIÐ ÁRANGURS- OG FRAMMISTÖÐUMAT. Halldóra Friðjónsdóttir EF LN HÆTTIR STÖRFUM ÞARF AKUREYRI AÐ GERA 26 KJARASAMINGA. Karl Björnsson

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.