Skólavarðan - 01.10.2007, Side 17

Skólavarðan - 01.10.2007, Side 17
17 REIKNILÍKAN FRAMHALDSSKÓLA, TILKYNNINGAR SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 7. ÁRG. 2007 menntun; einungis að efla þá sem alla tíð eru á beinu brautinni? Hér er hvorki verið að búa til ný álitamál né halla réttu máli. Þetta þekkja þeir sem hafa rekið skóla með hægferðaráföngum, hinir síður. Ein meginhugmynd reiknilíkans var að efla frumkvæði framhaldsskóla til að búa til og bjóða fram nám á almennri braut. Raunverulegur hvati til að gera slíkt er enginn, þvert á móti. Margir af stærstu fram halds skólum landsins hafa hafnað því að bjóða upp á almenna braut, m.a. vegna mjög naumra fjárveitinga í reiknilíkani. Launaumhverfi kennarastéttarinnar var bætt með gerð stofn ana samninga en hin lágu meðallaun í reiknilíkani eiga m.a. þátt í því að kennarar dragast nú stórlega aftur úr öðrum stéttum þjóðfélagsins í launum. Gagnrýni á rangar forsendur í reikni- líkani er ekki linnulaus áróður gegn reiknilíkani. Launastika í reiknilíkani endurspeglar ekki réttan launakostnað. Ýmsar mikilvægar tölur í reiknilíkani eru og hafa verið rangar, s.s. fermetraverð byggingarkostnaðar, nokkrir taxtar, prósentutala launatengdra gjalda o.fl. Hvað á það að þýða að setja inn kr. 136.328 fyrir fermetraverð í reiknilíkani fyrir árið 2008 þegar raunverulegur byggingarkostnaður er nú kominn langt yfir kr. 200 þúsund pr. fermetra? Enn og aftur legg ég fram tillögur til að leysa mál: • Einungis verði settar réttar og ná- kvæmar kostnaðartölur í reikni- líkanið. • Sparnaðarkrafa, ef einhver er, verði sett á sérstakan stað í reiknilíkanið. • Sérstakur talningardagur verði á hverri önn. • Nýtingarhlutfall í hægferðaráföng- um verði lagað að þeirri staðreynd að nemendur sem standa höllum fæti eru í meiri brottfallshættu en aðrir og kosta skólann auk þess fleiri vinnustundir en aðrir nemendur. • Reiknilíkanið verði einfalt og að- gengilegt. • Reiknilíkansnefnd verði virk og taki ákvarðanir um stefnu og nauð- synlegar breytingar. Málið þarf ekki að vera neitt flóknara en þetta! Þorsteinn Þorsteinsson Höfundur er og hefur verið skólameistari í 24 ár í framhaldsskóla sem innritar ekki einungis nemendur með afburðaeinkunnir úr grunnskóla. Hægt er að minnast dagsins með margvíslegu móti, t.d. upplestri, ritunarsamkeppni, verðlaunum og viðurkenningum, handritasýningum, samkomum af ýmsum toga og tónlistarflutningi svo að fátt eitt sé nefnt. Dæmi um viðburði undanfarin ár: Leikskólar: Samverustund á sal í tilefni dagsins; unnið sérstaklega með íslenskt mál eina viku; rætt um skáldið Jónas Hallgrímsson; börnunum kenndar vísur og söngvar og búin til leikrit út frá ljóðum eða sögum Jónasar; haldinn sérstakur bókadagur; nemendur úr grunnskóla koma í heimsókn og lesa fyrir leikskólabörnin. Grunnskólar: Stóra upplestrarkeppnin hefur hafist formlega á degi íslenskrar tungu; eldri börnin koma í bekki yngri barna og lesa upp sögur og ljóð; verðlaunahafar úr upplestrarkeppni síðasta árs lesa upp; ljóða- og smásagnakeppni; ljóð Jónasar Hallgrímssonar kynnt; íslenskir málshættir sérstaklega athugaðir. Framhaldsskólar: Rithöfundar koma í heimsókn og lesa upp; ljóðaupplestur undir handleiðslu íslenskukennara; sérstök verkefni í áföngum í íslensku; kórsöngur. Heimasíða dags íslenskrar tungu er: mrn.stjr.is/malaflokkar/Menning/dit/ Þar er m.a. hugmyndabanki kennara og upplýsingar um Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem menntamálaráðherra afhendir árlega 16. nóvember. Kennurum er velkomið að hafa samband til að fá nánari upplýsingar, annaðhvort í tölvupósti, agustath@hi.is, eða í s. 525 8530 ef spurningar vakna og einnig væri gagnlegt að heyra frá sem flestum um það sem stendur til að gera í tilefni dagsins. Jólafundur félagsins verður haldinn laugardaginn 17. nóvember kl. 16-18 í tölvuveri Kennaraháskóla Íslands. Fyrirhugað er að kenna þátttakendum að búa til myndskeið, með margmiðlunar- forritinu PhotoStory 3. Hægt er að brenna myndskeiðin á DVD disk og senda vinum og ættingjum sem rafrænt jólakort eða hýsa þau á vefsíðu. Hér er á ferðinni nýstárleg og mjög einföld aðferð við hönnun jólakorta sem gagnast bæði nemendum og kennurum. Þetta verkefni hentar vel sem jólagjöf nemenda til foreldra. Umsjón: Guðný Þorsteinsdóttir, kerfisfræðingur og kennari í Borgaskóla. Skráning fyrir 14. nóvember hjá fekkst@ kennslaogtru.is eða í síma 8930545 hjá Birgittu. Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember Félag kennara í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræðum www.kennslaogtru.is

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.